Leita í fréttum mbl.is

Gott viðtal við Ólaf borgarstjóra.

Viðtal Kolbrúnar Bergþórsdóttur við Ólaf F. Magnússon, borgarstjóra, í 24 stundum í dag var einkar ahyglisvert. Þar birtist Ólafur okkur eins og hann er. Yfirvegaður maður með ákveðnar skoðanir, sem leynir engu.  Hann hefur  þann grunskilning á því hversvegna hann er í pólitík, sem marga stjórnmálamenn skortir tilfinnanlega.

Í ljósi þessa er mér ómögulegt að skilja hvað hún  Margrét Sverrisdóttir er að hugsa. Hversvegna hún vill ekki hjálpa Ólafi að vinna að þeim málum, sem þau voru bæði kosin til ? Hverju skyldi hún ætla að ná fram í slagtogi með vinstriflokkunum á hliðarlínunni ? 

 Ég hélt að fólk væri í pólitík  til þess að hafa hámarksáhrif.  Líklega hefur hún hlustað á vond ráð sem drifin eru áfram af særðum tilfinningum í hita leiksins.   Allir geta stokkið uppá nef sér. En skynsamt fólk áttar sig oft þegar móðurinn rennur af því. 

 Ég vil ekki trúa því á Margréti að hún hugsi ekki sinn gang í pólitíkinni. Heldur ætli hún að hanga eins og Damoklesarsverð yfir fólki sem er búið að setja fram stefnumál sín, sem mörg eru hennar eigin stefnumál.  Varla  hefur hún breytt öllum stjórnmálaskoðanum sínum ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Hulda

Já það er óhætt að segja að maður sé hálf ringlaður ......í hvaða flokki er Margrét og í hvaða flokki er Ólafur? Afhverju er Íslandshreyfingarfólkið í nefndum fyrir F-lista (sem ég hélt að væru Frjálslyndir) en vill samt ekki vinna fyrir Ólaf?

Er Ólafur í Íslandshreyfingunni?

Þetta hljómar eins og í Bold and the Beautiful.....kannski þau ættu bara að kalla sig það? 

Guðrún Hulda, 26.1.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hæ Guðrún vinkona

Satt að segja botna ég ekkert í þessum hreyfingum öllum. Ef einhver er í Íslandshreyfingunni þá hlýtur Ómar Ragnarsson að vera sá sem talar fyrir hana sem formaður. Aldrei þessu vant heyrsit bara ekkert í honum. Ég held að við verðum því bara að horfa á fólkið sjálft og stöðu þess til þess að meta möguleikana.

Halldór Jónsson, 27.1.2008 kl. 23:54

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mikið til í þessu hjá Guðrúnu. Margrét er kominn með annan fótinn í Samfylkinguna en kemst ekki með hinn enda fær Íslandshreyfingin 12 milljónir á ári úr ríkissjóði.

Sigurður Þórðarson, 20.2.2008 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 3418205

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband