Leita í fréttum mbl.is

Burt með AGS.

EES samningurinn var hugsaður sem lyftistöng fyrir okkur Íslendinga til að geta átt viðskipti við umheiminn, sem hafði verið lokaður fyrir okkur með boðum og bönnum Framsóknarmanna með aðstoð framsóknarmanna í öllum flokkum.   Það kom okkur íslendingum hinsvegar á óvart gersamlega að hann skyldi virka í báðar áttir. Aðrir fóru að spá í okkur og okkar lokaða land. Og þá misstum við svo rækilega niðrum okkur af forundran að við liggjum núna í svaðinu.

Kratar hæla sér af Viðeyjarstjórninni og segja að Jón Baldvin hafi fært okkur EES einn og sjálfur. Það er ekki rétt. Við sjálfstæðismenn hleyptum því í gegn og trúðum meira að segja á það. Og ég trúi því enn að þetta hafi gjört okkur frjálsa af ellefuhundraðára vistarbandi Framsóknarmanna á íslenzkri alþýðu. 

Svo kom þetta helvítis  Schengen  með Halldóri Ásgrímssyni, þeim ógæfustrumpi íslenzkra stjórnmála,   sem aldrei skyldi verið hafa. Hingað streyma fátækir Austurevrópubúar sem hafa himinn höndum tekið að komast á okkar sósíal. Heimkomnir frá okkar öðru föðurlandi í Norður Ameríku verðum við að kreista tannkornstúbur og fleygja rakspíra til þess að komast inní eigið land sem er alltíueinu ekki Ísland heldur hlið inná eitthvert Schengensvæði sem endar í Tyrklandi.

Með verslunarfrelsinu og fjórfrelsinu  komu jöklabréfin og hér flaut allt í sméri og hunangi meðan bankarnir gátu slegið eftirlitslaust í útlöndum á okkar ábyrgð. Svo hrinti Seðlabankinn okkar þessu öllu um koll í asnaskap og allt fór til andskotans.

Nú  fótumtroðum við þetta sama EES  að vild með neyðarlögum og höftum, ríkisvæðingu, átthagafjötrum en höldum Schengen sem gerir atvinnuleysið enn verra. Ísland er að líkjast  Kúbu meira og meira með hverjum deginum þó Kastró hafi vinninginn í skeggvexti yfir Steingrími enn sem komið er.

Atvinnuleysið vex og vex. Hnípin þjóð í vanda spyr sig daglega hvort ekki komi bráðum bjargráð frá föðurnum á Rein.  En þaðan hefur ekkert komið og kemur ekki neitt nema álögur ag meiri píslir fyrir landslýðinn. Meiri örvænting, meiri skattar, meiri gjöld.

Svínbeygðir af AGS liggjum við Íslendingar í svaðinu og eigum okkur ekki fyrirsjáanlega viðreisnarvon. Nema við rísum upp og segjum umheiminum að fara til andskotans, VIÐ BORGUM EKKI, hvorki Icesave né annað. Við erum í raun "nation in default"  eða "rogue nation " sem borgar kannski allt seinna , en bara ekki núna því við einfaldlega  getum það ekki, hvað sem  heilög einfeldni heldur annað.

Kínverjar og Rússar lána okkur áreiðanlega  úr því að Vesturlönd vilja það ekki.  Þeir hafa allt að vinna pólitísktþ 

Kaninn er farinn og Gordon Brown er á síðasta snúning síns ömurlega stjórnamálaferils. Öll Evrópa er okkur andsnúin vegna strandhöggs útrásarvíkinganna í veskjum belgíska tannlæknisins og breskra sveitarsjóða.  

Við þurfum því Íslendingar að horfa í vesturátt,  til Vesturíslendinga og reyna að bindast þeim og þeirra löndum  viðskiptaböndum en láta þessa  evrópupressu AGS síga til hliðar. Heimurinn er miklu stærri en þessi þröngsýna Evrópa, þar sem er hver höndin uppi á móti annari af því að það verður enginn þjóðasamruni, Enda er líklega  vafasamt að Robert Schumann hafi ætlað sér í svona risastórt bandalag eins og nú stefnir í,   þegar hann mótaði sína Evrópusýn um miðja síðustu öld.

Við íslendingar búum í ríku landi um þvera þjóðbraut, mitt milli heimsálfa. Mér finnst eiginlega furðulegt hvað vesturheimslönd eru kærulaus yfir landvinningastefnu ESB hérlendis. Það heyrist varla frá þeim hósti mér stuna. kannski vita þeir meira en við um árangurslíkurnar fyhri ESB og bíði þefsvegna átekta. En að við Íslendingar skulum ekki margir hverjir koma auga á þessa miklu yfirburði Íslendinga er ofvaxið mínum skilningi.

Ég held að AGS sé ekki hérna vegna okkar Íslendinga heldur vegna erlendra kröfuhafa. Slíka gesti þurfum við ekki. Enda gengur ekki né rekur í vandamálum okkar, sem hlaðast upp meðan kreppan dýpkar stöðugt.

Reynum eitthvað annað. Burt með AGS.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GH

Það er merkilegt að lesa svona raus sjálfstæðismanna. Hvers vegna er AGS hér? Vegna þess að erlendir lánendur treysta ekki íslenskum stjórnvöldum. Hvers vegna þurfum við að "þóknast erlendum kröfuhöfum"? Vegna þess að það er skilyrði þess að nokkur láni okkur á ný. Hvað gerist ef við sendum AGS heim? Krónan mun hrynja enn frekar, gjaldeyrisvarasjóðurinn myndi hverfa, lánstraust okkar erlendis (það litla sem er eftir) myndi gufa endanlega upp. Þetta myndi leiða af sér hrun atvinnuveganna, sem Sjálfstæðisflokkurinn segist vilja verja. Og að síðustu. Hvað hefur Schengen með það að gera að hingað "streyma fátækir Austurevrópubúar sem hafa himinn höndum tekið að komast á okkar sósíal"? Alls ekkert. Fólkið er hér (a) vegna þess að það á rétt á því samkvæmt EES (fjórfrelsið margumtalaða) og (b) ef það hefði ekki komið á þenslutímanum, þegar ekkert atvinnuleysi var í landinu þrátt fyrir að hér væru um 20 þúsund erlendir verkamenn, þá hefði vandi okkar verið óyfirstíganlegur nú.

Munum að vandinn sem við búum við nú er hvorki erlendu verkafólki né AGS að kenna, heldur heimskulegri hagstjórn Sjálfstæðisflokksins á síðustu árum -- aðallega með hjálp framsóknar. Það var margbent á það eftir kosningarnar 2003 að lækkun skatta og hækkun húsnæðislána væri slæm hugmynd á þenslutímum, en samt gekkst stjórnin fyrir þessu. Og það var einnig varað við því að bankarnir yrðu seldir til fárra eigenda, en það var samt gert -- og við sjáum nú hvernig þeir fóru með bankana. Sem sagt: kennum þeim um áþján almennings sem ollu henni en ekki þeim sem eru að reyna að hafa vit fyrir okkur.

PS. HJ stingur upp á að við hættum að líta til Evrópu og snúum okkur vestur. Vil minna á í því sambandi að grýlan ógurlega, AGS, er einmitt með höfuðstöðvar sínar í Washington og er einatt gagnrýndur fyrir að vera hallur undir þá viðskiptahugmyndafræði sem BNA stendur fyrir.  

GH, 5.6.2009 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418167

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband