Leita í fréttum mbl.is

Mun okkur fækka eða fjölga ?

Hvernig verður með einn Ice-slave, sem flytur búferlum til Noregs ?

Þegar hann er fluttur þá skuldar hann ekki neitt  er það ekki  ?  Hann þarf ekki burðast með einhverja skattbyrði bara til að borga fyrir Bjögga. Skuldin bara dreifist á færri hausa á Íslandi.  Gamlingja, öryrkja, minna menntað fólk.  Skuldin lækkar ekki. Hann þarf ekkert að búa við íslenzka stjórnmálamenn ef aðrir bjóðast betri annarsstaðar.

Ef tugþúsndir flýja landið, verða miklu færri eftir til að borga. Ganga þá  hagvaxtarútreikningar Indriða og excelhagfræðinganna  upp ?  Hvað verður þá ?

Getur einhver svarað því hvernig er með fólksflutningana á þessu ári ? Hvernig verða þeir ef batnar annarsstaðar í heiminu ? Vilja menn vera þrælar eða frjálsbornir menn ?

Mun okkur fækka eða fjölga ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Halldór,

Það eru miklar líkur á því að við munum missa heila kynslóð úr landi á næstu 15 árum.  Þeir sem vilja vernda sig frá fátækt gera fátt betra en að læra norsku og ensku.

Andri Geir Arinbjarnarson, 24.7.2009 kl. 14:11

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halldór minn. þeir sem flytja til Noregs borga skatt í Noregi og skuldir þeirra fylgja þeim um alla Evrópu. Fólki er ómögulegt að vera atvinnulaust hér á lægstu launum og með tvöfölduð lán, því þá verður það gjaldþrota. Svo mikið hafa lánin hækkað.

Ef heiðarlegur vinnandi launþegi á að geta þetta verður hann að fá vinnu í öðru landi þar sem gengi krónunnar er ónothæft hér á landi miðað við hvað lánin hafa hækkað. Enginn tók lán í þeirri trú að það myndi meira en tvöfaldast. Lánshæfismat er bara bull því um leið og fólk er búið að skrifa undir er lánið komið langt umfram greiðslugetu. þetta var bara gildra og bankarnir fría sig ábyrgð.

það er virkilega kominn tími á hantöku og uppgjör þessara afbrotamanna. Hvers vegna getur enginn gert neitt í því? Ég skil það ekki.

Til hvers erum við með íslensk stjórnvöld ef þau eru ekki þess megnug að gera eitthvað í málunum? þjófar gnorðri!anga lausir og enginn virðist geta gert neitt.

Villta vestrið í norðri: Ísland!

Til hvers erum við að kjósa þingmenn ef þeir fá ekki einu sinni að sjá hvað þeir eiga að vinna með og kjósa um? Viljum við endilega hafa þingmenn sem fá ekki að vita neitt en svo erum við að borga þeim laun? Held að hvorki þeir né við viljum hafa þetta svona.

Er ekki rétt að byrja niðurskurð þarna?

það mun ekki fækka fólki á Íslandi vegna þess að fólk frá vanþróuðu löndunum mun koma hingað og býð ég það fólk innilega velkomið, en ekki finnst mér það góður kostur að skuldsett fólk þessa lands verði að fara vegna svika stjórnvalda.

En þegar kemur að herkvaðningu ESB munu þau koma heim aftur (ef við förum ekki í ESB).

Fólk sem vill fara fer auðvitað en margir skilja ekki að það er vaksandi atvinnuleysi í Evrópu. það er ekki tekið endalaust við atvinnulausu fólki frá öðrum löndum. Ísland er hreint og stríðslaust land sem er í raun eftirsóknarvert vegna þess. það er vanmetið af heimamönnum.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.7.2009 kl. 17:08

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

þjófar í norðri engar lausnir átti þetta að vera.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.7.2009 kl. 17:12

4 Smámynd: Elle_

Nei, einn Ice-slave maður sem flytur frá Íslandi mun ekki lengur skulda Ice-save.   Og mér skildist á Halldóri að hann væri að tala um Ice-save skuldir og hækkun skatta af þeirra völdum.   Fólk er löngu farið að flýja land:
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item288814/
Og:
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item289531/

Það verða því miklu færri eftir með ellilífeyris-þegunum að borga fyrir nauðungina Ice-slave fyrir Björgólf og Björgólf.  Hvort Björgólfarnir þurfi að vera með er óvíst.  Björgófur yngri býr nú í Bretlandi að mér skilst.  M.ö.o: Eldri borgararnir okkar  eru ekki bara kúgaðir til að borga milljarða-skuldir hans hér, heldur fær hann það líka borgað í ríkissjóð sinn þar.   

 

Elle_, 24.7.2009 kl. 20:27

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk EE elle fyrir þess afréttatenging.

Þetta er svona :

Tæplega þúsund búslóðir voru fluttar frá landinu fyrstu 5 mánuði ársins en það er rúmum þriðjungi meira en á sama tíma í fyrra. Flestar búslóðirnar fara til Noregs. Mun færri flytja til landsins en áður.

Hjá skipafyrirtækjunum tveimur sem bjóða upp á búslóðaflutninga kemur í ljós að mikil aukning hefur verið á slíkri þjónustu fyrstu 5 mánuði ársins. Eimskip hefur siglt með 30% fleiri búslóðir á þessum tíma samanborið við í fyrra eða alls um 750 búslóðir.

Ólafur Hand, markaðstjóri hjá Eimskip, segir að í maí mánuði hafi fjöldi búslóðaflutninga verið mestur. Flestar búslóðirnar sem Eimskip flutti fóru til Noregs, síðan fylgja Danmörk og Svíþjóð þar á eftir. Ólafur segir um 40% samdrátt vera í búslóðaflutningum til landsins.

Svipaða sögu er að segja hjá Samskipum, þar hefur aukningin þó verið öllu meiri á fyrstu 5 mánuðunum samanborið við í fyrra, eða um 50%. Anna Guðný Aradóttir, markaðsstjóri Samskipa, segir fyrirtækið hafa flutt um 200 búslóðir á þessum tíma og flestar þeirra hafi farið til Noregs. Hjá Samskipum hefur orðið um 20% samdráttur í búslóðaflutningum til landsins.

Fyrstu 3 mánuði ársins fluttu rúmlega 2300 hundruð manns brott af landinu. Í þeim hópi eru 1000 íslenskir ríkisborgarar. Ekki fengust upplýsingar hjá Hagstofunni um fjölda brottfluttra Íslendinga eftir 1. apríl.

frettir@ruv.is

Halldór Jónsson, 24.7.2009 kl. 20:45

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Samkvæmt stýrikerfi [uppástunga til nýmæla verður að lúta minnst 283 grunnforsendum , þannig sú sem samþykkt verður er sú sem gert var ráð fyrir í upphafi að yrði samþykkt athugasemda laust] eða markvissum lögum EU er spurningunni auðsvarað okkur mun fækka. Grunnforsendan um hlutfallslega samleitni. minnst 8% atvinnuleysi. Sennilega mikið meira með við eru að uppfylla markmiðið en þau meðlima ríki sem brjóta þess grunnlög eiga á hættu þvingunum eða útsparki.  Eigin þjóðartekjur ríkis sem hefur hefðbundnar tekjur af hráefnissölu eru of háar í [EU] heildina litið. Meðlima-ríki EU meginlandsins hvíla á grunni Heiðarlegrar Samkeppni grunni fullframleiðslu og hátækni. Bretar hafa sennilega rétt á fjármálageiranum samkvæmt hefðum.

Það sem skiptir öllu máli er ekki hve margir fara heldur hverjir fara. Því er líka auðsvarað þeir sem borga með sér áfangastað með dugnaði eða frammúr skarandi hæfileikum. Hörð samkeppni utan Íslands. Noregur, Kanada og USA höfða mest til menningar arfleiðar Íslendinga sem aldrei lutu beint undir Rómverja og sætta sig ekki við ofríki. 

Við höfum sennilega ekki einu sinn efni þá því að flytja inn þræla sem geta bara ekki farið.

EU er á lokasprettum hvað varðar útvíkkunar lögin og þá lokast allir útþenslu sjóðir, auðvitað. Hvað hefur EU að gera við Evrópu fræðinga efir 10 ár eða fimm.  Eru margir USA fræðingar i USA fyrir utan þá sem útskrifast úr barnaskóla í USA.

EU gerir út risa iðnað og framleiðu og arðsemi, atvinnuleysi og slaka framleiðni. Er með dulda skattheimtu í gegnum handstýrt fjármálakerfi.

Heiðarleg samkeppni 3 í viðskiptum.

2 er það fákeppni?

Það er búið að heilaþvo stóran hluta þjóðarinnar.

Júlíus Björnsson, 24.7.2009 kl. 20:49

7 Smámynd: Jón Magnússon

Okkur mun örugglega fækka Halldór ef allir kyrja þennan bölmóð út og inn.  Umræðan hér er því miður svo yfirborðskennd að það er endalaust staglast á að við getum ekki borgað Icesave skuldir sem gætu orðið innan við 100 milljarðar þegar upp er staðið en ekki rætt um þá rúmu 300 milljarða sem Seðlabankinn henti í fjármálastofnanir án trygginga á árinu 2008.

Vilji þjóðin ekki taka á sínum vandamálum og fara að byggja upp á grundvelli einstaklingsfrelsis og athafnafrelsis þá verður verulegur landflótti. Það hefur engri þjóð tekist að skattlegga sig út úr vandanum eins og þessi ríkisstjórn telur að gangi upp.

Það hefði verið betra að Sjálfstæðisflokkurinn hefði notað góðu árin til að safna í peningatanka eins og frjálshyggjuöndin Onkel Joakim í stað þess áð sína af sér ábyrgðarleysi sem er meira tengd Andrési Önd.  Ríkisútgjöld uxu hér hraðar en í nokkru öðru OECD landi á valdatíma Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins og ekki batnaði það þegar Samfylkingin kom í spilið. Svona getur verið dýrt að víkja frá stefnu sinni minn góði Halldór.

Jón Magnússon, 24.7.2009 kl. 23:27

8 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Takk fyrir færsluna Halldór. Þú skrifar þær margar góðar. 

 

Jú Jón Magnússon. Þessari ríkisstjórn mun einmitt takast að skattlegja sig út úr vandamálunum því það er einnmitt fólkið sem er stæstra vandamál þessarar ríkisstjórnar. Það þarf því að úrýma fólkinu sem fyrst. Ríkisstjórnin vill hvorki sjá né hlusta á fólkið og heldur ekki standa við það sem hún lofaði því í kosningunum. Hún vill ekki leiða fólkið áfram eða sameina það, heldur vill hún sundra því og hræða það. Þetta mun takast og það bara ansi vel. Vel gengur það allavega eins og er 

.

Fitch Ratings flash message oktober 2010: The sovereign state of Iceland has been downgraded to junk status because internal tax revenue dried up du to mass emigration. Downward risk is accelerating. Outlook is further negative

 

Þetta verður vonandi ekki eins tómt og hjá kommúnistunum í Kína (stórmerkilegt hjá Hugh Hendry, menn ættu að hugsa sig um tvisvar varðandi þetta land): The Emperor has no clothes

 

Kveðjur 

Gunnar Rögnvaldsson, 24.7.2009 kl. 23:59

9 Smámynd: Elle_

Það er alveg eðlilegur hlutur að tala um Icesave hryllinginn.  Hins vegar getum við líka bætt milljörðunum sem Seðlabankinn kastaði í bankana inn í umræðurnar.  Held þó það hafi verið milli 400 og 500 milljarðar.  Fólksflóttinn stafar nú varla af tali um Icesave.  Heldur af himinháum hækkunum skulda vegna spilltra manna og/eða glæpamanna og ágangi handrukkara spilltra banka og fjármálastofnana.

Elle_, 25.7.2009 kl. 00:03

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Já þessar spurningar eru áleitnar,nokkuð sem erfitt er að ráða í. Leit inn til að kynna mig,sem fórst fyrir þegar ég hitti þig í S.P.K. (:-

Helga Kristjánsdóttir, 25.7.2009 kl. 05:30

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég er alveg sammála Jóni Magg um það að Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur gerðu mýmörg alvarleg mistök og ekki lagaðist það við að fá Samfylkinguna. Allir þessir flokkar bera þunga ábyrgð. Kannski að ríkisstjórnin og Svavar Gestsson líti betur út á mynd með spillingargosana í bakgrunni?  Ég er ekki frá því að það sé rétt en eftirlæt flokkshestum að metast um það.

Eftir stendur að hingað erum við komin og þurfum að komast út úr vandanum. Vilja menn leggja allt sitt traust á þá menn sem komu þjóðinni í þennan vanda eða sváfu á verðinum?   Eða vilja menn styðja stjórnvöld sem ætla að skuldsetja komandi kynslóðir og gera þær að Ísþrælum?   Ég nenni ekki að gera upp á milli þessara afleitu kosta.   

Sigurður Þórðarson, 25.7.2009 kl. 08:54

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón, ég er auðvitað sammála um heimskupör íhaldsins og meðreiðarsveina meðan við dönsuðum í kringum gullkálfinn. Það þýðir ekkert fyrir okkur tvo og þó við tækjum Davíð Odsson með okkur núna að reyna að stýra fortíðinni. Fitch ratingin er orðin eins og Gunnar Rögnvaldsson lýsir fyrir 2010,

Ég gef ekkert fyrir þennan Fitch ef hann gefur okkur einhverja framhaldseinkun núna 2009 á miðju ári annus horribilis. Ég er hinsvegar nokkuð viss um að í næsta góðæri, hegðum við okkur nákvæmlega eins. Það er ekki hægt að stjórna Íslendingum. Að þessu leyti er ég ESB sinni, að þá verða vitleysurnar framleiddar fyrir okkur staðlaðar.- ?ό???? ??? ?????????ή? ??ό????-Forum Scurri Economica eins og manni finnst íslenzkt samfélag vera.

Gömul vísa úr Speglinum hljóðaði svona(vantar eina línu ?)

"Þeir beita pretti í Pakistan

Heiðursmann í Hindustan

Finndist hann

Júlíus: 

Heiðarlegir menn eins og margir þrá og telja sjálfa auðvitað sig vera, eru andskoti fágætir ef boðið er uppá spillingu með eigin hagsbótum.

Halldór Jónsson, 25.7.2009 kl. 09:29

13 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Menn flytja varla úr landi án þess að gera upp skuldir sínar, Halldór! Indirði H. eða hand fulltrúar hljóta að standa vörðinn við allar hafnir og sjá til þess að enginn sleppi.....

Ómar Bjarki Smárason, 25.7.2009 kl. 10:57

14 Smámynd: Elle_

Nú er ríkið að fara að bæta ofan á hundruði milljarðana í bankana, af peningum skattborgara, ofan á alla hundruði milljarðana sem ríkið hefur nú þegar lagt í bankana.  Og á meðan fólkið flýr og ræður engan veginn við hækkandi skuldirnar.  Hvað þurfa auðrónarnir sjálfir að borga af þessu?!?  Eða verða það aldraðir, sem höfðu ekkert með spillinguna og svikin að gera, sem þurfa að borga það?  Það er satt hjá Jóni að við ættum að vera að ræða um það:

Ríkið leggur 271 milljarð í nýju bankana:
http://www.pressan.is/Vidskipti/Lesavidskiptafrettir/rikid-leggur-til-271-milljard-i-nyju-bankana---erlent-eignarhald-raedst-i-lok-september
 

Elle_, 25.7.2009 kl. 12:08

15 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mikið til í þessu hjá þér Halldór.  Það er sjálfsagt að skoða mistök fortíðar ef þau geta reynst okkur víti til varnaðar. Það er aftur á móti fráleitt að mistök fortíðar geti verið réttlæting fyrir jafnvel enn stærri mistökum.   Í þessu sambandi rifjast upp fyrir mér saga af norskum stýrimanni sem strandaði á blindskeri (samt ekki Ice-skeri) og réttlætti mistök sín með því að skipið hafi borið af leið á síðustu vakt. Garmurinn missti tafarlaust réttindin og það að augljós mistök forvera voru ekki leiðrétt varð  til refsiþyngingar. 

Sigurður Þórðarson, 25.7.2009 kl. 14:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 3417961

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband