Leita í fréttum mbl.is

Ekkert vit í Úkraínu

er að hafa ef  maður horfir á atburðina.

Er einhver von til þess að Pútín hagnist á þessu stríði? Hagnast aðrir?

Ég finn ekki þá aðla.

Það er engin skynssemi í þessari eyðileggingu og manndrápum?

Af hverju má ég þá ekki skrifa eitthvað bull um lausnir?

Ég ætla bara að gera það.

Ég legg til að hernaðaraðgerðum verði hætt í dag og allir herir settir í biðstöðu.

Rússum verði boðin aðild að NATO um leið og Svíum og Finnum.

Við verðum öll bandamenn en ekki óvinir. Allt menn en ekki skepnur.

Ræðum ekkert um hverjir bera ábyrgðina á þessu öllu. Pútín ekki frekar en aðrir.

Það getur annars byrjað kjarnorkustríð daginn sem Baltneskar þjóðir sækja um NATO-aðild.

Öllum héröðum sem vilja í austur Úkraínu verði boðin sjálfsstjórn og atkvæðagreiðsla um hvort þau vilji vera rússnesk, úkraínsk  eða hlutlaus í hæfilegum stærðum, frá Krímskaga austur úr.

NATO taki að sér að borga stríðsskaðann og endurbyggingu borganna. NATO varðveitir friðinn í austurátt eftirleiðis.

Það verður einfaldara landakerfi í austur Úkraínu.Einfaldara ef einverjir hlutar Úkraínu vilja vera Rússar frekar en Úkraínumenn. Það hlýtur að vera hægt að semja um eðlilegar skiptingar héraða og menn geti sætt sig við að vera Rússar eða ekki Rússar hér eða þar.

Það er ekkert vit í Úkraínustríðinu að finna hvort sem er.

Hvað hefst út úr keppni um hver getur skotið mest og eyðilagt fleiri tól og stríðsvagna?

Af hverju ekki frið frekar en stríð sem enginn er að vinna?

Þarf þetta að vera vitlausara en annað?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem vantar í þessar uppgjafar og ósigurstillögur þínar er að til að auðvelda samninga geta Rússar einnig fengið Ísland í sárabætur. Það er gáfulegra en margt annað í tillögum þínum og mundi sæta minni mótspyrnu. Það sakar ekki að bjóða það, og þú gætir ekki haft neitt við það að athuga, ef það tryggði frið. Kannski færð þú þá að kjósa hann Putín þinn eftir allt saman.

Vagn (IP-tala skráð) 14.4.2022 kl. 19:34

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Lifðu manna heilastur.

Þetta er þitt besta blogg, að hugsa leið út úr ógöngunum. Ef eitthvað á að breytast, þá verður einhver að hugsa það og einhverjir aðrir að sjá, heyra og skilja og venjast hugmyndinni. Ekki virðist það vera mjög gáfulegt að eyðileggja allt fyrir öllum. 

Þeir sem fóru að reyna að neyða Rússa til að fara að verja sig vissu hvað þeir voru að gera. 

Við breytum því.

---

1.

Fyrst var það kolefnis, lífslofts skatturinn, til að skapa einhverjum framfærslu og gera orkuna dýrari og nú orkuskort. 

2.

Næst kom svindlpestin til að koma bankakortinu, eftirlitskortinu í fólkið. Lokanirnar stöðvuðu framleiðslu og 100 milljónir atvinnulausir og fyrirtækjunum lokað, þá ekki framleiðsla á vörum fyrir fólkið. 

Ekki leift að nota lyfin sem læknuðu, ivermectin best, og D-vítamín. 

3.

Þá kom stríðið, gerð stjórnarbylting í Kænugarði, Kiev.

Ný stjórn vildi taka ráð af Rússum í einu íslausu herskipa höfninni Sevastopol á Krím, sem Rússar höfðu ráðið að minnsta kosti frá 1783.

Til samanburðar fengu Bandaríkjamenn ráð yfir Flórída um 1821. 

4.

Það sýnist sem gamla stjórnsýslan sé að missa völdin og þá yfir bönkunum. 

Og nú virðist að vilji sé til að koma á heimsstríði. 

Við höfum lesið að einhverjir vilji fækka fólkinu um 90%. 

Alls ekki stefna á áð koma öllu í vandræði. 

Laga allt. 

Ekki er um annað að ræða en nota Mandela aðferðina. 

Og, láta karlinn með skeggið um að kenna hverjum og einum.

000

Kosningar í Úkraínu fara eftir tungumáli og landsvæðum.... - jonasg-egi.blog.is 

https://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2277474/

Við, heimskan hefur murkað lífið úr óbreyttum borgurum þar... - jonasg-egi.blog.is

 https://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2277804/

 Egilsstaðir, 14.04.2022   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 14.4.2022 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418159

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband