Leita í fréttum mbl.is

Ljónsöskur !

 

Þó að nú sé dökkt yfir og hver tali annan niður, þá er kannske í  rauninni svo, að það vanti aðeins að einhverjar stóriðjuframkvæmdir fari í gang á Íslandi til að kreppan svífi undan eins skjótt og hún kom. Við höfum allt til alls til taks, hendur, hausa, tæki og tól. Úrræðaleysið gegn vá sem við festum ekki hendur á er það versta. Ef við fyndum kröftum okkar stað myndi margt breytast fljótt.

Það er því miður enginn  replay-takki á tilverunni. Bankarnir hrundu og þetta er bara svona.Íslandsbanki fór líka á hausinn fyirr löngu og menn náðu sér af því. Maður er auðvitað beyglaður þegar markaðshagkerfið fær svona á snúðinn og upp koma nefndir og skömmtunarráð styrjaldarökónómíu. En það skiptir miklu að forystan hviki hvergi því það væri glapræði að fara að skipta um hest í miðri ánni.  Mér þótti miður að heimkomin hafði frú Ingibjörg Sólrún ekki annað að segja við Geir Haarde:  Fyrst í IMF og svo beint í EBE.  Var þetta útspil ekki alveg  í það minnsta á pari við sjónvarpsviðtal Davíðs ?  Það ríður á öllu að ríkisstjórnarsamstarfið haldi heilindum og að einstakir aðilar séu jafn yfirvegaðir í orðum og þeir Geir og Björgvin-, já og Össur hefur bara staðið sig nokkuð líka.

Sem betur fer erum við Íslendingar ekki með Evru um þessar mundir. Þá fyrst væri komið hér erfitt ástand með allt þetta fók úr fjármálageiranum atvinnulaust.  Nú getum við notað krónuna til að örva efnahagslífið sem við gætum ekki með sífelldum evruskorti. Það er skelfilegt að hlusta á  Jón Baldvin þylja ESB þuluna sína og rakka niður landið og krónuna eins og Egill Helgason lét hann gera í dag. Það er akkúrat ekkert gagn í ESB umræðum eins og á stendur. Af hverju má ekki spyrja Jón Baldvin hvað hann leggi til að gera núna í efnahagsmálum, annað en að reka Davíð ?  

Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það væri hægt að gera árið 2009 að afborgunarlausu ári  hjá Íbúðalánasjóði og setja þá gjaldaga afturfyrir á höfuðstólinn. Bara svona til að reyna að glæða fólk von og bægja frá kvíðanum sem hrjáir unga fólkið sem veit ekki hvort það heldur húsnæðinu. Það er þjóðarnauðsyn að ekki verði gengið að fólki við þær skelfilegu aðstæður sem sköpuðust við fall bankanna, þar sem heilu stórfjölskyldurnar eru í uppnámi.

Til viðbótar að sveitarfélög breyti villuhverfunum, þar sem innskilaðar lóðir hrúgast upp,  og skipuleggi ný smáíbúðahverfi þar sem lóðir verða látnar í té, jafnvel  niðurgreiddar með greiðslufresti í því skyni að fólkið fari aftur að nota eigin hendur við að bjarga sér í stað þess að reyna að græða fé á  tölvuskjáunum. Það væri dásamlegt fyrir marga að komast í að skafa timbur og klippa járn með vinum og kunningjum eins og var í mína ungu daga, með vonina og bjartsýnina fyrir framan sig.  

Fólkið vantar von fyrir stafni og nýjar lendur að nema. Landið er enn fagurt og frítt og við kunnum svo ótalmargt og getum ef við leggjum saman.

Churchill sagði að það hefði verið sitt hlutverk á stund neyðarinnar, að stjórna öskrinu frá ljónshjarta þjóðarinnar.  

Ljónsöskur er það sem íslenzka þjóðin þarf núna ! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Það sannast því miður vera botnlaust fyrirhyggjuleysi að þið Evrópuandstæðingar skulið hafa komist upp með að standa í vegi þess að við gerðumst þjóð með öðrum Evrópuþjóðum og tryggðum sjálfstæði okkar og fullveldi með fullri þátttöku í því efnhagslega varnarbandlagi sem ESB er. 

Helgi Jóhann Hauksson, 20.10.2008 kl. 01:25

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll frændi. Mér líst vel á tvær tillögur sem koma fram í pistlinum, þ.e. að fresta afborgunum og vöxtum af húsnæðislánum meðan það versta gengur yfir, og að gera fólki kleyft að vinna við sitt eigið húsnæði.

Í dag er unga fólkið orðið vant því að flytja inn í fullbúið húsnæðið með öllum innréttingum af bestu gerð. Bara tekin lán sem greidd eru á fjörutíu árum. Síðasta afborgunin á Sóltúni.

Fyrir nokkrum áratugum var ekki auðvelt að fá lán. Það þótti gott að fá víxil til nokkurra mánaða. Það stöðvaði fólk ekki í að eignast húsnæði, en munurinn var sá að unga hrausta fólkið vann sjálft við húsbyggingar á kvöldin og um helgar. Flutti síðan inn í húsnæðið "tilbúið undir tréverk" þ.e. án gólfefna og yfirleitt með gömlum eldhúsinnréttingum. Á nokkrum árum var síðan lokið við húsnæðið; parket komið á gólf, innihurðir og nýjar innréttingar. Þetta keypti fólk smám saman.  Ég held að fólki sem byggði sjálft finnist vænt um húsnæði sitt. Það er líka staðreynd að það er hægt að byggja miklu ódýrara á þennan hátt.

Ágúst H Bjarnason, 20.10.2008 kl. 06:34

3 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Auðvitað hljótum við að komast yfir þessa efiðleika, en það tekur tíma og kemur misjafnlega niður á fólki. Það skiptir miklu máli að vera bjartsýnn. Við erum vön að setja undir okkur hausinn og ganga á móti storminum, og vitum að öll él birtir upp um síðir.

Framundan er álver á Reykjanesi og jafnvel annað á Bakka. Jafnvel í Straumsvík ef Hafnfirðingar sjá að sér. Til að knýja þau þarf að virkja jarðvarma og vatnsföll. Nauðsynlegt er að sjá til þess að Íslendingar njóti forgangs við framkvæmdir. Ekki veitir af. Hver veit nema þessar framkvæmdir geti hjálpað verulega til að komast yfir erfiðasta hjallann. Ég er sannfærður um að svo verður.

Mikilvægt er að vinna vel úr málunum núna. Ég neita því ekki að ég hef nokkrar áhyggjur af ráðamönnum þjóðarinnar.  Stundum finnst manni sem vinnubrögðin séu ekki nógu góð og ekki nógu fagmannleg. Á svona tímum er auðvelt að gera dýrkeypt mistök.

Ágúst H Bjarnason, 20.10.2008 kl. 06:41

4 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Sælir aftur

Ágúst, það er margt rétt sem þú segir og ekki hef ég á móti að við réttar og vel ígrundaðar aðstæður séu reist álver til að nýta orkuna okkar sem við virkjum á vandaðan og skynsamlegan hátt af yfirvegun og nærfræni gagnvart öðrum verðmætum.

- En hætt er við að nú komi bakslag í álversáform þar sem ekki er nú bara afar erfitt um fjármagn til stórframkvæmda heldur hefur álverð nú hrapað um 37% á aðeins þremur mánuðum sem mun vera mesta lækkun sögunnar.

Næsta víst munu því álframleiðendur kippa að sér höndum um sinn. Stöðvun álvers- og virkjanaframkvæmda verður því sennilega enn eitt áfallið fyrir okkur vegna kreppunnar.

Helgi Jóhann Hauksson, 20.10.2008 kl. 10:53

5 identicon

  Ég á bágt með að sjá þig sem vongóðan og bjatsýnan ungan mann.  Ég hef þekkt þig í bráðum 30 ár og hef ekki enn kynnst þér í bjartsýniskasti er þetta kannski ritstuldur "Það væri dásamlegt fyrir marga að komast í að skafa timbur og klippa járn með vinum og kunningjum eins og var í mína ungu daga, með vonina og bjartsýnina fyrir framan sig" Eða ertu orðinn svona skáldlegur með árunum.  Mig hlakkar til að sjá þig skafa timbur hjá Pétri.

kveðja uppáhalds tengdadóttir þín 

Guðrún Atladóttir (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 17:29

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk Ágúst frændi. Það virðist nú samt vera þannig að eigi að virkja eins og Kárahnjúka þá liggur svo á að það verður að flytja inn þúsundir Kínverja til að verkið gangi sem allra hraðast. Stóriðjan er bara þannig. En það eru margfeldis´æahrifin sem hafa lag á að snúa öllu í brjálaða þenslu eins og við þekkjum.

Helgi Jóhann, álverð gengur alltaf í bylgjum sem má líkja við sínuskúrfu. Alveg eins og steypuframleiðslan hér innanlands sem er alltaf mest um miðjan áratuginn og minnst um tuginn. Þessi lækkun álverðsins er bara eðlileg bylgjuhreyfing.

Já kæra tengdó Guðrún. Alltaf uppáhaldsjákvæð í gagnrýninni  á þá misskildu í veröldinni. 

 Ég tók nú of lítið á skóflu  hjá Pétri þegar hann var að jafna grunninn í Fjallalindinni. En við kláruðum verkið seint um kvöld. Ég hefði gjarnan viljað hjálpa meira til hjá honum ef eftir því hefði verið leitað,   Því hann Pétur litli var , að öðrum alveg ólöstuðum,   nú aldeilis drjúgur í spýtunum þó ungur væri þegar við hjónin byggðum við húsið fyrir tæpum 30 árum þó ég muni varla eftir einhverju bjartsýniskasti hjá mér eða þér .   

Við fjölskyldan bæði skófum og hreinsuðum, lögðum járn og steyptum þá og kofinn stendur enn. Og mig minnir að við höfum bara átt góðar stundir í garðinum við þetta.

 Eg er sjálfur  auðvitað  orðinn gamall fauskur  og þú teldir mig sjálfsagt til lítils ef þú værir að byggja nema þvælast fyrir í dag.  En  ég er alveg til í að skafa eitthvað fyrir þá í fjölskyldunni  sem þess kunna að þurfa með meðan ég ekki er verra en þetta.

Annars var ég að tala um stemninguna eins og hún var í gamla daga í húsbyggingunum, en það er hugsanlega fyrir þitt minni  .   

Halldór Jónsson, 20.10.2008 kl. 22:49

7 Smámynd: Katrín

Hressandi pistill Halldór!  Fátt er betra sálartetrinu en að horfa á fullgert verk gert með eigin höndum

Katrín, 20.10.2008 kl. 23:43

8 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll aftir Halldór frændi.

Það er enginn að tala um að virkja eins og Kárahnjúka, enda eru engir virkjunarkostir sem komast í hálfkvist í boði. Við þurfum því enga Kínverja í þúsundavís.  Eins og gengisskránngin er núna fáum við heldur ekki neina Pólverja þó við vildum.

Þar sem ég hef komið nálægt virkjanaframkvæmdum á áratugi veit ég að íslenskir iðnaðarmenn, og tækni- & verkfræðingar ráða mjög vel við slíkar framkvæmdir, ef þær eru í hófi. Hönnun, mannvirkjasmíði, járnsmíði, uppsetningu vélbúnaðar, raflagnir, smíði stjórnskápa og forritun stjórnkerfa...   Íslendingar hafa reynslu af þessu öllu.   Þess vegna verðum við að stýra þessum framkvæmdum þannig að ekki þurfi mikið að leita út fyrir landsteinana eftir vinnuafli. Mér þykir líklegt að eftir uppsagnirnar sem eiga eftir að dynja yfir á næstu vikum og mánuðum verði ekki skortur á íslensku vinnuafli.

Komi álverin og virkjanirnar, sem allar eru af viðráðanlegri stærð, í sæmilegri tímaröð ætti þetta að geta orðið okkur til bjargar. Við ættum að geta snúið vörn að einhverju leyti í sókn og fengið hjól atvinnulífsins til að snúast aftur. Við þurfum bara að passa okkur á að gera þetta rétt og fara ekki út í neina vitleysu.

Jafnvel þó álverð sé lágt og fari jafnvel lækkandi, þá mun það væntanlega hækka aftur síðar. Því ætti að vera lag fyrir álframleiðendur núna að reisa álver. Vinnuafl er sæmilega ódýrt og verð á aðföngum eins og málmum og stáli hefur farið lækkandi.

Nú er bara að bretta upp ermarnar

Ágúst H Bjarnason, 21.10.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 3418210

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband