Leita í fréttum mbl.is

Þjóðaratkvæðagreiðslu um Reykjavíkurflugvöll í forsetakosningunum í sumar !

 

Atkvæðagreiðsla hennar ISG um Reykjavíkurflugvöll var algerlega ómarktæk, þegar jafnt var hérumbil með og á móti Reykjavíkurflugvelli með  þriðjungsþáttöku fólks.  Ennþá stórkostlegra var að heyra hana lýsa yfir því að nú hefðu borgarbúar talað og niðurstaðan væri bindandi, þó svo hún hafi sagt áður að helmingsþáttaka væri lágmark fyrir viðunandi niðurstöðu.

Auðvitað hlýtur þjóðin að hafa um framtíð Reykjavíkurflugvallar að segja, ekki bara Reykvíkingar. Sé Reykjavík höfuðborg þá hlýtur hún að vera höfuðborg allra landsmanna og koma þeim við sem slík.  Keflavík getur sjálfsagt líka tekið við þessu höfuðborgarhlutverki ef Reykvíkingum leiðist það svona mikið.

Í Keflavík er einn flugvöllur góður og annar sem getur orðið mjög góður með lítilli fyrirhöfn. Patterson völlinn gamla er auðvelt er að gangsetja fyrir brot af því sem bara þrasið um Reykjavíkurflugvöll hér eða þar er búið að kosta. Áður en nokkur völlur á Hólmsheiði eða Lönguskerjum hefur verið  byggður í staðinn.

Ég er farinn að hallast að því að það sé best að drífa þetta af, loka Reykjavíkurflugvelli og fara á Patterson með allt annað flug en millilandaflug. Þetta þras og aðgerðaleysi er svo stórkostlegur dragbítur á alla þróun nútíma efnahagslífs. Að mega ekkert gera á Reykjavíkurflugvelli, hvorki stórt né smátt, vegna þess að það er ekki búið að klára eitthvað rifrildi um tilvist vallarins, heldur lífskjörum þjóðarinnar beinlínis niðri. Einskonar Catch 22. Eða láta pattstöðu í skák orsaka endalok skáklistar.  

Klárum það bara strax og förum burt ,ef það er vilji fólksins í landinu. En ég vil heyra í því fyrst, ekki bara hlusta á þessa sjálfumglöðu sleggjubranda, sem bara rífast og rífast með engri niðurstöðu ár eftir ár.

Okkur býðst gullið tækifæri að klára þetta mál samhliða forsetakosningunum á sumri komanda. Kosning, sem kostar sáralítið að gera.  Til hennar mætir þjóðin öll og er ekki að efa að hún er fús að segja álit sitt  á framtíð Reykjavíkurflugvallar.  Með afgerandi niðurstöðu getum við sparað þjóðinni stórkostlegar fjárhæðir og jafnframt bætt lífskjör komandi kynslóða. Hætt að þrasa og byrjað að vinna að framfaramálum landsmanna.

Ekkert patt verður á Patterson flugvelli þó að við vallarvinir töpum orrustunni um Reykjavíkurflugvöll. Þarna suðurfrá er víðáttan, frelsið og flugskilyrðin.  Ég mun persónulega einskis manns sakna úr Borgarstjórn Reykjavíkur, þó að auðvitað syrgi ég Reykjavíkurvöllinn minn kæra enda alinn upp við hann og lifað með honum allan minn aldur og verið þar hamingjusamur.

Síðasta flugtakið mitt færist  óðum nær. En  en það verður væntanlega upp um skorsteininn á Fossvogskapellu. Vonandi verður þá hægur sunnanblær og ennþá sólskin yfir Reykjavíkurflugvelli.

Notum tækifærið sem okkur býðst í sumar og greiðum atkvæði um þetta mál í eitt skipti fyrir öll.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Elsku besti vinur minn, vonandi er langt fyrir ,,take of" upp ú rskorsteininum í Fossvogi.  Verðum að hafa séns að rífast nokkuð lengur um hvaðeina, meira svona eins og góðra vina er vísa.  Landsfundir eru margir á dagskrá, margt að gera og enn meira fyrir stafni.

Við verðum svosem báðir patt þarna suðurfrá á Patterson.

Þú mátt ekki verða eins og þeir í Evrópusambandinu, að vilja bara kjósa og kjósa, þangaðtil, að ,,re´tt" niðurstaða er komin en vilja eftir það ekkert kjósa um eitt né neitt.

vinarkveðjur

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 11.1.2008 kl. 13:50

2 Smámynd: Sturla Snorrason

Ég vil ekki gefa tommu eftir í þessu flugvallar máli, kannski er lag núna þar sem skipulagsmálin eru í algjöru uppnámi í ráðhúsinu.

Þeir virðast ekki þora að birta niðurstöður úr  Vatnsmýrasamkeppninni. En þar sem Sundabrautin og niðurbrot í gamlabænum er heitast í dag, væri hugsanlega möguleiki að opna umræðu um nýjan miðbæ við Elliðaárósa, þá færu mann að horfa á Höfðann, Súðarvoginn og Geldingarnesið sem byggingarland.

Sturla Snorrason, 16.1.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418209

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband