Leita í fréttum mbl.is

Var einhver viðbúinn?

því að stórveldið Rússland réðist á frjálst og fullvalda smáríki án stríðsyfirlýsingar eða úrslitakosta?

Hvað hugsar maður í þessu tilviki?

Hugsar maður aftur til 1, september 1939 og Adolfs Hitlers þegar hann kemur því til leiðar að Rússar og Þjóðverjar ráðast á frjálst og fullvalda ríki án stríðsyfirlýsingar eða úrslitakosta?

Er Pútín að gera nokkuð annað en Adolf? Nema hann stendur einn að árásinni? Byrjar að myrða hvað fólk sem fyrir verður. Enginn tilgangur gefinn upp nema að drepa sem flesta áður en Úkraína gefst upp og afhendir vopn og verjur skilyrðislaust. Var það ekki eins í Póllandi 1939. Jafna allt við jörðu sem hægt er? Prófa nýjustu vopnin? 

Hvaða eftirmæli hefur Adolf fengið í mannskynssögunni? Fær Pútín eitthvert annað mat sem stríðsherra?

Var nokkur viðbúinn að mæta þessu stríði sem dregst svona á langinn? Er Pútín ánægður með gang mála hjá sínum her?  

Ég held að enginn  sé ánægður eins og málin standa núna.  Meiri byssur og skot? Til hvers leiðir það annars en meiri hetjuskapar?

Hvers virði er hetjuskapur í þátíð? Hvers virði er dauð hetja?

Hvernig á þetta að enda?

Báðir segjast hafa náð sínu fram? Fá sér heiðursmerki úr kassanum í kjörbúðinni ef báðir halda lífi?

Nei, ég held að enginn hafi verið viðbúinn þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé að þú ert búinn að sjá ljósið. Feginn er ég. Hlustaðu að Margeir á Sögu. - Þeir sem verja Pútín eru uppvakningar fasismans og kommúnismans.

Skoðaðu rök Páls Vilhjálmssonar. Taktu stuðning hans við innrásina, breytir nafninu Pútín í Hitler og Úkraínu í Austur-Prússland eða Súdetahéröðin. Ekkert ber á milli raka Páls og Hitlers.- Sem sé; Páll er  ... ekki satt?

Einar .S. Hálfdánarson (IP-tala skráð) 23.3.2022 kl. 21:17

2 identicon

Sæll Halldór,

Þar sem að stjórnvöld í Úkraínu hafa aldrei farið eftir Minsk 1. friðarsamkomulaginu, nú og hvað þá Minsk 2. friðarsamkomulaginu, heldur hafið hvert stríðið á fætur öðru síðast liðin 8 ár í austurhluta Úkraínu, þá er ekki rétt að segja að þetta stríð hafi byrjað fyrir mánuði síðan. 
Þetta stríð byrjaði fyrir meira en 8 árum síðan, en þú verður að athuga það að allt þetta stórkostlega stuðningslið fyrir Úkraínu núna hefur aldrei einu sinni grátið (hvað þá með góðum hráum hvítlauk) eða hvað þá einu sinni óvart slysast til þess að mótmæla þessu stríði þarna í austurhluta Úkraínu, ekki fyrr en rússneskur her hóf þessar hernaðaraðgerð eða stríð gegn Úkraínu.

Stjórnvöld í Úkraínu eru og hafa verið á þeirri skoðun að þau hafi fullan rétt á því að drepa yfir 14.000  manns, er þau kjósa að nefna sérstaklega "aðskilnaðarsinna", en Rússar eiga EKKI að hafa nein rétt á verja sitt rússnesku ættað fólk þarna, eða hafa ALLS EKKI leyfi til þess að reyna stöðva allar þessar ljótu hreinsanir, ekki satt þú?
KV.



Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 24.3.2022 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband