Leita í fréttum mbl.is

Er Nato að narta

í gömlu kommana að óþörfu?

Mér finnst þegar ég horfi á þetta sífellda spennutal í mið-Evrópu utanfrá eins og það séu öfl innan Nato sem séu sífellt að framleiða núningspunkta við gömlu kommaveldin í austri.

Haldandi fyrirlestra um hvað gerist ef Putín dirfist að gera þetta eða hitt. Getur bandalagið ekki talað um hvað geti margt batnað ef austurveldin geri þetta eða hitt?

Slakað á spennu og reynt friðsamar leiðir? Hætt þessum sífelldi hótunum?

Stundum finnst mér að Hillary Clinton sé komin til nýrra áhrifa í stefnumótun. Haukar séu sífellt að garga en ekki dúfur að kurra.

Af hverju bara að vera að hóta alltaf hóta afleiðingum?

Af hverju ekki að biðja um samvinnu og velsæld með vináttu. Nordstream er og farin að flytja nauðsynlegt gas fyrir Pútín.

Það er staðreynd að Þjóðverja vantar gas og Rússa vantar Benza frá þeim.

Til hvers að vera alltaf með þennan kjaft?

Eða er ég bara idjót og skilji ekki að NATO verði sífellt að narta ti að réttlæta útgjöldin?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Verkfræðingur góður; og þökk fyrir samskipti liðinna ára, hjer: á vef - og sælir, aðrir gestir þínir !

Varla; teljazt þeir Konstanín XI. (1449 - 1453), síðasti Býzanzkeisari, nje frændi hans Vassily II.Moskvuhertogi (1425 - 1462), hver tók upp merki Býzanz eftir fall ríkisins í hendur Tyrkja í Maí 1453, til mikilla Kommúnista, Halldór minn - eða hvað ?

Þið; sem munið Kalda stríðs tímabilið lengur, en við sem yngri erum að árum, getið ekki endalaust, hengt andúð Pútíns og liðsmanna hans á Evrópusambandinu (Fjórða ríki Þýzkaranna) sem og NATÓ, á einhvern löngu útbrunninn Kommúnista klakk, Verkfræðingur snjalli.

Eftir; löngu tímabært fall hinna ógeðfelldu Sovjetríkja, árið 1991, tóku þeir Jeltsín heitinn og Pútín sig til, og endurreistu fornfræg merki og tákn Austur- Rómverska ríkisins eins og við munum Halldór, svo fullan sóma mega þeir af hafa, Rússnesku Hertogarnir, og síðar Keisararnir hjeldu þó minningu gamla austurhluta Rómarveldis á lofti eftir fremsta megni, og lyftu Rjetttrúnaðarkirkjunni á þann stall, sem henni ber - og hefur borið:: allt, aftur til Fornaldar tíma Konstantínusar (306 - 337) hins Mikla, eins og við munum Halldór, ekki síður en margir annarra.

NATÓ og Evrópusambandi Þjóðverjanna; kemur AKKÚRAT ekkert við hvernig þeim Austanmönnum gengur að koma skikki á mál Úkraínu, fremur en Kazakhstan, á komandi misserum og árum, svo líka komi fram:: ekki síður.

 The Same Photo of Emperor-Saint Constantine XI Palaiologos Every Day - Home  | Facebook

Konstantín XI. Býzanzkeisari

Titulyarnik - Vasily Vasiliyevich.jpg

Vasily II. Moskvuhertogi

Með beztu kveðjum; sem endranær, af Suðurlandi /

   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.1.2022 kl. 00:00

2 identicon

Sammála, Halldór.

Segi svo eins og börnin:

Bandaríkin og Rússland eiga að vera vinir.

Og Nato ætti að vinna að því, að svo yrði.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 10.1.2022 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband