Leita í fréttum mbl.is

Tíu ráðherravit !

Lifandis skelfing var Árni Páll ráðherra tilþrifalítill í Kastljósinu hjá Jóhönnu. Ég hélt að maður ætti að fá svör hjá ráðherra við beinum spurningum um hvað ætti að gera fyrir heimilin í landinu. Hvað ætti að gera til þess að reyna að stöðva landflóttann frá tvöföldun skuldanna ?

Frá ráðherranum kom ekkert nema almennt kjaftæði um að það þyrfti að koma fyrirtækjunum í gang, að efla bankana. Ekki orð um neina ráðgerða ráðstöfun til þess að slá skjaldborg en ekki gjaldborg um heimilin. Hann virtist skilja óljóst að það væri samband milli hærri skatta og skerts gjaldþols, en það ætti samt ekki að hafa teljandi áhrif miðað við annað ótilgreint.

Sérhver þjóð fær þá stjórnmálamenn sem hún á skilið.

Það er svo einfalt, að allir sem þess óska eiga að fá kost á því að setja gjalddaga ársins í ár og þess næsta líka aftur fyrir aðra gjalddaga. Ekki breyta erlendum lánum í verðtryggð íslenzk heldur halda myntunum og vöxtunum í tvö ár. Eftir tvö ár vonum við að hafi birt upp.

Í stað þess þvælir þessi ráðherra um skuldaniðurfellingar sem hann getur með engu móti útskýrt enda óskiljanlegar með öllu slíkar hugmyndir ef menn ætla að varðveita þjóðfélagið. Það verður að fá fresti og fresti á ofan. Gengið mun lækka einhverntíman, vísitala höfuðstólsins mun lækka, fasteignaverð mun hækka.

Margrét Þorbjörg sagði við Thor Jensen þegar svartast var hjá þeim: Við skulum bara bíða, bíða bíða.

Og þau biðu.  Margrét Þorbjörg hefur haft tíu ráðherravit þeirrar gerðar sem nú eru í boði. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

 Sæll Haldór

Svona svara þeir sem ekkert vita og það er sem fólkið kís þetta eru sori þjóðfélagsins.

Jón Sveinsson, 28.8.2009 kl. 00:56

2 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Það væri auðvitað fáránlegt að fara að breyta erlendum lánum í verðtryggð lán, og festa þannig erfiða greuiðslubyrði ártugi fram í tímann. Við sem lifað höfum allnokkrar kreppur viðum að það birtir alltaf upp. Þess vegna er best að bíða og þrauka.

Ágúst H Bjarnason, 28.8.2009 kl. 08:15

3 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Sæll Halldór.

Góð grein, held að fjölmiðlar ættu að hlífa þjóðinni við félagsmálaráðherra, mér er ennþá illt eftir að hafa hlustað á þennan þvætting. Vona að kjósendur verði vanhæfi ríkisstjórnar minnugir þegar þeim gefst næst tækifæri til að sýna vilja sinn.

Þrátt fyrir mikla virðingu sem ég ber fyrir þeim heiðurshjónum  Thor og Margréti Þorbjörgu, set ég örítið spurningarmerki við það að bíða, þau gátu það að vísu, en geta heimili landsins beðið öllu lengur, er ekki meðaljóninn kominn, eða alveg að komast á vonarvöl, með neikvæða eign og lentur á vanskilaskrá 

Kjartan Sigurgeirsson, 28.8.2009 kl. 09:07

4 Smámynd: Elle_

Og ég er löngu hætta að geta hlustað á þann óvitra mann.  Maður getur allt eins lamið höfðinu utan í vegg. 

Elle_, 28.8.2009 kl. 09:12

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Núverandi félagsmálaráðherra er undarlegt apparat. Það hefur ekki og mun sennilega seint koma eitthvað af viti úr þessum froðusnakki. Annar eins bullurugludallur hefur sennilega ekki setið á þingi fyrr. Svei mér ef innkaupakerrur eru ekki skarpari en blessaður maðurinn.

Halldór Egill Guðnason, 28.8.2009 kl. 10:57

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég er einmitt að tala um nauðsyn þess að fólki sé gert kleyft að bíða eftir vori, með því að fresta greiðslum. Ef það er ekki gert er katastrófa framundan hjá fjölda fólks, sem flýr land í örvæntingu. En það skilur enginn í þessari guðsvoluðu ríkisstjórn.

Sjáið hvað VG eru tilbúinr að selja af prinsípum sínum fyrir ráðherratign Steingríms,efnalaugareiganda  á Selfossi og búsetustyrkþega í Breiðholti. Lesið svo ræðu hans um Icesave frá í janúar, hún er blogginu hans Vilhjálms Eyþórssonar. Þessi maður er stórbrotinn í stefnuleysi. Lílega er hann tilbúinn að selja allt fyrir það eitt að vera ráðherra. Það berst seint eitthvað hjálpræði frá svona fólki.

Halldór Jónsson, 28.8.2009 kl. 19:07

7 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Tek undir með þér Halldór. Það eru miklar líkur á því að það sér Kratastrófa framundan hjá fjölda fólks.....því miður....

Ómar Bjarki Smárason, 28.8.2009 kl. 23:47

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú ert aldeilis orðhagur Ómar Bjarki. Fyrst AUÐVISI um blankan útrásarvíking

Núna KRATASTRÓFA,! Þetta finnst mér aldeilis stórkostlegt orð og lýsa þ´vi sem við er að fást.

Bravó!

Halldór Jónsson, 29.8.2009 kl. 08:22

9 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Mér fannst þetta bara svo augljóst, Halldór, þegar ég las bloggið þitt seint í gærkvöldi og mátti til með að skjóta því að. Það þýðir ekki annað en að skemmta sjálfum sér í þessu ástandi sem við búum við. Varla er hægt að ætlast til að aðrir taki það að sér. Og þar sem hef verið einyrki lengi þá reyni ég að sjá spaugilegu hliðarnar á málunum og geng kannski of langt í því á stundum......

Ómar Bjarki Smárason, 29.8.2009 kl. 11:31

10 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Ekki segja að nokkur maður eigi þennan félagsmálaráðherra skilinn.......

Ævar Rafn Kjartansson, 29.8.2009 kl. 13:16

11 identicon

nákvæmlega.....ekki einu sinni Íslendingar eiga þetta skilið.............hjálp hvar er allur "mannauðurinn"

Karen Elísabet Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 20:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband