Leita í fréttum mbl.is

Aðkallandi mál

Fyrir nokkru hratt undirritaður af stað nokkurri  umræðu  um sorpmál á almannavettvangi.

Hann birti frásagnir og greinar eftir málsmetandi kollega sína í blaðinu Sámur fóstri sem út  kom á þeim árum.meðal annars ítarlega grein eftir prof. dr. Júlíus Sólnes í 2.tbl.3.árg. Sáms Fóstra í Nóvember 2017 og einnig hefur hann oftlega fjallað um stöðina á Amager Bakke inn í miðri  Kaupmannahöfn  sem vakið hefur heimsathygli fyrir orkuvinnslu og hreinan útblástur.

Prof.dr.Julius Solnes hefur ritað ýmislegt um sorphirðu sem vert er að staldra við:

"Sorporka

Inngangur

 

Sorphirða, það vill segja móttaka úrgangs frá heimilum og iðnaði
og förgun hans, hefur reynzt sveitarfélögum á Íslandi erfitt
viðfangsefni. Ekki er svo langt síðan, að öllu sorpi var ekið á
sorphauga í nágrenni byggðar. Þar hrúgaðist það upp, og reynt var
að brenna það sem hægt var. Af þessu stafaði mikil mengun. Bæði
loftmengun vegna brunareyks og útgufunar ýmiss konar
lofttegunda svo og jarðvegs- og grunnvatnsmengun frá haugunum
sjálfum.

Enn finnast gamaldags sorphaugar, eins og sá sem þetta
skrifar þekkir frá æskuárum sínum á Akureyri. Þangað fórum við
unglingarnir með smárifla og reyndum að skjóta rottur, sem þar
voru í miklum mæli, innan um brennandi ruslið ofan á jörðinni.


Þegar umhverfisráðuneyti var stofnað á Íslandi í febrúar 1990, voru
sorphirðumál landsmanna í miklum ólestri og förgun sorps langt að
baki því sem gerðist í nágrannalöndum okkar og flestum
vestrænum ríkjum. Töluvert hefur áunnizt í þessum efnum síðan þá. Munar þar mest um tilkomu
Sorpu 1991, byggðasamlags sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu um móttöku og förgun sorps
með kerfisbundnum og umhverfisvænni hætti en áður.


Starfsemi Sorpu hefur orðið til þess að stórbæta sorphirðu á höfðuborgarsvæðinu, orðið hvati til flokkunar sorps, endurvinnslu þess og um leið vitundarvakning um að farga beri úrgangi á
umhverfisvænan hátt. Sá ljóður er á, að valið var að urða langmestan hluta þess sorps, sem fellur til á höfuðborgarsvæðinu á Álfsnesi. Þótt urðunarstaðurinn hafi verið gerður eftir ströngustu umhverfisstöðlum, verður að telja, að urðun sorps sé úrelt förgunaraðferð. Sorpa hyggst nú leggja afurðun úrgangs með þessum hætti. Fyrirhugað er að útbúa smærri urðunarþrær fyrir sorp, þar semauðveldara er að safna metan og öðrum loftgösum, sem gufa upp frá þrónum og eru nýtanleg.


Hægar hefur gengið hjá hinum ýmsu sveitarfélögum úti á landi. Víða er þó búið að koma upp
móttökustöðvum fyrir flokkaðan úrgang, þar sem almenningur getur losað sig við ýmiss konar rusl og aflóga hluti. Heimilssorp er hins vegar sótt til íbúa. Förgun sorps og úrgangs er engu að síður víða ábótavant.


Það er því hægt að fullyrða, að Íslendingar hafi sofið á verðinum gagnvart því að meðhöndla
heimilissorp og annan úrgang á umhverfisvænan hátt. Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfisstofnunar fór heildarúrgangsmagn á landinu í fyrsta sinn yfir milljón tonn á síðasta ári (2016) og fer sífellt vaxandi. Endurvinnsla úrgangsefna hefur bæði reynst kostnaðarsöm og erfið. Mikill hluti úrgangs hefur því verið urðaður á nokkrum völdum stöðum víðs vegar á landinu. Sumir þessara urðunarstaða eru nú komnir á undanþágu, og hjá öðrum rennur starfsleyfi þeirra út innan fárra ára.


Nýlega var samþykkt tilskipun hjá Evrópusambandinu (9. júní 2016) sem gerir ráð fyrir, að 2030 megi sveitarfélög á Evrópska efnahagssvæðinu ekki urða meira en sem nemur 10% af tilfallandi heimilisúrgangi. Jafnframt er gert ráð fyrir, að um 65% úrgangs skuli endurunninn. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun mun þessi tilskipun brátt fá ígildi reglugerðar á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og taka því gildi á Íslandi. Sveitarfélögin fá þannig einhvern gálgafrest, ekki mjög langan, til þess að minnka urðun í 10% af heimilisúrgangi. Mynd 1 sýnir gróflega hvernig heimilissorpi og öðrum úrgangi er fargað eða eytt á Íslandi. Mikill hluti hans er urðaður, eða um þriðjungur alls árið 2011. Endurnýting hefur hins vegar farið vaxandi, og eru 56% úrgangs endurnýtt með einhverjum hætti. Þessi þáttur hefur verið töluvert gagnrýndur, bæðivegna mikil kostnaðar og þess, að flokkaður úrgangur hefur verið fluttur til útlanda til vinnslu þar með ærnum tilkostnaði og í einhverjum tilvikum einfaldlega urðaður.

Á tíunda árartugnum voru byggðar nokkrar litlar sorpbrennslustöðvar á landsbyggðinni, en með
tilkomu þeirra vonuðust menn til þess, að fundin væri hagkvæm lausn á förgun heimilissorps og annars úrgangs. 2010 voru alls sex slíkar brennslustöðvar í rekstri á landinu
Þessar stöðvar voru mjög litlar á alþjóðlegan mælikvarða og reyndust óhagkvæmar í rekstri.
Brennsluhiti var altof lágur til að koma í veg fyrir loftmengun. Voru starfsleyfi þeirra byggð á undanþágu frá viðurkenndum EES reglum um slíkar stöðvar. Upp úr aldamótunum 2000 fór að bera á mikilli díoxínmengun frá sumum þessara stöðva. Að lokum voru þær allar sviptar starfleyfi og hefur þeim verið lokað. Hafa sorpmál viðkomandi sveitarfélaga verið í miklum ólestri síðan og þau gripið til þess ráðs að láta aka sorpi og úrgangi langar leiðir til förgunarstöðva, oftast til urðunar.

Aðeins ein sorpbrennslustöð er enn starfandi á Íslandi, þ.e. Kalka á Suðurnesjum. Hún verður þó að teljast frekar ófullkomin í samanburði við sorporkustöðvar nágrannalandanna, og hefur henni verið gert að uppfylla hertar kröfur um takmörkun á mengun, sem gerir reksturinn enn erfiðari. Hér gildir hagkvæmni stærðarinnar sem svo víða annar staðar.
Tillögur til úrbóta
Mörg sveitarfélög ásamt Fjórðungssambandi Vestfjarða hafa um nokkurt skeið verið að athuga
tillögur um allsherjarlausn sorphirðumála landsmanna, sem settar voru fram í skýrslu fyrr á þessu ári,unninni af Braga Má Valgeirssyni, vélstjóra og iðnfræðingi ásamt Stefáni Guðsteinssyni,skipatæknifræðingi og Júlíusi Sólnes, fyrsta umhverfisráðherra Íslands. Verkís verkfræðistofa hefur einnig komið að verkefninu. Í skýrslunni er gert ráð fyrir, að byggð verði fullkomin sorporkustöð við Ísafjarðardjúp, sem taki á móti allt að 100 þúsund tonnum af brennanlegum úrgangi frá öllum sveitarfélögum landsins.


Sorporkustöð


Stöðin yrði mjög tæknilega fullkomin, byggð skv. ströngustu reglum Evrópusambandsins í líkingu við þær stöðvar, sem nýlega hafa verið teknar í notkun á Norðurlöndunum, m.a. á Amager nærri miðborg Kaupmannahafnar (sjá mynd 2). Um er að ræða háhitabrennslu (um 1200°C) með mjög fullkomnum mengunarvarnabúnaði, þannig að loftmengun er nánast engin.

Vestfjarðastöðin mun framleiða um 10 MW af raforku og 30 MW af hitaorku, eða um 312
gígavattstundir af orku á ári. Með henni yrði raforkuþörf Vestfirðinga, umfram núverandi framleiðslu í fjórðungnum, fullnægt, og nægt heitt vatn fengist til húsahitunar í öllum byggðarlögum við Djúp,ásamt til margs konar atvinnustarfsemi.

 

Mynd 1Julius solnes urðun

Mynd 1. Þróun förgunar heimilissorps og annars úrgangs á Íslandi 1995–2011. 1995 voru yfir þrír fjórðu hlutar alls úrgangs urðaðir á Íslandi. Sextán árum síðar 2011 var þetta hlutfall komið niður í 31%. Á sama tíma hefur hlutur endurvinnslu farið ört vaxandi og er orðinn 56%.

Frumstæðum brennslustöðvum hefur verið lokað (6% úrgangs var brennt í þeim 1995), en
háhitabrennsla með orkunýtingu, þ.e. í sorporkustöðvum, er enn mjög lítill hluti förgunar eða aðeins 4% árið 2011. (Úr Landsáætlun um meðhöndlun úrgangs 2013–2024, 86 bls., Umhverfis- og auðlindaráðuneyti 2013.)

Stöðin kæmi til með að veita um 15 manns atvinnu beint, og að auki yrði um einhver afleidd störf að ræða. Talið er, að hún muni kosta um 10–12 milljarða króna með tengdum mannvirkjum, skip og hafnaraðstaða um 5,5–7 milljarða króna, þannig að heildarkostnaður þessa risaverkefnis gæti numið
tæplega 20 milljörðum króna. Næsta skref verður að gera nákvæmar rekstrar- og kostnaðaráætlanir.Við brennslu á sorpi í háhitaofnum, þar sem hitastig er vel yfir 1000°C, eyðast öll lífræn efni. Úrgangur sem venjulega er ekki gott eldsneyti, eins og t.d. hræ og sláturhúsaúrgangur, verður ágætt brennsluefni við þessar aðstæður, en í honum er mikil fita og trefjar sem brenna vel. Annar brennanlegur úrgangur skilur eftir sig skaðlaus steinefni sem liggja eftir á brunaristinni og nota má sem fyllingarefni við byggingarframkvæmdir. Einnig verður til umtalsvert magn af fínösku, sem Norðmenn hafa viljað taka á móti. Það sem fer upp með reykgasinu er leitt gegnum margs konar hreinsisíur, sem skilja frá efni eins og þungmálma og önnur eiturefni. Þess ber að geta, að ekkert „díoxín“ lifir af brennslu við hitastig sem er yfir 800°C.


Sorpflutningar


Allt sorp og allur úrgangur fyrir utan gler og steinefni, sem nota má í uppfyllingar, yrðu flutt frá flokkunarstöðvum sveitarfélaga í gámum til næstu hafnar. Gámarnir yrðu síðan fluttir með tveimur
sérútbúnum gámaskipum frá öllum aðgengilegum höfnum umhverfis landið (25–30 talsins) til
áfangastaðar, brennanlegur úrgangur til sorporkustöðvar, en annað til móttökustöðva fyrir t.d.málma og endurvinnslu. Skipin gætu einnig flutt hvers konar annan varning í gámum milli hafna,meðal annars olíu og benzín ásamt frystigámum (fiskafurðir).Skipin þurfa að vera grunnrist til að geta lagzt að bryggju á minni stöðum, þar sem aðdýpi er
takmarkað. Þau verða útbúið með stórum krana, þannig að ekki sé þörf fyrir mikla landaðstöðu
(krana) til að umskipa gámum í hverri höfn. Skipin geta því komið og farið aftur hvenær sem er sólarhringsins, og áhöfn þeirra afgreitt sig að mestu sjálf.


Stefán Guðsteinsson skipatæknifræðingur hefur unnið frumteikningar fyrir smíði sérstaks gámaskips,sem fyrir utan sorpgámana, getur einnig flutt almennan varning í gámum. Skipið ristir innan við fimm

 

Amagerbakkejulius.JPG mynd2

Mynd 2. Sorporkustöð í Hørsholm, Danmörku.

metra og er því vel til þess fallið að sigla inn á margar minni hafnir landsins. Skipin yrðu mjög umhverfisvæn, knúin þremur aflvélum, sem geta notað lífrænt gas, t.d. metan. Til fróðleiks má geta þess, að öll fyrirhuguð metanframleiðsla Sorpu í Álfsnesi mun rétt nægja til þess að knýja annað gámaflutningsskipið.


Með skipunum mætti taka upp almenna strandflutninga á nýjan leik. Það myndi hafa veruleg jákvæð umhverfisáhrif, þar sem t.d. losun koltvíoxíðs er talin sjö sinnum minni við að flytja eitt tonn af
varningi einn kílómetra sjóleiðina en landleiðina með flutningabílum. Einnig myndi slit á þjóðvegum landsins minnka verulega, en einn stór flutningabíll er talinn valda sambærilegu sliti á vegum landsins og 9000 einkabílar.


Lokaorð


Að lokum er rétt að nefna aðrar helztu mögulegar lausnir á förgun á þeim úrgangi, sem ekki verður endurnýttur eða telst nothæfur til endurvinnslu, og geta hentað hér á landi, þar sem fámennið gerir alla endurvinnslu mjög erfiða. Það vart raunhæft, að hægt verði að endurvinna 65% af úrgangi á Íslandi. Svo fámenn þjóð getur ekki ráðist í mikinn endurvinnsluiðnað. Í lögum um meðhöndlun úrgangs frá 2003 með áorðnum breytingum er eftirfarandi forgangsröðun um förgun hans: 1)

Dregið
skal úr myndun úrgangs með öllum tiltækum ráðum,

2) endurvinnsla,

3) lífræn vinnsla úrgangs,

4)
endurnýting, m.a. með orkuvinnslu, og að síðustu

5) urðun.

Að lokum er í þessari lagagrein ákvæði,


sem segir, að víkja megi frá þessari forgangsröðun út frá hagkvæmnisjónarmiðum (endurvinnsla
óhagkvæm!).


Moltugerð (3) er alltaf möguleg eftir mjög vandaða flokkun. Það þarf að hreinsa burt alla þá hluti/efni


sem geta valdið mengun, ef þau eru óvarin gegn veðri og vindum, þannig að regnvatn geti skolað óæskilegum efnum niður í jarðveg. Moltugerð er frekar viðkvæmt ferli og verður að vanda til verks,en rétt er að taka fram, að moltugerð getur verið æskileg aðferð samhliða öðrum lausnum.

Lífræn orkuvinnsla (3).

að að vinna lífrænt eldsneyti eins og metan úr lífrænum úrgangi,

t.d. úr heimilissorpi og sláturhúsaúrgangi, hefur sýnt sig vera góð lausn, þar sem næg aðföng eru af úrgangi sem henta til vinnslunnar. Bannað er þó að nota margvíslegan lífrænan úrgang til slíkrar vinnslu. Ber þar helzt að nefna alla taugavefi úr klaufdýrum og öll sýkt dýr sem hefur verið slátrað. Hér sem fyrr er spurning um hagkvæmni. Metanvinnsla í fámennum byggðarlögum getur varla verið raunhæf.Að þessum aðferðum ólöstuðum hefur fullkomin sorpbrennsla náð hvað mestri útbreiðslu í flestum
ríkjum Evrópusambandsins og raunar mjög víða um heim allan. Ástæðan er sú mikla varmaorka sem skapast í brunaferlinu og hægt er að nýta. Þá er umtalsverða raforku framleidd í slíkum stöðvum.Nútíma sorporkuver eru hvað minnst mengandi miðað við allar aðferðir við að eyða eða farga sorpi.Og skipaflutningar á sorpgámum hafa umtalsvert minni mengun í för með sér en flutningar á þeim landleiðina. Það sem kemur upp um reykháfinn frá slíkum orkuverum eru einungis vatnsgufur og koltvíoxíð (CO 2 ). Þess ber að geta, að allar aðferðir við eyðingu lífrænna efna, sem innihalda
koltvíoxíð, skila frá sér sama magni af því við eyðingu. Einnig er vert að nefna, að umframhitaorku í slíkum orkuverum er hægt að nýta til þess að safna saman CO 2 frá útblæstrinum, koma því á fljótandi form, setja það á þrýstikúta og nota til dæmis í gróðurhúsum.Það er nokkuð ljóst, að erfitt verður að bregðast við hinum nýju reglum ESB, um að aðeins 10%
heimilisúrgangs verði urðað eftir 2030. Gera má ráð fyrir, að margir urðunarstaðir muni verða notaðir áfram einhver ár fram yfir 2030, þar sem víðast hvar er ekki farið að vinna að öðrum viðurkenndum lausnum.Að byggja fullkomna sorporkustöð á Vestfjörðum, þar sem orkuskortur hefur verið viðvarandi ogleysa sorphirðuvandamál landsmanna í leiðinni, svo að ekki sé talað um að koma strandflutningum á að nýju, hlýtur að vera áhugaverður kostur."

 

Hér voru vinstri mönnum faldar framkvæmdir og lausnaval í sorpmálum.

 Þær mistókust auðvitað herfilaga þar sem þeim eru vitræmar lausnir í tækni-og fjármálum lokuð bók.

Moltugerð í Álfsnesi  mislukkaðist auðvitað algerlega og metangasinu er brennt á meðan þeir kaupa rafmagnsstrætóa   og ekki er búið að ákveða hverju Borgarlínan  á að brenna.

 Það er eins og vinstri mönnum séu allar bjargir bannaðar í stjórnmálum nema að stofna til taps og hallreksturs.

Milljarðabruninn í Álfsnesi er orðinn að alþjóðarathlægi  nema hjá þeim sem fá að borga hallann.

 

 

Dr. Júlíus er nokkuð fastu í dreifbýlnu með sína lausn. En ég vil líta á málið frá öllu landinu. Þá eru fáir staðir sem taka Álfsnesinu fram um staðsetningu eins og er og hafa aftur komið á borðið núna bráðum  hálfum áratug síðar. En betra er seint en aldrei og ekki seinna vænna að breyta stöðinni í Álfsnesi úr tapi  í gróða.

Á mrðsm hrlddur sorpið áfrsm að hrúgast upp og vandamálið að vaxa.

Vinsti menn eru gersamlega ófærir um að finna nokra lausn á málinu  þannig að þessu máli verður enga lausna að finna fyrr en eftir meira en ár ef tekst að kjósa þetta fólk frá í sem flestum sveitastjórnum sem ekki hugsar um margt annað en woke, brú yfir Fossvog með einni akrein fyrir hæghjólandi og einni akrein fyrir hraðhjólandi og einni fyrir strætó og allskyns önnur afbriðilegheit en auðvitað ekki raunvandamál.  

 

Íslendingar reka þegar góða sorpbrennslustöð á Suðurnesjum Kölku og geta dregið á ýmsa góða reynslu þaðan.

Kollegar Jón Erlendsson og Þórður Þorbjarnarson komu mikið að rannsóknum á sorpmálum á sinni tíð Þannig að mikill feóðleikur liggur þegar fyrir og rannsóknir sem hægt er að byggja á. Fleira menn og skoðanir mætti rifja upp sem verður trúlega núna þegar aðstæður virðast ætla að þvinga menn til að taka ákvarðanir á vitrænan hátt en draga eitthvað úr sífellda félagslega-og kyngreiningar- bullinu sem á víst að keaupa Hótel Sögu undir sem umræðugrundvöll undir þau aðkallandi mál.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3417959

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband