Leita í fréttum mbl.is

"List Leiðtogans " ?

“List leiðtogans, sem miklir leiðtogar allra tíma hafa sýnt, felst í því að beina athygli þjóðar að einum andstæðingi og sjá til þess að ekkert komist að til að drepa henni á dreif.  Sé hinni  herskáu orku  fólksins  einbeitt að einu markmiði, þá ganga fleiri til liðs við hreyfinguna, dregnir þangað af segulmagni samræmdrar stefnu,  sem þannig fær meiri slagkraft. Hinn snjalli leiðtogi verður að hafa hæfileikann til þess að draga aðra andstæðinga í dilk með þessum eina óvini;  annars geta hinir hvikulu og reikulu meðal fylgismannanna farið að efast um réttmæti  stefnu hreyfingarinnar.  

 

Þessi skarplega athugun kemur í hugann þegar maður hugleiðir þann áróður, sem nú er uppi gegn Sjálfstæðisflokknum. Öll orka þjóðarinnar virðist  beinast  að þessum mikla Satan í þjóðlífinu. Hann einn skal vera ábyrgur fyrir öllu sem hefur á móti blásið.  Samferðamennirnir og samverkamenn Sjálfstæðisflokksins  hafa auðvitað hvergi að komið. Þeir reyndu aðeins án árangurs að þoka málum til betri vegar, en máttu sín einskis gegn ofurveldinu.  Honum og hans forystumönnum skal hengt og þeir skulu gjalda fyrir það sem á fólkin brennur.

 

Í krossfestingunni sjálfri er lausnin fólgin að dómi fjöldans.  En einmitt þá fær leiðtoginn lúmski  tækifæri til að koma ánauðinni yfir fjöldann og Barrabas verður frjáls.

 

Skoði menn málflutning þeirra sem hæst láta um þessar mundir, þá geta menn orðið hugsi.  Sérstaklega í ljósi sögunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Er þetta ekki sama tækni og hinn breski Mr. Jarpur beitti þegar hann beindi athyglinni frá innanlandsvandamálum  að íslenskum hryðjuverkamönnum um daginn?

Ágúst H Bjarnason, 4.11.2008 kl. 14:39

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll frændi,

Ekki sýnist mér honum af veita að klóra í bakkann. Ekki hefur Bretum vaxið trúa á Gamla Jarpi ef marka má síðustu fréttir.

En mér varð hugsað til ýmissa stjórnmálamanna okkar sem núna eru í vinsældakosningum. 

Halldór Jónsson, 4.11.2008 kl. 15:51

3 Smámynd: Katrín

Já nokkrar eru þær sem eru í vinsældarkosningum þessa dagana...eru það ekki einmitt þær sem ,,erfa skulu land" og veita forystu  í stjórnmálum morgundagsins

Katrín, 4.11.2008 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband