Leita í fréttum mbl.is

Göbbels hefði ekki gert þetta betur.

Stórkostlegt að heyra í Indriða lýsa því í útvarpinu  að góður hefði hann verið Svavars-samningurinn, betri hefði hann verið fyrirvarasamningurinn en þessi sem nú væri í undirskrift væri sá allra besti af öllum mögulegum, rétt eins og í Birtingi Voltaires um hina bestu veröld af öllum veröldum.

Og svo kom fréttin um snilld ríkisstjórnarinnar. Hún  myndi skrifa undir Icesave í hádeginu og síðan yrði beðið með það óákveðið að leggja málið í heild fyrir Alþingi. Næsta ár eða hitt, hvað máli skipti það þegar Indriði væri ánægður

Fyrir mér getur þetta alveg eins þýtt hversu lengi ríkisstjórnin telji að það  taki að múta Ögmundi og hans liði til að játa og éta ofan í sig .  Það er treyst á að hægt verða að fela þessi smáatrið í breyttum Icesave-samningi  innan í einhverju stærra upphlaupsmáli, sem hlýtur þá að vera inngangan í fögnuð Herra þeirra, ESB. Áreiðanlega eru Kratarnir búnir að fá loforð um snöggsuðu aðildarumsóknarinnar  ef þeir gangi frá Icesave eins og Bretum og Hollendingum líkar. Þá fáist nóg af lánum til að hefja gjöfina á garðana og útdeila norrænum náðarbrauðunum til  verðugra markhópa, sem kjósa rétt. Alþingi fær svo ef til vill að fjalla um það mál seinna þegar ríkisstjórninni passar.

Mörgum finnst að  verið sé að svíkja Ísland í hendur auðvaldsins og útsendara þess í AGS með all-fasístískum hætti. Þinginu er vikið frá .  Allt er lagt að veði í nýjum Icesave tortímingarsamningi.  Landið, auðlindir og ríkisfyrirtæki eru veðsett  til  dýrðar alheimskapítalsins í AGS og norrænnar samvinnu. Fjöllin, fossar og fegurðin eru sett á fórnaraltari Kratanna  sem fá nú  sjá fram á að fá í askana sína  úti í Brüssel. Þetta er kaupverðið á EES.

Á  meðan verður gaman að fylgjast með  Ögmundi, Lilju og Atla  leita að þeirri samvisku sinni sem dugar þeim  til að gleypa það sem fyrir þau  er sett af Steingrími  hinum stefnufasta.  Að hvaða málum skyldi þau  Jóhanna  ætla að leyfa Alþingi að rísla sér með meðan hún er að stjórna hinu stóra samhengi hlutanna?  Ætla þau að stjórna  hér öllu til sjós og lands með tilskipunum og erlendum samningum í friði fyrir nöldrurum á Alþingi ?

Kemst Alþingi Íslendinga neðar en þetta að láta kommúnistastjórnina segja því að þegja og skammast sín.

Nú er líklega glott breitt á Bessatöðum yfir ráðdeildarsamri ríkisstjórn.

Göbbels hefði ekki gert þetta betur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Það er greinilegt að hvorum þú ert hrifnari!

Auðun Gíslason, 19.10.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hefði eina heilafruma Össurar hrokkið á ljós hefðum við ekki þurft að standa í þessu. En sá heiladingull er fastur í ESB gírnum í haus Össurar. Hann vinnur ekki fyrir Ísland heldur fyrir Breta og ESB.

Því var Ögmundur notaður sem einskonar klósett_zeta. Það var Ögmunudr en EKKI ríkisstjórn aumingjaveldis Íslands sem hörkk í gír. Hefði hún öll hrokkið í gírinn þá værum við ekki svona skuldsett og það hefði ekki þurft að úrýma þjóðfélaginu eins og við þekkjum það.

Ríkisstjón Steinhönnu Evrópusambandsdóttur er mjög ánægð núna. Hún gerði ekki neitt frekar en fyrri daginn. Ekkert annað en að vinna saman með Bretum og ESB gegn hagsmunum Íslands og Íslendinga.

Heybrækur með hálm í heila stað ráða Íslandi núna. Maður ælir!

Gunnar Rögnvaldsson, 19.10.2009 kl. 20:25

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Fuglahræður !!

Gunnar Rögnvaldsson, 19.10.2009 kl. 20:26

4 Smámynd: Baldur Hermannsson

Æ kommagreyin, þau ráða ekki neitt við neitt og í þessu tiltekna tafli voru þau Geir og Solla búin að eyðileggja drottningarvænginn og gefa eftir biskupaparið og láta af hendi hrókalínurnar. Erfið staða strax í byrjun og ekki bætti ræksnið Svavar um betur. Þau hefðu átt að fá þaulvana, harðsnúna samningamenn, þá hefðum við átt smáglufu.

Baldur Hermannsson, 19.10.2009 kl. 23:08

5 Smámynd: Haraldur Hansson

Það er ekkert hættulegra fyrir Ísland og framtíð þjóðarinnar en Samfylkingin. Þetta er ekki stjórnmálaflokkur heldur sundurlaus hjörð sem er límd saman með herópinu um uppgjöf og Evrópusambandið. Enginn þingmaður hjarðarinnar mun spyrja spurninga um IceSave, bara segja já til að trufla ekki stefnuna til Brussel. Því þá myndi Samfylkingin springa.

Haraldur Hansson, 20.10.2009 kl. 01:07

6 Smámynd: Baldur Hermannsson

Nú eiga Íslendingar að afturkalla umsóknina hið snarasta.

Baldur Hermannsson, 20.10.2009 kl. 03:06

7 Smámynd: Sigurjón Sveinsson

Þegar ég heyrði Indriða dásama samninganna, hló ég upphátt (var að keyra heim) hristi hausinn, skipti um rás (því ekki vil ég hlusta á svona heilaprump áfram) og velti fyrir mér hvort að starf hans sem ríkisskattstjóri (álíka flott staða og ríkisböðull) veldi því að hann teldi vasa skattgreiðenda botnlausa auðlind sem beri að þurrausa sem mest má.

Sigurjón Sveinsson, 20.10.2009 kl. 07:44

8 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Það er stórmannlegt og ber vott um góðan málstað þegar menn líkja  þeim sem hafa aðrar skoðanir en maður sjálfur við Göbbels áróðursmeistara Hitlers. Það er  fyrir neðan virðingu þína, Halldór, að skrifa  svona bull. Þú getur  sagt Ýmislegt um Indriða  án þess að  lúta svona lágt.

Eiður Svanberg Guðnason, 20.10.2009 kl. 11:18

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Eiður minn ég var ekki að líkja vini mínu Indriða við Göbbels og heldur ekki Steingrími. Ég var að líkja aðferðafræðinni við að gera samninginn og láta þingið ekki komast í hann af því að samningurinn væri  svo góður  við starfsháttu sem gamli kallinn hefði verið fullsæmdur af. En hann sagði svart hvítt og hvítt svart með mikilli rökvísi og málskrúði ef honum þótti svo henta.  Hvað sem sagt verður um Dr. Göbbels var þetta ljóngáfað kvikindi en kexruglaður á pólitíska sviðinuþ 

Halldór Jónsson, 20.10.2009 kl. 16:05

10 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Það eru ótrúlega margir kexruglaðir á  pólitíska sviðinu, Halldór. Það heyrði maður (einkum) á stjórnarandstöðunni á Alþingi Íslendinga í dag !

Með góðum kveðjum,

Eiður Svanberg Guðnason, 20.10.2009 kl. 20:02

11 Smámynd: Baldur Hermannsson

Ruglaðasti stjórnmálamaður Íslands í dag heitir Guðfríður Lilja. Hún er kexrugluð í bókstaflegri merkingu. Hlustaði á hana í Kastljósi í gær. Það er ekki til heil brú í þessari vesalings konu og það versta er hvað hún er yfirþyrmandi leiðinleg.

Baldur Hermannsson, 20.10.2009 kl. 20:23

12 identicon

Mér fannst Eiður vera kexruglaður þegar hann var á þingi.

Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 21.10.2009 kl. 19:08

13 Smámynd: Baldur Hermannsson

Er þetta ekki nokkuð harður dómur Pétur? En þingferill Eiðs var miklu styttri en ég hafði vænst.

Baldur Hermannsson, 21.10.2009 kl. 19:18

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Pétur, ekki er þessi Eiður Svanberg Eiður Guðna sendiherra og félagi min úr Norðurmýrinni ?

Halldór Jónsson, 24.10.2009 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband