Leita í fréttum mbl.is

Grunaði ekki Gvend !

Ég heyrði ekki betur en að Glitnir viðurkenndi að hafa tekið stöðu gegn krónunni á dögunum. Davíð var búinn að impra á þessu en enginn vildi ræða það af því að vondi vaxtakallinn sagði það.

Bankarnir felldu gengið fyrir okkur með því að massa gjaldeyrinn. Til þess að geta sýnt góða afkomu á fyrsta fjórðungi og þeim næsta.  Svo skrúfa þeir fyrir lánin til að skapa paníkk hjá almenningi og fyrirtækjum svo hann byrji að heimta þjóðarhjálp fyrir bankana . Svo mikla paníkk tekst þeim að búa til, að ríkisstjórnin hleypur til og byrjar að tala um  að  ráðstafa skattfé almenning til að rétta bankaeigendunum.  En Gvendi gæti fundist  þetta vera samsærismenn   og tilræðismenn  við efnhagslíf landsmanna, sem ekki ættu slíkt endilega skilið. Og tíminn læknar margt af sjálfu sér og líklega bjarga bankarnir sér sjálfir þar sem hlutirnir virðast vera að róast. Oft er betra að flýta sér hægt.    

Áður voru þeir í bönkunum að sprengja allt efnahagslífið í loft upp með 100 % lánum til fasteignakaupa þegar þeir ætluðu að drepa íbúðalánasjóð fyrir okkur. Þetta skeði  samtímis hér og í Bandaríkjunum.   Núna  réðust þeir að genginu og að lífskjörum almennings beint. Setja kjarasamningana í uppnám og koma verðbólgunni af stað í tveggja stafa tölu.  Svo þykjast þeir vera blásaklausir og stjórnarandstaðan skammar ríkisstjórnina fyrir slaka efnahagsstjórn. 

 Bráðum fara  einhverjir  í byggingariðnaði og einhverjir skuldsettir íbúðareigendur  á hausinn. Þá eignast bankarnir  íbúðir sem þeir geta svo farið að selja á yfirverði með gylliboðum um löng lán sem fólk fellur fyrir. Telja okkur um leið  trú um að þeir séu vinir alþýðunnar til þjónustu reiðubúnir, með heilsíðuauglýsingum og gjöfum á brauði og fótboltaleikjum.  Fái þeir svo að vaða í lífeyrissjóðina með bréfin sín þá skuli þeir verða voða góðir aftur og ekki hrekkja okkur í bráð.  Muna ekki allir hvernig  gömlu  hrekkjusvínin voru á okkar ungu dögum ? Það varð að kaupa friðinn af þeim nema þú réðir við þá.

Ragnar Önundarson lét  í ljósi efasemdir um það, að núverandi eigendur bankanna hefðu staðið á nægilegu siðferðisstigi þegar þeim voru afhent innlán almennings, sem þeir notuðu umsvifalaust  til að leggja í vogunarbrask.  Nú ætla þeir sem sagt að ráðast á lífeyrissjóðina með þessum peningum sömu eigenda.  Sagði ekki Ragnar líka að okkur kynni að vanta nýja eigendur að bönkunum ? En eru einhverjir aðrir í boði  en Bónusar- og Björgólfsfjölskyldan eða  Bakkavarar- og Kaupþingsgengið  ? Eru einhverjir samkeppnismöguleikar eftir yfirleitt ?

Glitnir ætlar að reyna að leggja undir sig Sparisjóðinn BYR og Kaupþing ætlar að gleypa SPRON. Ég held að þessir samrunar séu eins og Adam Smith vissi mætavel ,  bara til eins ætlaðir: Screw the public ! Mér finnst þetta sífellda tízkutal  um hagkvæmni stærðarinnar vera fremur kaldhæðnislegt en hitt.  Smásíld eins og mér finnst ágætt að vera í viðskiptum við lítinn banka og traustann.  Ég kann ekkert við mig í einhverjum risahvelfingum,  þar sem ég þekki öngvann mann.  Þessvegna sé ég eftir Sparisjóðunum  ef þeir lenda í hákarlskjöftunum. Ég minnst líka gullnu reglu Murphys sem hljóðar svona: Sá sem hefur gullið býr til reglurnar.  Það skildi Einar Þveræingur að minnsta kosti.

Minni almennings er hinsvegar stutt. Flestir virðast búnir að gleyma því þegar kortafyrirtækin urðu uppvís að skipulagðri glæpastarfsemi gegn almenningi og voru sektuð um einar 800 milljónir. Þau eru búin að auglýsa sig uppí ímynd miskunnsama Samverjans síðan þetta var og eru nú allra vinir í þjónustu við þig.  Enn halda þessi sömu greiðslufyrirtæki hinsvegar  áfram að innheimta seðilgjöld þrátt fyrir úrskurði um ólögmæti þeirra.

Vonandi gleyma menn ekki jafnhratt stóru bönkunum  fyrir þá  þaulskipulögðu aðför að efnahagslífi þjóðarinnar, sem þeir gerðu nú síðast.  Einhverjum gæti fundist  fremur ætti að  hengja þá  heldur en að verðlauna með allsherjarblóðtöku úr þjóðarlíkamanum í formi stórfelldrar skuldsetningar landsins.   Ef til vill lætur  Davíð ekki sitja við orðin tóm og tugtar þá til áður en þetta verður. 

Svo getur Gvend líka grunað , að þetta sé bara allt eitt allsherjarleikrit, þar sem mun fleiri handritshöfundar koma að en bara bankarnir.  Minnst orða Hamlets , um að það sé eitthvað rotið í  Danaveldi.  Kannske þurftum við bara að fá á einn á snúðinn til að ná okkur niður af eyðslufylleríinu ? Hægja aðeins á ferðinni.

Benzínið er líklega hækkað til lengri tíma og matarverðið líka. Lífskjörin hafa versnað . Þessvegna verður bæði að spara og vinna meira. Því grunar hann Gvend að lausnin sé :

Álver á Bakka og Helguvík sem allra fyrst og ikke noget kjæfteðe. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þú ert svo fjári minnugur, Halldór! En ég er sammála þér með sparisjóðina og skil ekki af hverju þeir mega ekki vera það sem þeir hafa alltaf verið. Einkavæðing SPRON fór nú ekki vel, eða lítur alla vega ekki vel út á pappírunum, þó vafalaust hafi einhverjir grætt á því braski og þá væntanlega á kostnað almennings. Líklega verðum við að endurvekja gullgröftinn til að bjarga þjóðarbúinu þegar allt um þrýtur..... Og álverin þurfum við og landflutningana út á sjó, eins og einn ágætur stjórnmálaflokkur hefur nú haft á stefnuskrá sinni í hartnær 10 ár án þess að hafa aðhafst mikið þrátt fyrir langa stjórnarsetu.... En mig grunar nú að Gvendur sé nú ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu svona almennt, en vilji kannski frekast vita hvar Davíð keypti ölið..... og kaupir kannski enn....?

Ómar Bjarki Smárason, 8.5.2008 kl. 23:06

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Það voru nú líka bankarnir sem gerðu atlögu að Ískr hérna um árið var það ekki á haustmánuðum 2002?

Þá sagði Davíð, að menn vissu hverjir stæðu að baki þessu og þá kipptu bankarnir að sér höndunum, eftir að hafa hækkað allar skuldir heimilana með Verðtryggingarstuðlum upp um stórar upphæðir og fært itl bókar sem ,,EIGN"

Ég hef ekki verið upprifinn af nýufrjálshyggjunni og bent á að frjálshyggju prestarnir hafi nánast ritskoðað grunnritin í fræðunum og tekið út öll varnaðarorð til stjórnmálamanna og yfirvalda um, að Markaðurinn drifinn af gróðavon færi ÆTÍÐ í græðgis-stillingu og því BÆRI AÐ STJÓRNA þeim leiksviðum, sem ,,leikarar" mega athafna sig á.

Ragnar aftur þekkir fræðin ómenguð og varar við, að hætti valinkunnra ágætismanna.

SVo mega menn bara kalla mig gamaldags Íhald, ég er það og er stoltur af því.

Miðbæjaríhaldið

Stolt Íhald af hinni þjóðernissinnuðu sortinni

Bjarni Kjartansson, 15.5.2008 kl. 09:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband