Leita í fréttum mbl.is

Líf en ekki dauðann !

Ég las það einhversstaðar að fríverslunarviðræðum við Kínverja hefði verið hætt. Ástæðan var sú að Íslendingar hefðu sótt um aðild að Evrópusambandinu.

Kínverjar eru sú þjóð á jörðinni sem hefur yfir mestum dollarabirgðum að ráða. Þeir eru í vandræðum með að koma þeim fyrir. Þeir eru að reyna í Afríku þar sem áhættan er mikil og Kínverjar eiga í erfiðleikum með að passa peningana þar. Hér er pláss fyrir peninga. Þá virðist ríkisstjórninni um að gera að gera að eyða milljörðum í umsókn að Evrópubandalaginu sem Íslendingar vilja ekki sjá að ganga í.Og reyna aftur að komast í Öryggisráðið.

Hversvegna er ekki reynt að fá Kínverja til samstarfs við Íslendinga? Um fjármögnun virkjana?Um fjármögnun tollvegaframkvæmda? Jarðgöng frá Seyðisfirði til Egilsstaða? Um byggingu álvera?

Hversvegna er mænt svona á AGS og lán frá Norðurlöndunum? Eru dollarar ekki eins á litinn þó þeir komi frá Kína?

Hversvegna er svona mikilvægt að ná niður fjárlagahallanum þegar mest ríður á að endurvekja atvinnulíf landsins?  Á ekki að reka ríkissjóði með halla þegar kreppir að í atvinnumálum?

Hverskonar brjálæði er í gangi þegar bara á að hækka skatta á atvinnulausum lýðnum? Er besta aðferðin til að reisa upp örmagna hest sú að að berja hann?

Ég held að hér sitji að völdum sú vitlausasta og versta ríkisstjórn sem nokkru sinni hefur verið við völd á Íslandi. Það er eins og hún sé samsett af ráðleysingjum sem sem hvorki heyra né sjá það sem fram fer í þjóðfélaginu. Ég fékk hreinlega yfir höfuðið að lesa rolluna eftir Össur í Mogganum í dag. Innihaldslaus steypa með frösum um ekki neitt. Er ekki sagt svo að hver þjóð fái þá stjórnmálamenn sem hún eigi skilið ? Ég veit bara ekki hvað ég hef unnið til saka til þess að sitja uppi með Össur. 

Þjóðin treystir á Davíð Oddsson umfram aðra fyrirmenn sína, það sýnir skoðanakönnunin hægra megin á síðunni. Sama sýna aðrar kannanir. Við þurfum að fá nýjar kosningar sem fyrst. Losna við þessa ömurlegu ráðleysis ríkisstjórn sem enginn treystir og ekki hefur upp á neitt annað að bjóða en "blóð,svita,torrek og tár".

Við viljum líf en ekki dauðann !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algörlega sammála, þetta er versta ríkisstjórn frá upphafi, það ætti að draga landráða/lygaparið fyrir landsdóm vegna aðför að sjáfstæði landsins og brot á stjórnarskrá lýðveldisins.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 21:38

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

Væri ekki best fyrir Íslendinga að fá að  að taka upp Yuan sem gjaldmiðil.Yuan fellur síst af öllum gjaldmiðlum .Mikill hagvöxtur og framleiðsla austur þar. Dollar og Evra geta fallið.

Hörður Halldórsson, 15.11.2009 kl. 21:44

3 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Veistu, allt sem þæu segir er svo satt !

Þessi ríkistjórn er blinduð af ESB ljósinu, og eitthvað .arf að ske til að hæun skilji að við, kjósendurnir (þjóðin) viljum ekki ganga í ESB.

Skil ekki hvernig þessi ríkistjórn heldur að hún haldi velli. Nema kannski að hún fresti kosningum í þágu ESB.

Birgir Örn Guðjónsson, 15.11.2009 kl. 22:58

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er nú eiginlega stórfurðulegt, Halldór, að ríkisstjórn sem er með "tunnel vision" skuli ekki ráðast í jarðgangagerð í stórum stíl.... En við höfum greinilega komist að sömu niðurstöðu um þessa ríkisstjórn. Hún er sú vitlausasta sem þjóðin hefur haft, líklegast sú allra allra lélegasta sem við höfum nokkurn tíma haft. Og það er akkúrat ekki það sem við þurfum núna.

En því miður verðum við að bíða þar til rannsóknarskýrslan liggur fyrir til að sjá hverjir verða stjórntækir. Varla förum við að manna ríkisstjórn með tukthúslimum. Þannig að það þarf að fara varlega þar. Og því gætum við setið með handónýta stjórn þar til fyrir liggur hverjir liggja undir grun um misjafnt mjöl í pokum sínum.

Það er eins ef færa mönnum sem eru búnir að koma þjóðinni á kaldan klaka og koma fjöldanum öllum af góðum fyrirtækjum á hausinn mjólkurkýrnar aftur svo þeir geti haldið áfram að arðræna þjóðina. Slíkt einfaldlega gengur ekki upp. Þjóðin á ekki að þurfa að vera tilraunadýr og treysta á að böðlinum mistakist öðru sinni í að koma þjóð sinni á kaldan klaka......

Ómar Bjarki Smárason, 15.11.2009 kl. 23:32

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Rétt hjá þér, Halldór: Kínverjarnir hættu þessum viðræðum við okkur, af því að þeir sjá enga meiningu í því að ræða við ríkisstjórn sem hefur sótt um að láta innlimast í Evrópubandalagið, enda myndi fríverzlunarsamningur milli þessara tveggja landa ógildast um leið og við færum inn í Brusselbáknið.

Við höfðum færi á því að fá slíkan samning við Kínverja og koma vörum þeirra með enn auðveldari hætti (fyrir þá) á framfæri í Evrópu með því að ljúka hér lokahandtökunum á þær vörur eða a.m.k. raða þeim saman og pakka þeim inn hér o.s.frv. og senda þær svo inn í EB-báknið út á okkar aðild að EES-samningnum.

Nei, auðvitað fór þessi fanatíska evrókratastjórn ekki þá leiðina til að efla okkar tekjustofna og um leið að lækka hér verðlag umtalsvert.

Hélt einhver, að þetta væri þjóðnýt föðurlandsvinastjórn?

Jón Valur Jensson, 16.11.2009 kl. 00:10

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Helstu kaupendur hráefnis Ísland það heitir hinu megin við borðið í samninginum er einmitt ráðandi meirihluti í EU. Þar sem samkeppni gengur út á fullvinnslu og tækniframleiðslu, síðan 1957 hráefni og 1. vinnslustig þeirra orðið verðlagsstýrður grunnur í þágu samkeppni og þágu verkskiptra lágvöruframleiðslu til að lækka launakostnaðar heildarinnar [Meðlima-Ríkjanna].

Eðlilegt er að athuga allra leiða um að auka tekjur af útflutning m.a. ekki síst til að fara með tromp í bakhöndinni þegar farið verður fram á að raska verðlagsgrunni heildarinnar í dag, sem hlýtur að verða efnahagslegur þjóðhollustu tilgangur íslensku fulltrúanna í meintum aðildar viðræðum við gagnstæða hagsmuni um almennt betri lífskjör til handa þjóðinni.

Ekki trúi ég því eftir öll þessi ár að þeir þekki innviði EU og þurfi að spyrja hvað okkur standi til boða, ef við höfum engan valkost.

Kínverjar toppa meira segja nútíma Íslendinga í þjóðhollustu og innri arðbærisjónarmiðum heildarinnar. Ekki er gott að vita að því að leyniþjónusta þeirra telur Ísland vera orðið leppríki hæfs meirihluta EU. Þökk þeim alþingsmönnun sem elska fjárfesta hæfs meirihluta í EU meira en sína eigin þjóð.

Júlíus Björnsson, 16.11.2009 kl. 02:08

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar Bjarki,

Þú ert enn þeirrar skoðunar að Sjálfstæðisflokkurinn sé ósnertanlegur vegna einhvers sem gerðist við aðrar aðstæður. Menn koma og fara í þeim flokki eins og þú sérð af setu Þorsteins Pálssonar í EU nefndinni. Stjórn Íslands er teymisvinna, núna eru einsýn sósíalistasjónarmið þar uppi með skattlagningu fátæktar að leiðarljósi. Mótvægisáhrif eru engin.Þessvegna þarf kosningar strax.

 Vel mælt Jón Valur. ÉG sé að við erum svipaðarar skoðunar eins og oft áður.

Júlíus, það er akkúrat þetta sem Bjarni Ben átti við. Það átti að spyrja þjóðina að því hvort hún teldi sig vita nógu mikið um EU eða ekki áður en gusast væri af stað til Broksels. Þá hefðu milljarðarnir sparast og þessi stjórn hrökklast fyrr frá völdum og við værum enn að tala við Kínverja. Það er ferlegt að vita til þess að þeir séu búnir að afskrifa okkur sem leppríki Stór-Þýzkalands, eins og EU er defacto

Halldór Jónsson, 16.11.2009 kl. 08:02

8 Smámynd: Elle_

Rannsóknarskýrslan mun ekki segja okkur neitt svart á hvítu um sekt manna og skil ekki vel hvað þessi skýrsla mun segja okkur.  Það er rannsókn sérstaks saksóknara sem mun segja okkur það, Ómar. 

Og Halldór, ég hefði viljað sjá Krisján Þór Júlíusson hér til hægri. 

Elle_, 16.11.2009 kl. 11:03

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Já ElleE, ég hefði átt að hafa hann líka og Björn Bjarnason, maður er og fljótfær.

Halldór Jónsson, 16.11.2009 kl. 15:26

10 Smámynd: Elle_

Og vil að vísu bæta við nokkrum öðrum góðum úr stjórnarandstöðunni.  Pétri Blöndal ekki síst.  

Elle_, 24.11.2009 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband