Leita í fréttum mbl.is

Gísli Marteinn upprisinn !

Ég sá í blöðunum að Gísli Marteinn er upprisinn eftir að hafa stundað nám í útlöndum. Mér fannst það hefði mátt fylgja fréttinni um hvað prófritgerðin hans hafi fjallað og hvaða undirtektir hún hafi fengið. Því nú er Gísli orðinn alveg klár á að reikna Reykjavíkurflugvöll útaf. Byggja blokkir á brautunum og spara milljarða.

Ég hef verið með opna skoðanakönnun um þetta mál. Hún stóð lengi 1:10 Reykjavíkurflugvelli í vil. Nú virðist hún festast í 15:85. Gísli þarf því að sækja framhaldsfylgi sitt í minni hópinn og er það vel í sjálfu sér.

Það eru sveitarstjórnarkosningar að vori. Vonandi verður það tækifæri notað til að kanna afstöðu manna í einhverjum þjóðþrifamálum. Með því að gefa fólki kost á að svara einhverjum spurningum samhliða atkvæðagreiðslunni. Til dæmis afstöðuna til ESB, stóriðju, lögreglumála, hlutfall foreldra í leikskólagjöldum, Reykjavíkurflugvallar.

Er ekki kjörið að Samtök Sveitarfélag fari að undirbúa að bjóða uppá svona spurningavagn á kjörstöðum? Spara sér bardaga við vindmyllur almenningsálitsins?

Spara Gísla Marteini mislukkaða upprisu ? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Allt sem Gísli sagði er kórrétt um skipulag og samgöngur innan borga.

Ekkert er hrekjanlegt þar ef notuð er mælistika stærðfræðinnar eða vísinda nefnd við Raun.

Vissulega munu fólk á Eyjafjarasvæðinu telja brýnast að grafa göng undir Vaða,,heiðina" (við að  vestan teljum þetta vera hálsræfil) og munu nánast allir norður þar, telja göngin sem nefnd hafa verið Héðinsfjarðagöng bráðnauðsynleg og fjármunum vel varið.

Raunvísindin eru þar ekki sammála.

Ef við ætlum að spara að viti, er best, að leggja niður flug til Rvíkurflugvallar, sameina á einn stað sem mest af Háskólakennslu (við erum ´jú ekki nema liðlega 300 þúsund).  Mynda Háskólasamfélag þarna sem standi erlendum á sporði, leggja af greinar sem eru svona 2007 eins og Kvennafræði og annað viðlíka bull.

Það er kippkorn til Keflavíkur og ekkert að því að leggja þangað einteinunga.

Bless í bili minn kæri vallarvinur frá Kópavogi.

Bjarni Kjartansson, 21.9.2009 kl. 08:58

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér skilst að Gísli útskrifist ekkert fyrr en í vor og ekki um neina ritgerð að ræða í það minnsta ekki strax.  Ekki er ég búinn að sjá að það breyti neinu þetta nám hans; hann hefur alltaf verið rugludallur og nám breytir ekki eðli manna þótt vissulega geti það eitthvað "dulið" eðlið eins og við höfum orðið vitni að ég nefni engin nöfn en  fyrsti stafurinn er Hannes Hólmsteinn.

Jóhann Elíasson, 21.9.2009 kl. 09:18

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Málefnalegur ertu Jóhann...

Hjörtur J. Guðmundsson, 21.9.2009 kl. 11:02

4 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Augnablik! Ekki er þetta sá  sami Gísli Marteinn og skreytti sig  með  prófgráðu frá  Háskóla Íslands, - prófgráðu sem hann ekki  hafði ?

Eiður Svanberg Guðnason, 21.9.2009 kl. 11:44

5 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Er þetta ekki Gísli sá sem fór til Skotlands til að læra að verða borgarstjóri?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 21.9.2009 kl. 13:34

6 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það væri "hrein snilld" að koma öllum skólum á háskólastigi fyrir í miðbæ Reykjavíkur, þannig að á vissum tímum dagsins eru allar götur til og frá miðborginni tepptar. Hvílík skipulagssnilld væri það ekki.

Og svo vantar þarna allt til alls, eins og t.d. íþróttaaðstöðu, enda á HÍ engin keppnislið lengur í neinum greinum íþrótta.

Og af hverju má Reykjavík ekki vera Reykjavík í stað þess að þurfa að apa eitthvað borgarskipulag eftir einhverjum öðrum....? Og flugvöllin þurfum við þar sem hann er ef Reykjavík á að gegna hlutverki höfuðborgar, ella flyst höfuðborgin með flugvellinum til Keflavíkur....

Ómar Bjarki Smárason, 21.9.2009 kl. 14:29

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Gísli Marteinn notar ákaflega þrönga sýn á málið og skoðar það bara út frá Reykjavík einni. Ég vil fá að vita hvar þungamiðja búsetunnar á öllu svæðinu frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar er og hvar samsvarandi þungamiðja starfa er.

Þessi þungamiðja hefur verið að færast í austurátt og sú fyrri er að nálgast Mjóddina og Smárann og sú síðari vafalaust ekki langt undan. 

Þar með er Vatnsmýrin komin vel út úr miðjunni og hún og gamli miðbærinn í Reykjavík geta aldrei orðið þungamiðja byggðar, vegna þess að stærstu krossgötur Íslands eru við Elliðaár, ekki við Tjörnina eins og þær voru á fyrri hluta síðustu aldar þegar siglingarleiðin og landleiðin mættust þar. 

Sundahöfn er álíka langt frá krossgötunum og Vatnsmýrin og tekur álíka mikið rými og flugvöllurinn. Af hverju vill Gísli Marteinn ekki leggja hana niður og flytja til Njarðvíkur svo að íbúðabyggð geti risið við Viðeyjarsund? 

Reykjavíkurflugvöllur tekur 7% lands á Seltjarnarnesi og hafnirnar tvær um 10%. Miklabrautin ein tekur 3%. Hvers vegna þá ekki að leggja hana niður og reisa þar íbúðabyggð?

Samgöngur og krossgötur eru forsenda fyrir borgir og þessi þrjú mannvirki taka um 20% af Seltjarnarnesi. Raunar tekur gatnakerfið meira en 50% af borgarlandinu.

Hvers vegna vill Reykjanesbær ólmur fá flugsamgöngur til sín?  

Ómar Ragnarsson, 21.9.2009 kl. 15:52

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Dullur,

Það er vonlaust að ræða við þig um flugvöllinn, við skulum bara tala um eitthvað annað. En þetta háskólasamfélag sem þú talar um , það held ég að verði nú fljótt baggi á þjóðinni þegar það fer að útskrifa alla Gíslana og spekingana. Ég er fylgjandi Seyðisfjarðargöngum, þau munu koma og gera Egilsstaði að Aþenu Austurlands með Seyðisfjörð sem Píreus.

Ómar. Það er langt síðan að ég sá það á korti að miðja höfuðborgarsvæðisins íbúalega séð er í Smáralind í Kópavogi. Hún flyst auðvitað austur eins og þú bendir á. Þetta eru mjög skarplegar athuganir hjá þér og þungvægar í svona umræðum og bið þig að halda þessu vel til haga fyrir alla Gíslana.

Miðbær Reykjavíkur getur ekkert átt sameiginlegt með miðbæjarhugstaki fyrir Húfuborgarsvæðið., þetta er einskonar Theresienwiese eins og Münchenerbúar nota á Oktoberfest, notaður til fyllería og annarra hátíðarhalda. Þarna er annars ekkert nem búllur og túristar, gjaldþrota bankar og fuglar á tjörninni. Liggur eiginlega í útjaðri byggðarinnar.

Auðvitað vill Árni Sigfússon fá flugvöllinn til sín, þá verður Reykjanesbær höfuðborg með tímanum.

Eigum við ekki að tala fyrir víðtækri skoðankönnun meðal kjósenda landsins í sveitastjórnarkosningunum í vor ?Lókal og Glóbal málefni ?

Halldór Jónsson, 21.9.2009 kl. 20:36

9 Smámynd: Sigurður Ingólfsson

Missti Gísli Marteinn eitthvað úr við námið og á hann eftir að finna út hvernig ástandið er hér nú. Kannski að hann helli sér út í stokkasmíði og þríhæða gatnamót eins og ekkert hafi í skorist. Fyrir Ómar og aðra sem hafa áhuga á skipulagi vil ég benda á stórmerkilegan hlut. Það er höfuðborg frönsku eyjunnar Nýju Kaledoníu (New Caledonia á ensku ) Hún heitir Nouméa en eyjan er talsvert austur af Ástralíu. Svo vill til að borgarstæðið er nauðalíkt Seltjarnarnesinu okkar og þar má meira að segja finna flugvöll. Jafnvel eyjarnar eru svipaðar en landfyllingar meiri. Einnig  fjöldi íbúa of.ofl. Hvet ykkur og alla áhugamenn um skipulag að fara inn á Google Earth og hafa upp á þessari borg.

Sigurður Ingólfsson, 21.9.2009 kl. 20:43

10 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Pottþétt rök, Ómar. Enda ekki við öðru að að búast.  Nú mega rugludallarnir fara að vara sig.

Eiður Svanberg Guðnason, 21.9.2009 kl. 22:37

11 Smámynd: Hörður Halldórsson

 .Nú verða Háskólar og Þjóðarspítalinn í vesturbæ Reykjavíkur ,en mátti ekki eitthvað af þessum stofnunum  vera í Garðabæ ,Geirsnefi eða við iðnaðarvoginn sem er í skurðpunkti umferðaræða? Léleg dreifing á umferð ,vond umferðarpólitík.

Hörður Halldórsson, 22.9.2009 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 3418163

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 56
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband