Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna stjórnmálaflokkar ?

Eitt það furðulegasta sem ég hef séð í pólitík er þessi Borgarahreyfing. Hún sprettur yfir þeim rógi sem dunið hefur yfir Sjálfstæðisflokkinn á undanförnum misserum. Upphrópanir um flokkseigendur, spillingu og hverskyns vammir og skammir og skítlegt eðli forystumanna hans.

Nú sér fólk það, að þrátt fyrir slifsisleysi og önnur alþýðlegheit þingmanna hreyfingarinnar, þá er þessi tilraun að koma sjálfum sér á framfæri á ódýran hátt jafn mislukkuð og yfirlýsingar Frjálslynda Flokksins um að breyta kvótakerfinu. Sá flokkur er nú loksins alveg dauður og flokksmennirnir horfnir aftur til skynsemi og foringinn til bitlinga hjá kommaráðherra.

Borgarahreyfingin er enn fyndnari en Frjálsyndi Flokkurinn. Þingmennirnir geta ekki lengur verið þingmenn fyrir kjósendur sína. Þá vantar nýtt sett af flokksfólki, því þeir  gömlu passa þeim ekki lengur. Þeir hafa ekki getu til  að fara í sveitarstjórnamál skv. viðtali við Þór Sari í kvöld af því þeir eru ekki flokkur heldur hreyfing án fyrirheits um framhald. Hvar er nú árangurinn fyrir þá þrettánþúsund sem létu blekkjast?

Hvernig er hægt að æra hálfa þjóðina upp í það, að sumir stjórnmálaflokkar séu eitthvað óhreint ? Þeim sé ekki treystandi af því að þeim stjórni alltaf misyndismenn sem eigi flokkana? Skoðanakúgun þeirra sé slík að flokkarnir gangi alltaf erinda eiginhagsmuna og gegn þjóðarhag. Aðeins vinstriflokkarnir séu allt öðruvísi.

Þetta er bein afleiðing af því að viðskiptaöfl hafa ausið peningum í það að framleiða svona lygar dag og nótt til þess að koma ár sinni betur fyrir borð. Veikja sterkasta mótstöðuaflið gegn spillingu og mútum. Bera fé í dóma, gera út leigupenna og áróðursmenn í þeim tilgangi.

Nú blasir afleiðingin við. Þá er rokið til af öðrum stjórnmálahröfnum og reynt að koma því inn að Sjálfstæðisflokkurinn, sem þó reyndi flokka mest að ganga gegn sókn spillingaraflanna, hafi orsakað hrunið, beinlínis vísvitandi eða þá fyrir yfirgengilega heimsku sína. Þessi málflutningur skolaði þingmönnum Borgarahreyfingarinnar inn á þing og stórefldi VG og Samfylkinguna og færði þjóðinni Icesave og ESB umsóknina.

Nú er fólkið farið að sjá í gegnum lygavaðalinn og skrumið. Hvað er fólkið að fá gert fyrir sig ? Fjármagnseigendur hafa fengið allar sína fjármuni tryggða og ekki tapað neinum innistæðum. Fólkið sem skuldar hefur ekki fengið neitt nema fullar vístiöluhækkanir og hávexti í sinn hlut, þrátt fyrir norskan Seðlabankastjóra. Fyrir það á ekki að gera neitt nema tala og tala um góð áform ríkisstjórnarinnar. Það er eins og fólk trúi því að ríkisstjórnin sé um það bil að leysa eitthvað, gera eitthvað. En hún er ekki að gera neitt. Uppboðin eru byrjuð og gjaldþrotahrina einstaklinganna er  að hefjast. Kreppan er að dýpka en ekki að grynnast.

Skoðanakannanir sýna að fólkið er farið að iðrast að hafa hegðað sér á þann hátt sem það gerði á stjórnmálasviðinu. Stjórnmálaflokkar eru nauðsynlegar stofnanir þjóðfélagsins, baráttutæki lýðræðisþjóðar. Þeir flokkar sem  hafa reynslu og hefðir, hafa þolað súrt og sætt með þjóðinni áratugum saman eru stórum líklegri til að koma einhverju til leiðar en bindislausir skyndipólitíkusar og skammtímaþingkonur með patentlausnir á hverjum fingri.  

Þéttum raðirnar Sjálfstæðismenn. Okkar tími kemur fyrr en þið haldið !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er merkilegt hvað fólk nennir að standa í því að stofna nýja stjórnmálaflokka frekar en að reyna að starfa innan þeirra sem fyrir eru, þó það geti vissulega verið erfitt að koma málum fram þar, þá er það líklega vænlegra en í nýjum flokki með takmarkaðan líftíma. Kannski er þetta einhvers konar sjálfseyðingarhvöt.....?

Annars sýnist mér allt stefna í það að við verðum með tvo Sjálfstæðisflokka við næstu kosningar. Annar verður svona "Krata-ESB-íhald" með Þorstein, Þorgerði Katrínu, Villa og spurning hvort Bjarni B fylgir þeim ekki líka.... Þessi flokkur ásamt Samfylkingu er líklegur til að fá svona 10% fylgi og ef Samfylking fær um 20% þá verður þessi ESB fylking með svona 30%.....

Þannig að það er rétt hjá þér, Halldór, að það þurfi að þétta raðirnar og halda námsekið fyrir  ES-sinna svo þeir hætti þessu væli og læri að einbeita sér að því sem skiptir þjóðina máli....

Ómar Bjarki Smárason, 18.9.2009 kl. 21:42

2 Smámynd: Jóhannes Birgir Jensson

Veikja sterkasta mótstöðuaflið gegn spillingu og mútum. Bera fé í dóma, gera út leigupenna og áróðursmenn í þeim tilgangi.

Halldór, er þér fúlasta alvara? Flokkurinn sem hefur skipað frændur og vini sem dómara og seðlabankastjóra, sem slökkti á eftirlitskerfi bankanna með breytingu á bindisskyldu (það kom EES ekkert við) og svo má kíkja í sveitarstjórninar til að sjá meira.

Frábær mótstaða þarna gegn spillingu og mútum!

Jóhannes Birgir Jensson, 18.9.2009 kl. 21:52

3 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Æ þakka þér fyrir Halldór, eftir ótíðindi dagsins, að leyfa mér að lesa þessa bráðfyndnu veruleikafirringu sem upp úr þér vellur. Stórkostlegur spuna-farsi!

"Hvernig er hægt að æra hálfa þjóðina upp í það, að sumir stjórnmálaflokkar séu eitthvað óhreint?" spyrð þú. Svarið er einfalt. Það er gert með því að láta leiða þjóðina út í einkavinavæðingu og Hrun. Þá ærist ekki bara hálf þjóðin, heldur megnið af þjóðinni. Og hún (ekki flokkar eða hreyfingar) refsar hinum seku í kosningum. Gerðu það ekki segja að kjósendur séu fífl, Halldór.

Friðrik Þór Guðmundsson, 18.9.2009 kl. 22:34

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar Bjarki,

Erfitt að koma sínum málum fram. Það er rétt.Á landsfudi Sjalfstæðisflokksins eru alltaf svo djöfull margir sem eru gáfaðri en maður sjálfur og gleypa ekki hrátt þá speki sem maður býr yfir. Það er víst þannig sem svona flokkur vrkar.

Kæru kommar, Friðrik og Jóhannes,

Þið eruð sönnunin á því sem ég hef verið að segja. Takk fyrir það.

Halldór Jónsson, 18.9.2009 kl. 23:26

5 Smámynd: Halldór Jónsson

28.4.2009 | 09:39

Jóhannes Birgir,

Ég fór á síðuna hjá þér og finn að við eigum eitt mál sameiginlegt. Kjördæmasvindlið. Við erum að kjósa þingmenn fyrir akra, tún og flatarmál en ekki fók. Þetta er þvílíkt helvítis svindl að það ætti að gera einhverja uppreisn gegn þessu samsæri gegn lýðræðinu, sem allir flokkar eru ekir um.

Þetta þurfum við að hamra á.

Kjördæmasvindlið

Í fyrsta lagi þá er engin eftirsjá að Sigurði Kára.

Í öðru lagi þá er kjördæmaskiptingin galin. Norðvesturland hefur tvöfalt atkvæðavægi á við okkur í Suðvestur (Kraganum).

Tölurnar eru sumsé þessar:

KjördæmiKjörskráÞingmennatkv/þingmennvægi
Rvk N437841139801,2
Rvk S437481139771,2
SV582031248501,0
NV21294923662,0
NA283621028361,7
Su325051032511,5

Þarna fær sumsé lægsta gildið vægið 1 og svo hin reiknuð út frá því.

Til að laga þetta þannig að við förum nær því að ná 1 maður 1 atkvæði þá yrði þingmannaskiptingin svona:

KjördæmiÞingmennBreyting
Rvk N12+1
Rvk S12+1
SV16+4
NV6-3
NA8-2
Su9-1

Ef landið væri allt eitt kjördæmi þá hefðu úrslit kosninganna orðið aðeins öðruvísi:

(breytt, auð og ógild atkvæði tekin út úr útreikningi)

ListiAtkvæðiÞingmennÚtreikningurÞingmenn  Breyting
      
B2766999,319 0
D443691614,9315 -1
F414801,401
 +1
O1351944,555 +1
P110700,370
 0
S557582018,7719 -1
V405801413,6614 0

Þarna koma sumsé jöfnunarmenn inn í eftirfarandi röð:

 Ég stend með þér í þessu máli !

Halldór Jónsson, 18.9.2009 kl. 23:39

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Kjördæma skipunin er í ætt við þá í EU, sem á ekki mörg ár eftir ólifað í núverandi mynd í ljósi rökhugsunar ráðandi meirihluta.

Svokölluð einkavinvæðing og breyting á markaðagrunnforsendum var innleidd í EU á sínum tíma. Með hagsmuni meginlandsstórborga í nnrimarkaðasamkeppni að leiðarljósi. 3% mannafla EU vinnur við landbúnað og fiskveiðar svo sem á Íslandi. Hinsvegar sker Ísland sig þegar kemur að þjónustugeiranum 78% í Íslandi [herlausu] en 69%í EU [67% í þýskalandi]

EU þjóðartekjugeirinn er haldið upp af stóriðjuverum fullframleiðslu og tæki, en Íslands af 1.stigs vinnslu hráefna sem eru hluti af grunni samkepppinnar hjá þeim og stefnir í að lúti allfarið verðlagsákvæðum Umboðsnefndarinnar, svo sem samkeppni um lægsta dreifingarkostnaðinn á hráefnum, 1.vinnslustigi og orku  til miðborganna heimsvæða stóriðjuveranna.  

 EU-sinnar [innlimunar] í öllum flokkum hugsa ekki eins og ráðandi aðilar í EU get ég vottað. Rökræður þekkjast ekki á Íslandi vegna þess ríkir ekki sú hugsun á Íslandi.

EU byggir á miklum auði áróðstæki og beitir honum í þágu markmiðsviða sinna samkvæmt þúsund ára hefðum.

Fyrir síðustu þjóðarsátt hefur annexation Íslands verið í myndinni hjá EU, hvað aðferðum hefur verið beitt þarfa ekki að spyrja í ljósi þroskaferils Íslands inn í EU.

Mjög sniðugt stjórnmállega séð hefur allan tímann verið að þakka sér eða kenna hinum um verkanir regluverksins einmitt til að vernda eigin hagsmuni og eiganda regluverksins.

Byggja heimmarkað eða samfélag á um yfirbyggingu að EU fyrirmynd og láta grunnin koma af sjálfum sér er ekki að hugsa heilstætt, það er að byggja samfélag á sandi.

Veikleikarnir hafa alltaf verið yfirgreindum ráðamönnun EU ljósir [neysluveðverðtrygging á heimilum, hlutfallslega risastórir lífeyrissjóðir, og  fjármálageiri m.a.]. Eitt aðal stolt allra stjórnmála flokka sér í lagi samfó.

Skuldfesti getur átt við þegar þrælar skuldamanns [af æðri ættum] ganga til fjárfestis og vinna fyrir skuldunum sjá Grágás. Mikið var brennt að skuldbréfum Rómverja á sínum tíma. 

Mikið veltur á að skuldarinn telji sig eiga sitt, því það hámarkar arðinn í ljósi þúsund ára reynslu alþjóðafjárfesta. Til langs tíma skiptir öllu máli að af komendur fyrstu skuldþrælanna hafi sannanir fyrir því að forfeður þeirra hafi verið vanþroskaðir og upphaflegu skuldirnar hafi verið lán í sjálfum sér til að tryggja stöðugar greiðslu til miðstýringarinnar. Eini stöðuleikinn sem Umboðið í Brussel fær borgað fyrir að tryggja.  

Eignarrétturinn skiptir engu máli, hjá alþjóðfjárfestum heldur hámörkun arðsins til langframa.  

Þjóðverjar t.d. stand vörðu um til langframa að þeirra skattpeningar í Miðstýringunni fari ekki í að greiða niður samkeppni annarra Meðlima-Ríkja sem er ólöglegt samkvæmt  Samningum EU.

Samkeppni aðstoð kostar sín þóknun [Commission] það er NEFNDINN með umboð til 5 ár með lætur framkvæma með því að inna af hendi: þær framkvæmdir ólýðræðislegra kjörinna starfsamanna sinna stjórnfæra [organs] valdir úr hópi afburða yfirgreindra umsækjanda úr bestu skólum EU.

78% er aðalatriði, en 3% er ásættanlegt smáatriði.

Óbeint eignarhald og stöðugur hagnaður er aðalatriði, en ekki sjálfgefinn ábyrgð eigandans.

Guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur, þú getur sjálfum þér um kennt, það kemur mér ekki við. Þjóðverjar, Frakkar og Bretar.    

Júlíus Björnsson, 19.9.2009 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband