Leita í fréttum mbl.is

Lausn á kvótamálinu.

Jón fiskur vinur minn kom með einfalda lausn á þessum eilífu kvótadeilum:

Gefum bara þorskveiðar frjálsar á morgun. Leyfum öllum að veiða eins og þeir vilja þetta árið. Ekkert kvótagjald, ekkert til að veðsetja.

Einfalt ?

Má ekki fresta kvótakerfinu á þennan hátt Jóns til þess að losna við þetta stöðuga röfl ? 

Ef það sýnir sig að vera verra þá getum við tekið það upp aftur. En þá er kvótinn í eigu þjóðarinnar.Eða eigum við ekki að segja stjórnmálamannanna og hreppapólitíkurinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

....og svo seljum við fiskinn fyrir evrur og allir verða ánægðir...  langbest að hafa þetta einfalt og vera ekki að flækja málin með einhverri pólitík...!!!

Og væri ekki hægt að bjóða þingstörfin út.  Lögfræðistofurnar hljóta að geta samið lögin á hagkvæmari og skjótvirkari hátt en Alþingi.  Á fjögurra ára fresti kjósum við svo lögfræðistofu frekar en flokka.... nú eða í stað lögfræðistofa mætti kannski fela verkfræðistofum stjórnina annað slagið eða kjósa þarna á milli..... Gefum þetta allt frjálst, Halldór, og þá hafa vinir þínir kommarnir ekkert lengur að gera, nema veiða fisk....og mikinn fisk!

Ómar Bjarki Smárason, 14.5.2009 kl. 23:45

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Góður

Óli Valur sgaðist kannast við þig frá Eyrarbakka á Seltjarnarnesi, Eryrnabakka eða Eyrabakka.

Ég bauð í bankastjórastarf á dögunum, halfprice. En ég hef ekki fengið starfið ennþá. Það er víst bannað að bjóða undir lágmarkstaxta sem er milljón í laun  fyrir hvern tapaðan milljarð í útlánum

Halldór Jónsson, 15.5.2009 kl. 07:54

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Gott hjá þér að halda á lofti fræðimanninum og vini okkar Jóni fisk. Hann á allan heiður af því að búa til fiskveiðikerfi Færeyinga sem hefur gagnast þeim vel.  Þess utan hefur hann verið Írum og Skotum innan handar í mörg ár varðandi samskipti þeirra við miðstýringuna í ESB.

Sigurður Þórðarson, 15.5.2009 kl. 12:02

4 Smámynd: Björn Emilsson

Einnig má líta á hvernig grænlendingar skipa málum. Sem sé ótakmarkaðar veiðar skipa undir 60 tonnum. Veðrið sér um stjórnunina. Nú og svo hafa færeyingar gott kerfi, skilst mér.

Björn Emilsson, 15.5.2009 kl. 13:50

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þegar saman koma lausnir þeirra Jóns Kr. og Halldórs þá sætti ég mig við útkomuna. Það fyrsta sem gæti orðið til þess að ég öðlaðist einhverja trú á þessa ríkisstjórn væri ef Hóla-Jón réði Jón Kristjánsson sem ráðuneytisstjóra í Sjávarútvegsráðuneytið.

Árni Gunnarsson, 16.5.2009 kl. 12:08

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Árni Gunnarsson

Ég styð tillögu þína um að Hóla-Jón tali við  Jón Fisk !

Halldór Jónsson, 17.5.2009 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418164

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband