Leita í fréttum mbl.is

"Það er ósiðlegt að láta fífl halda fé sínu" !

Hreiðar Már og Sigurður Einarsson lánuðu Robert Tenghuis minnst helming af öllum innlánum Kaupþings án fullnægjandi trygginga. Hvað gekk þeim til ? a. Vankunátta í bankafræðum  ?b. Eigin gróðafíkn ? Hafi einhver aðrar skýringar þá væri fróðlegt að heyra þær. Á meðan spóka þessir mestu og hæstlaunuðu bankamenn Íslands, fyrr og síðar, sig fríir og frjálsir í London.. Erum við ekki með einhverja Evu Joly á launum. Eða er hún yfirleitt  líka í London ?  Við gömlu hluthafarnir í Kaupþing  étum  það sem úti frýs.  

" It is immoral to allow suckers to keep their money."

Þannig hljóðar eitt af lögmálum Murphy´s.

Annað lögmál hans, "the Golden Rule"  er svona:

 " He who has the gold makes the rules "

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég er algjörlega sammála þér.

Evu Joly er vel treystandi fyrir að taka á þessu máli, enda alþekkt fyrir að taka á kumpánum sem þessum! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 17.5.2009 kl. 10:29

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

En það má nú kannski fara að spyrja sig hver sé í raun og veru fíflið í þessu öllu saman, Halldór.  Það fer nú fljótlega að líta út sem það sé framkvæmdavald og eftirlitsstofnanir þessa lands, eða er ég að misskilja eitthvað....?  Og úr því að skúrkarnir eru nú að mestu búsettir í London er þá ekki rétt að Gordon Brown og félagar geri sitt til að koma yfir þá lögum, ella fer nú að líta svo út sem bresk stjórnvöld séu samsek í þessu máli.

Ómar Bjarki Smárason, 17.5.2009 kl. 12:15

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar minn Bjarki

 Segja ekki fréttirnar að  flokksmenn hans Gordons og trúnaðarmenn   séu sömu þjófarnir sjálfir .Stela öllu steini léttari úr sjóðum almennings ? 

Halldór Jónsson, 17.5.2009 kl. 14:02

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það eru nú bara vasaþjófar í samanburði við útrásarvíkingana okkar, Halldór.  Og kannski gildir sama samtryggingin þar og hér.  Vasaþjófarnir og smákrimmarnir þurfa að gjalda gjörða sinna á meðan stórlaxarnir sleppa.  Og blessaðir bresku þingmennirnir gengu nú bara eins langt og þeir komust upp með í því kerfi sem viðgengist hefur, og er kannski löglegt þó mörgum þyki það kannski siðlaust, sérstaklega í því ástandi sem nú ríkir í efnahagskreppunni.  Og svo er samtryggingin væntanlega svo mikil hjá gæpamafíunum að þeir eru í raun ósnertanlegir því þeir eru með menn sína menn í háum stöðum upp eftir öllu dómskerfinu..... eða þannig lítur það alla vega út úr því að stjórnvöld virðast ekki hafa nokkurn minnsta áhuga á að hafa hendur í hári þessara manna, sama hvort er hér eða í Bretlandi.  Þarna er fyrimyndarríki þitt hún Ameríka kannski heldur á undan okkur hér austan Atlandsála, eða hvað?

Ómar Bjarki Smárason, 17.5.2009 kl. 18:25

5 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Öll útrásar sagan minnir mig á orð gamla Indjánans

"man who drive like hell, will get ther sooner or later"

Sigurjón Jónsson, 18.5.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband