Leita í fréttum mbl.is

Kreppuvíxlar !

Mér fannst athyglivert þegar íslenzkur hagfræðingur sem starfar erlendis kom fram í Kastljósi og brá upp eftirtektarverðri hugljómun.

 

Hann sagði eitthvað sem svo, að horfði maður á jörðina utanúr geimnum myndi maður sjá að allt væri á sínum stað eins og fyrir kreppu.  Peningarnir, mennirnir, verksmiðjurnar, auðlindirnar, tækin, húsin. Það eina sem væri farið væri traustið. Traustið milli manna og fyrirtækja. Enginn treysti öðrum og enginn vildi lána öðrum.

 

Þetta er athyglisverðasta greiningin sem ég hef heyrt á kreppu og orsökum hennar. Við erum hrædd hvert við annað. Við erum hrædd við bankana og þeir eru enn hræddari við okkur skuldarana. Við erum hrædd við náungann og höldum að hann ætli að stela af okkur. Við girðum okkur af bæði huglægt og verklægt.

 

Hvernig á að leysa kreppuna ?. Pólitískir leiðtogar halda að það verði gert með því að prenta peninga uppí orðin útlánatöp bankanna.  Þetta læknar enga kreppu því að ríkisbankarnir eru ekki viðskiptabankar í eðli sínu og  þora ekki að lána fólkinu.  Þeir bara troða peningunum í götin hjá sér. Á Íslandi eru engir  nefnilega engir bankar lengur heldur opinberar innheimtustofnanir, sem hafa það eitt að markmiði að svíða af viðskiptamönnum sínum sem allra mest. Hirða allt sem kló á festir en hætta ekki á neitt.  Ríkisstarfsmaðurinn fær sama kaupið meðan hann er ekki rekinn og hangir í vinnunni milli 9 og 5 sálarlaus og áhugalaus um allt nema kaupið sitt.  Hann er ekki rekinn ef hann tekur enga áhættu. Því  bara svíður hann allt og alla sem hann getur.

 

Þetta fyrirkomulag dýpkar kreppuna stöðugt. Og kommúnistastjórnin, sem hér situr núna, sér ekkert til bjargar nema hækka skatta á almenningi til að fjármagna sértæk góðverk sín. Það gefur auga leið þegar öll stafsemi er á heljarþröminni og vöxtum er haldið í okurhæðum og gjaldeyrishöft algerlega ráðandi, ekker gengur að gera upp gamla svindlið ,að þetta leiðir beint til enn meiri vandræða, kreppu og kyrrstöðu.

 

Það sem þarf núna er að hækka ekki skatta og koma verðmætum í umferð meðal almennings. Það verður að vinna upp traustið aftur og lækka vexti í takt við minnkun verðbólguna.

 

Hið pólitíska vald er ekki megnugt um að koma neinu af stað. Alþingismenn eru ráðalausir hvað sem þeir segjast heita.Fólkið verður að taka til sinna ráða.

 

Mér hefur dottið í hug að Kauphöllin myndi prenta sérstaka númeraða kreppuvíxla.  Þá gætu menn fengið til útfyllingar og selt sjálfir einhverjum vini sínum,  sem ætti pening eða vöru sem hann vill selja.  Kaupverðið á víxlinum er á milli þeirra.  Víxlarnir mega vera í hvaða mynt sem er og til hvaða tíma sem er.

 

Kauphöllin tekur síðan útfylltan kreppuvíxilinn með samþykkjanda og útgefanda og auglýsir til sölu. Fjárfestir gerir hugsanlega tilboð og það myndast þá gengi á víxlinum og útgefandinn fær peninginn til baka mínus kostnaðinn,  sem dregst þá frá hagnaði hans af viðskiptunum. Hann getur þá lánað aftur eða selt.  

 

Kauphöllin heldur skrá yfir obligó hvers einstaklings og sölumöguleikar hinna skuldugu minnka með lægra gengi þeirra víxla en hinir fá betra gengi.  Þannig fara viðskiptin af stað aftur í einhverjum mæli. Margfeldisáhrifin segja fljótt til sín og fólkið fær von og traust á sjálfu sér og náunganum.

 

Pólitíkusarnir og Seðlabankinn geta svo komið inní dæmið með því að greiða fyrir endurræsingunni á efnahagsvélinni. Þeir hafa sýnt það að þeir eru ekki færir um neitt af sjálfum sér sem getur komið efnahagslífinu á stað . Því verður einkaframtakið að höggva á hnútinn með þessum hætti.    

 

Ef við gerum ekkert mun hönd dauðans og kommúnismans leggjast yfir þessa þjóð og valda hér ólýsanlegum skelfingum. 

Við verðum að gera eitthvað til að endurreisa traustið milli manna. Þegar traustið kemur aftur þá breytist allt í mannheimi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Algjör snilld! Þú kannt sannarlega að koma orðum að þessu. Synd að heyra ekki í þessum hagfræðingi.

Innanlandspeningar í formi víxla!! Af hverju ekki?

Ég bý ekki á Íslandi, enn eru þetta kommúnistar sem ráða ríkjum þarna? Þeir kalla sig alla vega eitthvað annað..

Óskar Arnórsson, 12.3.2009 kl. 22:34

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Flott hugmynd af gjaldmiðli.  Spurning hvort það er ekki eins með þessa hugmynd, og það sem hagfræðingurinn sá þegar hann sá jörðina utan utan úr geimnum, að hún á jafn vel við um heim allan. 

Það er hugarfarinu sem fólk verður að breyta, hætta að treysta á stjórnmálamenn og taka til eigin lausna.  Nema að fólk vilji láta leiða sig inn í alheimsvæðingu fasísks kommúnisma eða hvað nafn sem menn kjósa að gefa þrælabúðunum.

Magnús Sigurðsson, 12.3.2009 kl. 22:58

3 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Góð og skemmtileg grein hjá þér.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 12.3.2009 kl. 23:15

4 Smámynd: Óskar Arnórsson

..búa til hagkerfi fólksins! Tengja framhjá bönkunum! Þess meira sem ég hugsa um þetta því meiri snilld þykir mér þetta vera...einfalt og skýrt!

Óskar Arnórsson, 13.3.2009 kl. 00:47

5 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Skemmtileg og vel skrifuð grein hjá þér!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 13.3.2009 kl. 09:34

6 Smámynd: Katrín

bregst ekki halldór!  Ég er viss um að værir þú norskur væri Steingrímur löngu búinn að ráða þig til verka, nú eða bara Egill Helga sem er nú ráðingarstjóri ríkisins

Katrín, 13.3.2009 kl. 13:22

7 Smámynd: Björn Finnbogason

Nákvæmlega!  Eitthvað í þessum dúr verður að koma til.  Ekki gera stjórnmálamenn okkar nokkurn skapaðan hlut, til þess eru þeir of hræddir um að þurfa, og bera, ábyrgð á gerðum sínum.

Björn Finnbogason, 13.3.2009 kl. 20:34

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir öllsömul. Mér finnst að við verðum að gera eitthvað sjálf til að endurreisa traustið milli manna. Við megum ekki afskrifa gildi þess þó að einhverjir hafi sýnt sig að vera ekki traustsins verðir.

Halldór Jónsson, 15.3.2009 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband