Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstætt Ísland !

Íslendingar geta sett sín eigin fjárlög án þess að láta AGS anda niður um hálsmálið á sér. Segjum AGS að hypja sig.  Við förum ekki þá leið að kaupa vinskap við ykkur sem eruð ekki vinir okkar í raun með því að leggja drápsklyfjar á þegnana og skera niður alla heilbrigðisþjónustu og löggæslu í landinu.

Nei takk, við skulum ráða okkar málum sjálfir. Við þurfum ekkert á ykkur að halda !Við höfum okkar eigin mynt, við eigum miklu meiri auðlindir en þið,  við getum yfirkomið, við getum komist af !

Segjum við Hollendinga og Breta: Komið og sækið okkur, við borgum ekkert ótilneyddir af skuldum óreiðumanna. Við hvorki viljum né getum.

Ríkissjóður skuldaði ekkert fyrir ári síðan. Hvað hefur breyst ? Hvaðan kemur allur þessi vandi núna ? Eigum við ekki að hugsa okkar ráð áður en ríkisstjórninni tekst að selja okkur í þrældóm á altari ESB ?

Við eigum okkar stríð einir og okkar opnu sund! Niður með landsöluöflin! Niður með ESB ! Niður með ríkisstjórnina!

Er ekki sjálfstætt Ísland það sem öllu máli skiptir?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragnhildur

Ég er 100% sammála þér! Hárrétt !!Takk

Anna Ragnhildur, 20.9.2009 kl. 23:48

2 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er mikilvægt að halda sjálfstæðinu og það þarf að skoðast vel hvernig því verður best við komið...... Líklega betra að lifa við einhver höft í útstreymi fjármagns tímabundið meðan við erum að ná fótfestu á ný og og ná áttum við breyttar aðstæður....

Ómar Bjarki Smárason, 21.9.2009 kl. 00:49

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Guð hjálpar þeim sem hjálpar sér sjálfur. Þeir sterkustu lifa. Smá ríki geta sérhæft sig í litlum mörkuðum og hugsað stórt. Ísland verður sjálfstætt þegar allir losna úr skuldafjötrun.  Fjármálgeirinn á Íslandi hvað kostar hann mikið af þjóðartekjunum? Skerum hann niður þá minnkar almennur fjármagnskostnaður. Uppbygging hana á gervi forsendum kallað á innflutning fólks nú eru þúsundir í fjármálgeiranum á launum langt yfir meðaltali og veltan hvað 10% af því sem var þegar sápukúlan sprakk.

Verum með eðlilega þjónustufjármálageira það er í hlutfallslegu samræmi við  Veltu og íbúðafjölda þjóðarinnar samborið við alþjóðasamfélagið.  

Júlíus Björnsson, 21.9.2009 kl. 00:59

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Tek undir með þér Halldór,en hvernig förum við að? 

Helga Kristjánsdóttir, 21.9.2009 kl. 01:36

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Lettneska leiðinn er í boði EU? Guð hjálpar sér best sem hjálpar sér sjálfur. Sérhver á sínum eigin forsendu. Ísland er vörumerki utan bandalaga í góðum samskiptum við við margar aðila sem vanta aðstöðu, hráefni og orku.

Galdurinn að þeir stofni minnst skúffufyrirtæki hér  [innan okkar lögsögu verður samið] og séu nógu margir í innbyrðis samkeppni um næstu kvóta úthlutun. Svo getum við sótt um  vegna sérstöðu að fá hingað alþjóðstofnanir vegna einstakrar stöðu Íslands þegar allir hinir eru háðir og í samkeppni.  Á þessum grunni getum við svo byggt okkar eigin samkeppni geira í hverju sem er gæða fullframleiðu og hátækni. 

EFTA og regluverkið EU eru í veginum í augnblikinu.

Júlíus Björnsson, 21.9.2009 kl. 02:58

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég þoli ekki þennan lyddu- og undirlægjuhátt sem hefur viðgengist.

Mikið vildi ég að við ættum pólitíkusa sem tala eins og þú gerir núna. Þeir fengju mitt atkvæði og minn stuðning, svo mikið er víst.

Sigurður Þórðarson, 21.9.2009 kl. 07:20

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Heyr, Heyr!

Halldór Egill Guðnason, 29.9.2009 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband