Leita í fréttum mbl.is

Skelfing

er að vita að ekki sé hægt að semja strax um það óhjákvæmilega í Úkraínu að Púrín fái afhenta Azovströnd og inn í Svartahaf. Spara öll þessi mannslíf og eyðileggingu  sem í gangi er. 

Frekari hetjuleg andspyrna Zelenskyys frestar aðeins því sem verður stríði gegn margfalt öflugra ríki. Mátturinn er Rússlands megin. Samningar eru eina leiðin með hagsmuni fólksins fyrir augum.

Þetta er skelfing til að vita.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Heiðra skalt þú skálkinn".

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 4.5.2022 kl. 11:29

2 identicon

Fjölmörg dæmi sanna að öflugra ríki er engin trygging fyrir sigri. Gamla Sovétið þurfti frá að hverfa með skottið milli lappana gegn Afgönskum óvini sem ekki þótti líklegur til mikilla afreka. Sigur Rússa er ekki eins vís og aðdáendur Pútíns halda og virðist fjarlægjast með hverjum deginum.

Margir telja að herstyrkur Rússa hafi verið gróflega ofmetinn. Og það er augljóst að Rússar vanmátu andstæðinginn og viðbrögð annarra ríkja all verulega. Það er ekki útilokað að Rússar missi öll svæði sem þeir hafa hertekið og að Krímskaga verði skilað til Úkraínu. Skaðabæturnar sem Rússar þurfa svo að greiða auk stríðsglæparéttarhaldanna sem fylgja í lokin eru svo sér kafli.

Vagn (IP-tala skráð) 4.5.2022 kl. 19:29

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Þessi færasla, það er viðhorfin sem hún tjáir, benda eindregið til æsku, þar sem saga, reynsla hennar eða lærdómur, sé síðuhöfundi algjörlega óþekktur.

Ég á samt tvo næstum því 18 ára stráka sem bæði lesa sér til, þar með þekkja til staðreynda sögunnar.

Eftir stendur spurningin Halldór, hvað fékk þig til á gamals aldri að mæra innlimun Austurríkis og Stúdetahéruð Tékkóslóvakíu??

Þar hélt ég að maður rifist ekki um lærdóm sögunnar.

Eða kóaði með henni.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.5.2022 kl. 19:42

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þú heldur að Pútín hætti bara, fái hann þetta sem þú nefnir? Hvað um Transnistriu sem hann er þegar byrjaður að nota til að tæta Moldóvíu í sundur og leika sama leikinn þar og í Donbass?

Churchill varaði við því að telja að það myndi duga að henda smáríki (Tékkóslóvakíu) í ginið á úlfinum og telja að hann myndi bara hætta að leita sér að nýrri bráð eftir að hafa rifið í sig þá síðustu.

Pútín er að gera það sama og Hitler gerði þegar hann notaði þýskumælandi minnihluta til að réttlæta yfirgang í nágrannalöndunum.

Theódór Norðkvist, 5.5.2022 kl. 01:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418215

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband