Leita í fréttum mbl.is

Lesið Gunnar Rögnvaldsson !

Enn einu sinni vekur Gunnar Rögnvaldsson (tengill á síðunni )okkur Íslendinga til umhugsunar um hvert við stefnum með evrópubandalagsaðild.

Og þetta er ekkert sem er verið að spá og spekúlera með, þetta lýsir hagsögu Íslands borið saman við Evrópulöndin   í þrjátíu síðustu ár. Þetta undirstrikar rétt einu sinni hvernig íslenzkur hagvöxtur er í allt öðrum fasa heldur en í evrópulöndunum.

Við erum nefnilega engin evrópuþjóð, við erum miklu fremur vesturheimsfólk og okkar efnahagslíf er miklu líkara því sem þar gerist en í hinni yfirfullu og landluktu ríkjum evrópubandalagsins. Í vesturheimi býr líka önnur íslenzk þjóð sem er nærri jafnstór þeirri sem hér býr. Frændur okkar og vinir með taugar til okkar sem ekki verður sagt um Mr. Brown og annað hyski í því bandalagi. Þangað vestur eigum við að leita um efnahagssamstarf, NAFTA aðild osfrv. 

Línuritið ber saman atvinnuleysið á Íslandi og í evrópusæluríkjunum. Það sýnir svart á hvítu hversu gerólíkur íslenzkur hagvöxtur er þessum afturkreistiungum í hinni yfirfullu evrópu.

atvinnuleysi_1980-2010  

Gunnar segir ; 

" Til hamingju Ísland

Kæru Íslendingar. Nú fáið þið loksins tækiæri á að prófa hvernig það er að vera evruland í ca einn til þrjá mánuði á svona ca síðustu 30 árum. Myndin hér að ofan sýnir okkur atvinnuleysi á Íslandi og í evrulöndum frá 1980 til 2010. Þetta er svona samkvæmt tölum og gögnum frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum (IMF). Nú vitið þið bráðum hvernig þetta er. Það góða við stöðuna er þó það, að þið eruð sem betur fer ekki með sjálfa evruna. Þetta ástand mun því læknast aftur eftir nokkra mánuði. Ísland er nefnilega með sinn eigin gjaldmiðil sem hefur megnað að gera Íslendinga að einni ríkustu þjóð í Evrópu á mjög skömmum tíma. Þátt fyrir stór mistök við hagstjórn landsins

Þau lönd sem hafa ekki svona tryllitæki sjálf, eru háð náð og miskunn hinna peningalegu máttarvalda í Mið & Suður Evrópu. Þessi yfirvöld hafa alltaf reynt að koma á því sem Mið Evrópumenn kalla "stöðugleika". En þetta orð, stöðugleiki, er notað yfir þennan samfellda múr af massífu atvinnuleysi sem sést þarna á myndinni. Engin ríki þola svona atvinnuleysi og sóun. Þau verða alltaf fátækari og fátækari. Ofan í þessar tölur frá IMF kemur svo allt hið falda og leynda atvinnuleysi sem inniheldur allt það fólk sem hýst er í hinum mörgu og stóru kassageymslum ríkja ríkjanna. Þetta fólk verður litið sem ekkert vart við kreppuna núna. Hún er nefnilega alltaf hjá þeim. It just plain works!

Evran virkar

Nýja kreppan, sem hægt og rólega er að bíta sig fasta á evrusvæði núna, mun hafa þau áhrif að íbúar evrusvæðis munu fá sinn týnda japanska áratug (og sennilega tvo) af ALGERRI stöðnun. Nýjustu tölur um ekki-hagvöxt segja okkur nefnilega að meðalhagvöxtur á evrusvæðinu hafi verið um 0,6% á ári frá árinu 2000. Sem sagt 9 ár af engu. It just plain works! "

Hversvegna eigum við að elta þetta fólk. Taka upp herskyldu til að þóknast hinum samevrópsku hagsmunum ? Borga styrki til landbúnaðar í Rúmeníu ? Þjást með Kýpurgrikkjum vegna yfirgangs Tyrkja ? Taka við öllum glæpalíð í gegnum Schengen sem kemur inn um hriplek landamærin í austri ?

Við erum ekki með öllum mjalla Íslendingar ef við önum svona áfram undir herlúðrum kratanna.Hættum þessu evrukjaftæði og reynum að standa í lappirnar sjálf.

Sjálfstæðisflokknum er einum treystandi til að vera í fylkingarbrjósti fyrir sjálfstæðisbaráttu Íslands. Allir aðrir flokkar eru beggja handa járn og tvöfaldir eða þrefaldir í roðinu þegar að evrópubandalaginu kemur. Sjáið bara sinnaskipti Steingríms J. og VG apparatinu hans. Þvílík stefnufesta !

Þessi ríkisstjórnarræfill endist svona 12 mánuði , þá kemur Sjálfstæðisflokkurinn aftur sterkur inn til bjargar landi og þjóð !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sjaldan verður góð vísa of oft kveðin. Samstaða með öðrum fyrrverandi Ný-lendum borgar sig. Sólin sest í vestri. Mér líst ekkert á þetta ofurvald sem beaurokratarnir í Brussel virðast hafa yfir sumum fæddum Íslendingum. Hvað veldur stefnuskiptum? Hræðsla við ofurmátt ES:EU?

ES:EU mun aldrei vinna sig úr þeirri efnahagskreppu sem hún er lent í núna. Heimstyrjöldin drap atvinnuleysið síðast og USA fjármagnaði uppsveifluna. Núna er ASÍA eða Kína heimsálfa I [eða II]. Stærst framleiðandi fullvinnslu á öllum sviðum og allra gæða: lávöru líka. ES:EU orkulaus og hráefnislaus. Mér er alveg sama þótt ES hafi kynbætt sig svo um munar síðustu ár: 1. flokks starfskraftur sem heldur sig frá víni afkastar litlu ef hráefni vantar.

Evrópa [yfir-beaurokratastéttin] er ekki þekkt fyrir aumingjagæði: svo hvað eru sossarnir að sækjast í?

Að ráðast á blásaklausan almenning í heiminum dettur mér ekki til hugar. Eftir höfðinu dansa limirnir.

Ísland er eyja einhæfra atvinnuvega: hráefnis útflutnings [málmar, matvæli]. Næst hæðstu þjóðartekjur í heimi [sjálfum sér nógu um vatn og orku næstu 100 ár].   

Sjá menn ekki tækifærin til þess að komast í fyrsta sæti. Eru Íslendingar kannski orðnir of fróðir til að dýfa hendinni í kalt vatn.

Júlíus Björnsson, 24.5.2009 kl. 14:41

2 Smámynd: Kommentarinn

Já XD kemur til bjargar! Hverjir voru það eiginlega sem komu okkur í skítinn? Var það ekki XD? Hverjir lugu að okkur að við værum rík og værum í "góðæri" var það ekki XD? Hverjir hafa logið að okkur í áratugi að enginn kunni hagstjórn nema XD. Ég held það hafi aldrei verið nein hagstjórn hérna ever. Mér er skítsama orðið hver stjórnar hérna bara á meðan það er ekki XD.. Jafnvel Bush harðstjórnina frekar...

Kommentarinn, 24.5.2009 kl. 15:27

3 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Ég vil taka undir þetta með í hvora áttina við ættum að beina sjónum okkar, austur eða vestur um haf. Ég tel að við eigum að horfa áfram til vesturs eins og forfeður okkar gerðu er þeir flúðu skattpíninguna og ráðríkið á meginlandinu fyrir um 1000 árum.

Ég hef stundum pælt í því eftir að skammsýni ESB-áróðurinn hérlendis fór á flug eftir bankahrunið á Íslandi, þetta með að redda sér og þjóðinni með því að komast sem fyrst í ESB, að þar væri byggt á blekkingum og ekki síst sjálfsblekkingum. Halda menn að ESB-löndin, sem sum eru nýbúin að brenna sig á bankastjórnendum Íslands, fýsi sérstaklega að vingast við Íslendinga og fyrirgefa og "leyfa" þeim inngöngu í ESB með hraði á þeim grunni? Ekki er það trúlegt! Áhugi þeirra skýrist af því einu að það er hagstætt fyrir ESB og hin auðlindasnauðu lönd þeirra (sbr. grein mín í Mbl 11.5.2009 "Lífslindir og lífsstíll").

Við erum í eðli okkar mjög líklega líkari vesturförunum sem fóru alla leið vestur um haf til Ameríku í leit að betri kjörum, eins og íslensku landnemarnir forðum. Eftir á meginlandinu sátu þeir sem ekki höfðu dug til þess að leita á betri mið og þeir sem höfðu það gott fyrir þar, enn.

Ég hef tekið eftir bloggi Gunnars Rögnvaldssonar og dáist að honum fyrir alla vinnuna sem hann hefur lagt á sig í því sambandi við að benda Íslendingum á staðreyndir um ESB, verandi íbúi í landi innan þess, Danmörku. Áhugamenn um málefni ESB ættu að kynna sér síðu hans og ekki síður það efni sem hann vísar til og byggir á, ekki síst rit írska hagfræðingsins David McWilliams sem bendir á aðlögunarhæfni Íslands sem felst í eigin gjaldmiðli með sveigjanleika.

Þess utan ætti fólk að kynna sér hagfræðina í tengslum við gengisfelllingar (devaluation of currency) og hverslags verkfæri þær eru til að auka samkeppnishæfni þjóðar í viðskiptum við útlönd; einmitt það sem við göngum í gegnum núna en Írar ekki af því að þeir eru fastir með ósveigjanlegt gengi evrunnar sinnar. Þessarar aðlögunarhæfni saknar írski hagfræðingurinn núna sem telur að ósveigjanleikinn sem í því felst sé að kóróna rústun á efnahag Írlands núna með m.a. skelfilegu atvinnuleysi. Hann horfir öfundaraugum til Íslands með sína íslensku krónu! (meira um þetta á bloggsíðunni minni við tækifæri).

Kristinn Snævar Jónsson, 24.5.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband