Leita í fréttum mbl.is

Hósíanna fyrir kvótakerfinu !

 

Hversvegna á ég að kosta starfsemi Hafró ? Þeir eru að rannsaka auðlind sem aðeins hluti þjóðarinnar á. Hversvegna á ég að kosta hafnabætur fyrir þessa menn ? Hversvegna á ég að reka sjómannaskóla fyrir unga menn til að verða þrælar hjá þessum aðli ?

Upphaflegi og yfirlýsti tilgangur kvótakerfisins var að byggja upp fiskistofnana undir eftirliti Hafró. Hvernig finnst mönnum árangurinn vera  frá 1984 ? Jú Samherji er orðið alþjóðlegt fyrirtæki sem getur gert það sem honum sýnist hvar sem er og hvenær sem er. Ekki hafði hann mikinn móral þegar hann keypri Gugguna og sveik allra fallegu yfirlýsingarnar. Eru Flateyringar eitthvað hissa ? Af hverju senda þeir ekki Einari Oddi bænarskjal ? Eða Einari K ? Fá þá til að útskýra hvervegna kvótakerfið sé besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi . Eða bara Hannes Hólmstein ? Þessir kallar vita allt um teóríuna fyrir því að byggðir eigi bara að vera þar sem kvótaeigendunum hugnast.

Fyrir daga kvótakerfisins var jafnstöðuafli í þorski um 400.000 tonn. Með Tjallanum uppi í kálgörðum.

Nú með Hafró og þessu battaríi af seiðatalningamönnum er ekki óhætt að veiða nema rúm 100,000 tonn án þess að rústa stofninum.  Hefur verið veitt svona miklu meira ? Sumir halda það að verksmiðjutogararnir hendi 3 fiskum af 4 fyrir borð af ýmsum ástæðum. Svo er vigtarsvindl, faktúrufals osfrv. Allir samsekir og steinþegja auðvitað.

Besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi segir Hannes Hólmsteinn og hann hlýtur að vita þetta. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það er greinilega eitthvað mikið að. Brottkast, viktarsvindl, o.fl. 

Getur verið að Dr. Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur hafi rétt fyrir sér þegar hann hamrar á kenningunni um úrkynjun vegna rangrar veiðiaðferða?

Ágúst H Bjarnason, 4.6.2007 kl. 08:50

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ef kenning Dr. Guðrúnar Marteinsdóttur er rétt, (hún heldur því fram að við landið séu í það minnsta 35-36 þorskstofnar sem blandast ekkert innbyrðis  . Þetta telur hún sig hafa sannað með DNA rannsóknum) þá gefur það augaleið að meira er sótt í stærri tegundir sem gefa hærra verð. 

Þetta eru vísndi sem ég treysti mér ekki til að tjá mig um.      Hitt er jafn öruggt og að vatn leitar niður halla (nema það sé gufa eða ís)  að aflamark á skip leiðir til þess að verðminni fiski (smáfiski) er hent.  Snuðrar á vegum Fiskistofu breyta engu þar um.  Halldór, af því að þú varst að tala um opinbert fé.  Launagreiðslur til þessara snuðrara kosta nú um 1. milljarð árlega!  Fróðir menn segja mér að engu myndi breyta þó fjármunir til eftirlitsiðnaðarins yrðu margfaldaðir. Kvótaverðið er einfaldlega of hátt til að hægt sé að koma með ódýran fisk að landi.

Sigurður Þórðarson, 6.6.2007 kl. 22:20

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir skrifin Ágúst frændi og Sigurður

Það er mikið notað sem röksemd fyrir kvótakerfinu að nú eigi kvótann menn sem hafa keypt hann á markaði. Það eruðvitað rétt. Nú þegar blasir við að þarf að minnka kvótann verulega, þá hefur heildarverðið rýrnað og hlutur hvers og eins.

Ef ráðherra tæki nú þessa stofnun sína Hafró einu sinni hátíðlega og gerði nú einu sinni eitthvað raunhæft fyrir þorskinn, léti hann njóta vafans og skæri kvótann niður í 60000 tonn. Þá kæmi nú hljóð úr horni, þetta væri hætt að borga sig osfrv.  Verð á kvótanum myndi trúlega lækka. Gætu menn þá ekki boðið Seðlabankanum að innleysa kvótann fyrir sanngjarnt verð Þannig kæmist kvótinn aftur í eigu ríkisins og Einar Kristinn gæti sent byggðakvóta til Bolungavíkur. Þannig er hægt að komast útúr þessu aftur, lá þjóðina kaupa eign sína til baka og borga kvótagreifunum með pappír eftir nánari úrfærslu

Halldór Jónsson, 8.6.2007 kl. 08:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418192

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband