Leita í fréttum mbl.is

Kjaftur á keilunni !

Ég hef yfirleitt gaman að lesa það sem hún Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar. Meira segja það sem hún skrifaði í Mogggann um  helgina.

Þar tekur hún Sjálfstæðisflokkinn á hné sér. Rassskellir 1600 fulltrúa á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins, mig með, fyrir að deila ekki skoðunum hennar og meðkrata, á nauðsyn þess að ganga í Evrópusambandið. Við séum lummó einangrunarsinnar og eigum að breyta því strax ef flokkurinn eigi yfirleitt að lifa. Og aumingja formaðurinn okkar, hann er ekki beysinn og veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Hún Kolbrún getur sagt okkur til, hún hefur formúluna að því sem Sjálfstæðisflokknum er fyrir bestu. Alþjóðahyggju, ESB og væntanlega fleiri innflyjendur. Við vorum ágætir að samþykkja NATÓ á sínum tíma en síðan ekki söguna meir. Við erum bara orðnir einhver tegund af Framsóknarsveitakommum ef ég skil hana rétt. 

Ég upplifði þennan landsfund þannig, að svona 95 % fulltrúanna væru á móti því að sækja um aðild að ESB. Við vildum láta þjóðina greiða atkvæðum um aðildarumsókn. Séra Þórir og Benedikt Jóhannesson eru eiginlega þeir einu  sem höfðu við orð að ganga á dyr vegna þessa. Ragnheiður Ríkharðsdóttir hefur líklega verið með þeim í anda  og Þorgerður varaformaður flokksins ekki heldur verið búin að átta sig á því hvað starfinu fylgir. Og auðvitað er Dr.Villi staðfastur með sínum vinnuveitendum. En meðaljónarnir eins og ég og Hrafn Gunnlaugsson, við vöðum víst í villu og svíma. Það er víst vitleysa að trúa á landið og þjóðina frekar en Brüsselskt krataveldi.

Mikið var annars slæmt að Kolbrún skyldi ekki vera á landsfundinum.  Þá hefði þetta litið allt öðru vísi út. Það hlýtur að bráðvanta  fleiri kratakellingar í þennan flokk ef hann á eiga lífsvon og losna úr heimóttarskapnum og komast inní nútímann. Ég vona bara að Kolbrún geti sagt formanninum hvað hann á að gera í Icesave málinu, hann veit það víst ekki sjálfur frekar en annað eftir því sem mér skilst á Kolbrúnu.

Það er víst  kjaftur á keilunni segja þeir!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég nenni ekki að eyða tíma í velta fyrir mér hvaða skoðanir Kolbrún hefur. En ef Mogginn réði þig í stað hennar myndi ég gerast áskrifandi aftur.

Sigurður Þórðarson, 10.8.2009 kl. 01:17

2 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Heill og sæll ágæti Halldór. 

Trúi samt ekki að þú hafir verið í  "hláturshjörðinni" sem hló á "réttum" stöðum með fyrrverandi formanni ykkar sem svo skyndilega skaut upp í pontu með fyrirframskrifaða ræðu, þar sem hann útúðaði vinnuhóp og aðra samflokksmenn, sem komust að þeirri niðurstöðu að : "Fólkið brást, en stefnan hélt"! 

Þú skynjar Benedikt og Ragnheiði  ofl. svona 5% af liðinu, sem kemur mér á óvart, því ég hef dálitla tilhneigingu til að treysta dómgreind þinni, af gamalli reynslu.  Treysti líka töluvert á eigin dómgreind (af fenginni reynslu) og tel reyndar að þar skakki töluvert.   Við höldum áfram að bítast um það, en þessi landsfundur verður frægur að endemum í sögunni fyrir þessar ótrúlegu uppákomur í beinni útsendingu, þar sem löngu fyrrverandi formaður flokksins talaði eins langt niður og hægt er til fráfarandi formanns og varaformanns, síðan gaus fjallið og út spratt Bjarni hinn ungi, sem örugglega á farsæla framtíð undir vængjahafi "Valsins" síðar meir, en að færa honum þennan eitraða kaleik, án hreinsunar er næstum því svívirða, ....... að mínu mati.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 10.8.2009 kl. 07:47

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Sigurður og takk fyrir þesi orð, ég kaupi ekki Moggann en rakst á þetta.

Sæl Jenný, takk fyrir þetta skrif og póstinn á dögunum. Þetta sem þú fræddir mig um með fyrirtækið í Kanada datt svoleiðis yfir mig, þetta vita fáir hér heima. Ég skrifa þér bráðum betur.

Ég hló mikið að Dabba þegar hann gaus á fundinum. Ég tók þetta nú sem skemmtiræðu án þess að að ég tæki þetta allt hátíðlega sem kallinn sagði. Menn fara oft mikinn í ræðustólum á þessum landsfundum án þess að vera hengdir fyrir.

Það sem ég var nú einna helst óánægður með var það hversu grófur kallinn var í garð dr. Villa sem er vinur minn þó við séum ekki alltaf sammála, se er þó sjaldnar en hitt. En hann Villi var búinn að skrifa endurreisnaráætlunina útfrá því að landsfunurinn samþykkti að ganga í ESB, sem kvikindið hann landsfundur gerði svo bara alls ekki Og þá klúðraðist alt skrifelsið hjá Villa.

Það var Davíð ekki lengi að sjá og gat greinilega ekki stillt sig að höggva að hætti Þorgeirs frænda síns Hávarssonar.  En það má túlka allt á hinn eða þann veginn Ég veit ekkert hver eftirmál urðu af þess sjói Dabbans en hef nú ekki trú á að það risti djúpt.

En mér er full alvara með því að telja að landsfundur var einhuga um það að Ísland væri betur komið utan ESB. Prósentan getur svo sem verið einhver önnur, en svona var nú tónninn.

Ég get orðið  ESB sinni þá stundina sem  ég horfi yfir Alþingi, mér finnst þetta lið svo risliítið að ég gæti alveg eins boðið mig fram enins og sumir sem þar eru. Ég fæ á tilfinninguna að þar komist engir menn áfram nema meðaljónar og tækifærissinar, sem sameinast um að hafa ráð hinna skynsamari að öngu.  

Halldór Jónsson, 10.8.2009 kl. 09:59

4 Smámynd: Finnur Bárðarson

Gott hjá henni ekki veitir af að hrella smáborgarana

Finnur Bárðarson, 10.8.2009 kl. 16:23

5 identicon

Ég var pínu svekkt út í að Kolbrún skuli aldrei þessu vant tala niður fólks sem er henni ósammála.....hún er feikna góður penni og gaman að lesa eftir hana þar sem að hún likt og Agnes Braga skrifar frá sínu hjarta.  

En henni fipaðist þarna....hún á að virða skoðanir annarra alveg eins og ég umber þetta ESB hjal í henni. Ég fyrirgef henni á grunni eldri pistla frá henni þar sem hún hefur ávalt metið báðar hliðar málanna. Skoðanaskipti eru nauðsynleg.

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3417958

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband