Leita í fréttum mbl.is

Bílabullur

Mótmæli bílstjóra hafa staðið nokkra daga. Vegfarendur láta sér í léttu rúmi liggja og segjast styðja mótmæli gegn benzínokri stjórnavalda. Bravó og hósíanna. Allt saman rétt.

 

En þetta er bara Ísland.

 

Og víst er að í Bandaríkjunum kostaði benzinlítrinn 54 kr fyrir gengisfallið en hér 140,-hérumbil pí sinnum dýrari.  Þar kostaði líka vodkalítrinn á sama tíma 357 krónur . En hér í ÁTVR  guðmávitahvað mörgum pí sinnum meira.

 

Og varan í Bónus kostar líka pí sinnum meira en í ValMart. Þetta vita allir en enginn segir neitt af því að Jói er svo góður og gefur úr pokasjóði sínum.

 

Og allir vita líka að það er stórskaði að innlendri kjúklinga og eggjaframleiðslu og myndi mikill gjaldeyrir sparast ef þetta yrði allt saman lagt niður og flutt inn. Og svínakjötið líka. Mikið vinnuafl myndi losna til hagnýtra starfa fyrir þjóðfélagið og bankana.

 

Hverju eru þessir bílstjórar að mótmæla ?

 

Ætli þeir séu í vandræðum með að borga af lúxusbílum sínum vegna minnkandi atvinnu eftir að hafa boðið niður keyrsluna hvor fyrir öðrum allt góðærið á enda og standa nú uppi með tóma kassa og ekkert að gera ?  Hrukku tekjurnar ekki fyrir greiðslu vaxtanna af bílalánunum ?  Voru bílarnir kannske og dýrir fyrir það sem inn kom fyrir keyrsluna ?

 

Mér hefur sýnst í gegnum tíðina að margir amerískir trukkar séu   með minni íburði en þær kerrur sem Íslendingar kaupa mest og  keyra.  Og eru þá ódýrari líka.   En svoleiðis hagfræði skilja fæstir Íslendingar og þá vörubílbílstjórar væntanlega meðtaldir með gljáfægða lúxusana í baksýn. 

 

Væri þeim ekki nær að berjast fyrir þróun rafbíla og minnka eitthvað við sjálfa sig lúxusinn og íburðinn um leið.

  Nú í nýtilkynntri kreppu  finna vörubílstjórar  uppá því að þeir geti grætt meira á keyrslunni ef minna fari í olíuna. Eða þá að þeir geti boðið keyrsluna enn lægra niður ef gyllinæðaaðgerðir og vöðvabólgunuddið, sem menn fá af því að stunda langsetur við bílstýrin, verða greiddar af einhverju öðru en benzíngjaldinu sem ríkissjóður leggur á.  Ætli þeim hugnist betur hækkun þungaskatts  á bílana þeirra, sem margir  segja að borgi hvergi nærri sanngjarnan hluta í vegaslitinu ? Það má alveg breyta gjaldstofninum fyrir þá þannig að þeir geti verið ánægðir með einhverja lækkun á pumpuverðinu.   

Íslenzka ríkið, sem þessir menn tilheyra líka, þarf auðvitað mikla peninga til að reka heilbrigðiskerfið, þar sem rándýrir læknar starfa með öðru láglaunafólki. Það þarf líka að borga hjörð af kennurum til að kenna börnunum okkar að lesa og reikna.  Ekki eru allir ánægðir með árangurinn af þeirri starfsemi. Getum við þá ekki bara lagst þversum á plateoris og krafist þess að börnunum sé kennd margföldunartaflan fyrir lok 10.bekkjar ? .

 

Og  svo væla öryrkjar og gamlingjar allstaðar yfir bágum kjörum sínum. Skelfing að horfa uppá alla þessa eymd og auraleysi allstaðar..

 

Hver á að borga þetta allt ?  Sjúkrahúsþjónustan er ókeypis. Skólarnir eru ókeypis og við hreykjum okkur af því í daglegu tali. 

 

En er þetta svo ? Ekki sagði Milton Friedmann að til væri ókeypis hádegisverður. Hvaðan skyldi ríkið fá alla þessa peninga ?

 

Á sama tíma kvarta bílstjórar  yfir sprungnu gatnakerfi. Það vanti tvöföldun og mislæg gatnamót þar, jarðgöng hér og brú þarna og jafnvel nýjan veg yfir Öxi. Ætli  þessar bílstjórar viti hvernig á að borga þetta allt saman ?  Ætli þeir séu alltaf jafnflinkir við borga og eyða ?

 

Eigum við vínsvelgir kannske að leggjast þversum fyrir dyr áfengisverzlunarinnar svo að enginn komist  á fyllerí fyrr en ríkið lækkar vodkað til jafns við Bandaríkin ? Hvort græðum við  drykkfelldir meira á slíkri vínlækkun en hófsemdarmaðurinn ? Allaveg myndi ríkið  græða  minna. Ættu bindindismenn ekki að greiða sérstakan bindindisskatt til að jafna metin ?

 

Til hvers erum við að kjósa Alþingi til að ráða skattlagningunni og eyðslunni í þessa málaflokka ef einhverjar menn á egóflippi  geta ráðist til atlögu við þjóðfélagið og tekið það í gíslingu vegna þess að þeira hafa aðrar meiningar um hagstjórn  en Geir Haarde og

hans menn ?

 

Kaus ég einhverjar bílabullur til að ráða skattlagningu eldsneytis fremur en  öðrum málum fyrir mig  ?

 

Það horfir illa með lýðveldið okkar  ef svona  skríll,  margnefnt  “Alþingi Götunnar “,   getur tekið  völdin í landinu með samþykki lögreglunnar útaf hverjum tittlingaskít sem þeim dettur í hug hverju sinni.

 

Þorgeir Ljósvetningagoði sagði að við skyldum hafa ein lög í þessu landi,-. annars myndi illa fara. Ég held að hann hafi haft rétt fyrir sér kallinn.  

Þetta er hætt að vera sniðugt. Það á að handtaka þessa menn og láta þá sæta ábyrgð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll kæri tengdafaðir

Alltaf  sama bjartsýnishjalið hjá þér. 

Þetta eru einmitt afar skemmtileg mótmæli sem fengu óvænta stefnu þegar 4x4 meðlimir fór að taka þátt í þeim af mikilli hörku. 

En ég hélt að   Þetta væru hagsmunasamtök þeirra sem eru með það skemmtilega áhugamál að fara upp á fjöll og fáfarnastaði sem eru illfærir öðrum farartækjum. Sem sagt þetta er frístundaklúbbur.

Eftir að atvinnubílstjórar hættu að stöðva inn og útakstur hjá ODR í dag héldu þessir frístundamenn áfram að hefta aðgang verktaka og annara sem vantaði olíu í dag. Með samúð margra og skilningi margra.

En ætli okkur þætti í lagi ef t.d. gólfarar eða skíðamenn tepptu göturnar eða atvinnulífið ef þeir þyrftu að borga hærri skatta af þeirri aðstöðu sem þeir eru að nota.

Held ekki.

kveðja 

Guðrún Atladóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 16:40

2 Smámynd: Níels Bjarki Finsen

Heyr! Heyr!

Kv.
Níels

Níels Bjarki Finsen, 8.4.2008 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband