Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júní 2008

Jćja,komin kreppa !

Jćja, ţá er komin kreppa, -líklega djúp og löng.  Allt á leiđinni lóđbeint til andskotans. Atvinnuleysi blasir viđ og óđaverđbólga byrjuđ. Krónan í frjálsu falli og úrvalsvísitalan sömuleiđis.

 

Nú mega Gaflararnir fara ađ naga sig í handarbökin fyrir ađ hafa látiđ bćjarstjórann sinn fífla sig til ađ fella stćkkun álversins í Straumsvík. Fyrir mér er ţetta sönnun fáránleika svokallađs íbúalýđrćđis, ţar sem ţeim óupplýstustu  er faliđ ađ leysa spurningu dagsins um mál sem ţeir skilja ekki.

 

Hvernig hefđi nú litiđ út í ţjóđfélaginu ef ţetta slys hefđi ekki orđiđ ? Vćri líf og fjör í Stramsvík núna og virkjanir í Ţjórsá hugsanlega komnar á stađ ?  

 

Núna er ekkert ađ heyra nema söngurinn í  umhverfisvitringunum. Fréttaflutningur er helst um ţađ, ađ ţar sem Björk  hafi  lýst sig andsnúna orkufrekum framkvćmdum á gamla landinu,  ţá beri okkur ađ taka fyllsta til tillit til umhverfisskođana ţessa frćgasta Íslendings fyrr og síđar.  Enda ţarf Björk ekki ađ svara ţví á hverju viđ hin eigum ađ lifa.  Og ţađ er talađ og talađ en lítiđ virđist  gerast ađ dómi Alţýđusambandsins.

 

Hversu langt á ađ ganga í pólitískri undanlátssemi viđ fólk eins og Ţórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráđherra, sem reynir leynt og ljóst ađ bregđa fćti fyrir stóriđjuframkvćmdir. Hversu dýru verđi verđa efnahagslegar ógöngur keyptar međ ţví og ţví ađ halda Össuri Skarphéđinssyni smáiđnađarráđherra viđ völd ? Eđa ţá viđ viđ Ingibjörgu Sólrúnu utanríkisráđherra, sem  hlálega eyđilagđi milljarđsframbođiđ til Öryggisráđsins međ ţví ađ móđga Condolesu Rice útaf Guantanamo. Hún lćtur forsćtisráđherra í ríkisstjórn hennar  sitja undir ţví međ sérstakri yfirlýsingu frá sér,  ađ samstarfsflokknum séu ađ kenna  lyktir Baugsmála.  Ófarir íslenzka réttarkerfisins í ţví máli séu  Sjálfstćđisflokknum ađ kenna .   Hans sé  ábyrgđin  á ţví íslenzka dómsapparati  sem ónýtir hvert máliđ á fćtur öđru međ vegna hćgagangs og fyrninga.

Hvađa pólitíska tilgangi ţjónađi ţetta útspil formanns Samfylkingarinnar og utanríkisráđherra í ráđuneyti Geirs Haarde ? Á ég ađ dást ađ henni fyrir ?   Mér sýnist ađ Samfylkingin sé í raun varla stjórntćkur flokkur.  Ţetta er mér óskiljanlegur hrćrigrautur af gömlum krötum og kommum, sem eiga ekkert sameiginlegt nema ofurtrú á Evrópubandalaginu og  umrćđustjórnmálum,  sem eru yfirleitt síbylja um allt og ekkert,  án minnstu vonar um mögulegar niđurstöđur eđa ađgerđir. Allt velţekkt frá borgarstjórnarárum Alfređs og Ingibjargar. Mikiđ finnst mér á hann Geir minn lagt ađ ţurfa ađ fást viđ ţetta liđ, sem hefur greinilega mun meiri áhuga á friđun flökkuísbjarna heldur en lausn efnahagsvanda líđandi stundar. 

 

VG hef ég lengi álitiđ vćru naumast  stjórntćkur flokkur  heldur ţví ţeir eru yfirleitt á móti flestu sem nöfnum tjáir ađ nefna. Ef til vill ekki nógu ígrundađ.   Ţeir eru nefnilega samleitari hópur en Samfylkingin, ţar sem  um nokkuđ hreina  gamaldags komma er ađ rćđa.   En flestir  hafa sitt verđ og ţađ hafa íslenzkir kommar sannađ í gegnum tíđina, ađ kćfubelgurinn er ţeim hjartfólgnari en flest annađ í lífinu. Enda snúast jú stjórnmálin oft  mest um feitmetiđ í kjötkötlunum ađ ţví ađ sumir segja.

 

Ef ekkert gengur hjá ţessari ríkisstjórn í stóriđjumálum, ţá fer ég fyrir mitt leyti ađ ókyrrast í kerppuhugleiđingunum.  Og ţví velti ég fyrir mér  í mínu  bloggábyrgđarleysi : Skyldi hugsanlega  vera hćgt ađ kaupa VG til fylgis viđ stóriđju og virkjanir ?  Og ţá fyrir hvađa verđ  ? Hvađa persónuafslátt ? Hvađa fjármagnstekjuskatt ? Hvađa stóreignaskatt ? Hvađa hátekjuskatt ?  Allt í mínum augum aukatriđi hjá ţví ađ byggja upp orkulindirnar og afleiddan iđnađ.

 

Svo geta menn bara hugsađ ţađ á hinn bóginn hvernig ţađ yrđi, ađ láta vinstri flokkana undir forsćti Ingibjargar og Steingríms J  taka viđ núna, jafnvel međ Jón Baldvin í aftursćtinu. Myndi klukkan snúast aftur til 1971 og alls ţess sem eftir ţađ gerđist  nćstu áratugina ?

 

Hvađ um ţađ, ţá verđa núverandi fjármálavandrćđi  ekki löguđ međ holtaţokuvćli  ţeirra Samfylkingarmanna um Evrópubandalagiđ og hversu betra sé ađ hafa Evru en krónu ţessa dagana.  Skyldu íslenzkir sparifjáreigendur sćtta sig viđ hćstu bundna innlánsvexti 4.99 % eins og Kreissparkassarnir í Ţýzkalandi bjóđa í ţeirri minnst 3.6 % verđbólgu sem ţar er núna ?  Myndi einhver ekki gráta gömlu verđtryggđu krónuna sína  viđ ţćr ađstćđur ? Og ţó ađ mönnum ţyki nóg um íslenzka útlánsvexti ţá ćttu menn bara ađ kynna sér yfirdráttarkjörin  í Ţýzkalandi. 

 

Írar voru rétt í ţessu ađ fella Lissabonsáttmálann, sem átti ađ klastra uppí stjórnarskrána, sem enginn vildi.  Nú tala ráđamennirnir ţeirra um ađ ţađ verđi ađ láta ţá kjósa aftur sem fyrst. Ţeir bara verđi ađ samţykkja. Rétt eins og Borgarstjórnarflokkur Sjálfstćđismanna í Reykjavík krefst ţess ađ byggja í Vatnsmýrinni ţrátt fyrir yfirgnćfandi andstöđu íbúanna viđ lokun Reykjavíkurflugvallar. Ţetta er fyrir mér enn eitt tákniđ um vandrćđaganginn í Evrópubandalaginu. Ţetta er ekki ein ţjóđ eins og keppinauturinn Bandaríkin eru. Ţau geta talađ einni röddu og beitt aflinu í eina átt undir einum fána. Ţađ getur Evrópubandalagiđ aldrei gert. 

 

Evrópubandalagiđ  mun aldrei ná árangri sem jafnast á viđ Bandaríkin.  Ţrátt fyrir öll sín Megavandamál eru Bandaríkin sú eina kjölfesta sem heimurinn getur reitt sig á. Ţađ eina afl sem getur stađiđ gegn hryđjuverkaógninni sem siđmenntađa heiminum stafar af íslömsku barbararíkjunum eđa brjáluđum einrćđisherrum,- hversu lengi sem ţađ nú verđur. Evrópubandalagiđ sýndi ótvírćtt ómegn  sitt  ţegar ţjóđarmorđin  á Balanskaga hófust. Umrćđustjórnmálin sýndu sig ţá ađ geta leyst akkúrat ekki neitt. Bandaríkin urđu eins og oft áđur ađ taka ađ  sér pakkann í  blóđugum bakgarđinum hjá Evrópurćflunum, sem gátu bara talađ og talađ.

 

En aftur til Evrópubandalagsins og líđandi stundar. Mér finnst Hannes Hólmsteinn hitta naglann á höfuđiđ ţegar hann rifjar upp afstöđu Lođins Lepps, sendimann Noregskonungs, áriđ 1280. Ţá sagđi ţessi legáti ađ konungur myndi víst líta til Íslendinga í náđ,  ţó ađ ţeir afsöluđu sér ţeim fornu réttindum  sem ţeir vildu standa á.

 

Framhald  kóngsnáđarinnar  sem Lođinn Leppur lofađi ţekkti allavega Jón Sigurđsson fullvel. Ţađ ćtti ađ benda mönnum á ađ yfirleitt betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi.  Núna er á ferđinni akkúrat hliđstćđa  viđ málflutning Lođins Lepps á sínum tíma.  

Viđ valdaframsaliđ til ESB , sem Samfylkingin bođar Íslendingum sem fagnađarerindi sitt, er ţví lofađ ađ litiđ verđi til okkar í náđ, ÁN ţess ađ slegiđ sé af meginreglum ESB,  til dćmis um sameiginlegar fiskveiđistjórnun  frá Brüssel.  Sérstök ótímasett náđarstund fyrir Íslendinga hjá ESB á ađ vera okkur nćg trygging. Svo er gert mikiđ úr  ţeim áhrifum sem viđ eigum ađ fá sem vćntanlegt brotabrot í ráđum og nefndum.   Ekki kaupi ég ţađ frekar en annađ í málflutningi Samfylkingarinnar um kosti Evrópusambandsađildar.

 

Ţađ er ţó klárt ađ kommarnir eru massívir gegn Evrópubandalaginu eins og Sjálfstćđisflokkurinn er ađ langmestu leyti.  Ţví er ég ekki svo óánćgđur međ Steingrím J. ţegar öllu er á botninn hvolft. Mađur getur ţó séđ litinn á honum fyrirfram  ađ mestu leyti sem er yfirleitt erfiđara međ kamelljónin í Samfylkingunni.

 

Í mínum huga er eina leiđin fyrir okkur útúr öldudalnum í gegnum erlenda fjárfestingu í virkjunum og stóriđju. Verđi undanbrögđ á er hér vá fyrir dyrum. Föndur í leđur, fjallagrös og hvalaskođun dregur skammt  ef  ađra  atvinnu verđur hér ekki ađ fá.

 

Enn einu sinni erum viđ Íslendingar teknir í bólunum ţegar handrukkarinn  bankar  um nótt .  Engar tilbúnar varnaráćtlanir virđast vera til sem hćgt er ađ setja í gang ţegar ísbirnir kreppunnar ganga á land.. Fjármálapaníkkinn hellist yfir okkur eins og enginn hafi búist viđ svo gćti fariđ.

 

Ég er smeykur inní mér viđ ţá tilhugsun ađ ţađ  komi kaldur vetur eftir ţetta stutta sólarsumar.  Í mig ţarf ađ telja kjark og ţor svo ég leggist ekki í ţunglyndi og svartagallsraus.  Ţá er eins gott ađ einhverjir ţeir leiđtogar verđi fyrir mig til stađar,  sem setja upp sólgleraugun eins og hann Davíđ gerđi ţegar ađrir töluđu um myrkriđ svarta og dollarinn fór í 110..  Bíti á jaxl og segi ; Upp međ húmorinn !  

Íslendingurinn hefur séđ ţađ svartara frá ţví ađ hann Lođinn Leppur var hér á ferđ síđast.

 Og öll él birtir upp um síđir. En höfum ţađ ekki lengra en hćgt er ađ komast af međ. Ţađ er svo fjandi leiđinlegt í kreppunum.


Já var ţađ ekki !

Auđvitađ dćmdu ţeir Jón Súllenberger í hlutfallslega ţyngstu refsinguna. Fyrir ađ gjöra veg Baugs beinan. Hver er sá sem getur neitađ Baugi um greiđa og ćtlast til ađ lifa ţađ af ?

Jafn mikiđ fćr Súllenberger og sjálfur Jón Ásgeir,- heila 3 mánuđi skilorđsbundiđ í 2 ár.  Sláttuvélin hans Tryggva varđ honum heldur dýrari eđa 12 mánuđir skilorđsbundiđ í 2 ár.

Ég held ađ í Bandaríkjunum hefđi dómsniđurstađan orđiđ öđruvísi svona í ljósi Enron-sögunnar og ótal annara dćma. Ţar virđast  lögin látin gilda og ţeim framfylgt ákveđiđ. Menn eru handteknir og lagđir í járn hvađ sem ţeir heita ef grunur er um saknćmt athćfi. Manni getur bara ofbođiđ hvernig ţeir leyfa sér ađ koma fram viđ fína menn. Ţar bekkjast menn ekki viđ lögregluna og sleppa međ ţađ. Hér geta  menn kýlt pólitíin átölulítiđ og samúđin er alltaf međ götustráknum en ekki lögreglumanninum sem ţarf ađ gera ţađ sem foreldrarnir áttu ađ vera búnir ađ gera. Skólarnir mćla svo upp agaleysiđ gagnvart kennurunum og skrílsleg hegđun unga fólksins vvirđist fara sífellt versnandi međ virkum stuđningi heimskra foreldra.

Ég held ađ ţađ sem viđ köllum íslenzkt réttarkerfi eigi ađ velja sér verk eftir vexti. Ţađ hefur enga burđi til ađ fást viđ fjölţjóđleg viđskiptaveldi, sem geta kostađ ţví til sem ţarf í lögfrćđingaleigur og málaflćkjur. Innbrot í sjoppur, landamerkjadeilur og sauđfjármörk, fylleríispústra og ađ koma lögum yfir alla sem hafa rasistískar kynţátta-og innflytjendaskođanir ,  geta veriđ dćmi um hćfileg verkefni fyrir íslenzka réttvísi. 

Íslenska réttarkerfiđ getur hvort sem er ađeins takmarkađ verndađ ţegnana gegn skipulagđri glćpastarfsemi ţví  fćstir ofbeldisţolendur ţora ađ kćra af ótta viđ verra.  Glćpamenn halda flestir ótrauđir áfram iđju sinni eftir ađ ţeir játa og er sleppt í beinu framhaldi. Ţađ eru  heldur ekki ekki til nćg tugthús til ađ hýsa dćmda enda umhyggjan öllu meiri fyrir sálarlífi delinkventa heldur en ţjáningum ţolenda.   Enda sýnist manni  líka svo hafa veriđ ástatt fyrir ţjóđarsálinni alla Íslandssöguna frá Órćkju Snorrasyni og Sturlu Sighvatssyni til ţessa dags. 

 Mikiđ er hann Baugur góđur og ţeir Bónusfeđgar líka.  Búnir ađ gera svo margt fyrir okkur lítilmagnana. Blessađir öđlingarnir


www.baugsmalid.is

Mér finnst ekki úr vegi ađ fólk fari inná síđu Jóns Geralds Sullenbergers um Baugsmaliđ. En ţessi Jón verđur líklega sá sem hvađ ţyngsta refsingu hlýtur í ţví máli. Ţó ađeins  fyrir ţjónustu sína viđ ţá Baugsfeđga.

Á síđunni kemur fram yfirlit yfir ţađ hvernig feđgarnir ganga í sjóđi almenningshlutafélagsins Baugs til ţess ađ kaupa upp hlutaféiđ í félaginu, taka ţađ af markađi og leggja undir sig sjálfa.

Ţeir hafa  víst veriđ sýknađir af ţessu atriđi í undirrétti á einhverjum tćknibrellum.  En stađreyndirnar eru hinsvegar skýrar  Lánveitingar manna í ţeirra stöđu til sjálfs sín eru ólöglegar fyrir alla ađra. En ţeir virđast mega ţađ. Skođum  eftirfarandi glefsu úr yfirliti Sullenbergers:

 

" Framburđur Lindu Jóhannesdóttur

Í yfirheyrslu yfir Jóni Ásgeiri, var honum kynntur tölvupóstur frá Lindu, ţáverandi fjármálastjóra Baugs hf. til hans sjálfs og Tryggva Jónssonar, dagsettan 14.ágúst 2001 ţar sem Linda gerir athugasemdir til ţeirra m.a. vegna skuldastöđu á "Lán til framkvćmdastjóra" og ber ţar hćst lán til Gaums ehf., Fjárfars ehf., Jóns Ásgeirs, Kristínar systur hans og Jóhannesar, föđur hans.

Skuldastađan sem Linda gerir athugasemdir viđ var eftirfarandi og nemur rúmlega 500 milljón krónum!


Gaumur ehf
264.429.882 krónur

Fjárfar ehf
218.000.000 krónur

Jón Ásgeir
25.067.180 krónur

Kristín Jóhannesdóttir
3.786.727 krónur

Jóhannes Jónsson
17.039.530 krónur



Jón Ásgeir er spurđur hver hafi veriđ hans viđbrögđ viđ ţessum athugasemdum fjármálastjórans sem hún er ađ gera í tengslum viđ 6 mánađa uppgjör 2001.

Jón Ásgeir svarar orđrétt í yfirheyrslu sinni: "Hann segist ekki muna eftir ţessu".

Jón Ásgeir er einnig spurđur í yfirheyrslu hvort útbúin hafi veriđ einhver skuldaskjöl varđandi lánveitingar til Gaums ehf. og hvort Gaumur hafi lagt fram einhverjar tryggingar fyrir greiđslu lánanna.

Hann svarar orđrétt:

"Jón Ásgeir kveđst telja ađ svo hafi ekki veriđ. Ţar sem félagiđ sé mjög eignasterkt hafi ţađ veriđ traustur skuldari. Ţađ hafi aldrei veriđ neinn vafi međal stjórnenda Baugs hf., stjórn og endurskođenda Baugs hf. ađ Gaumur vćri borgunarmađur fyrir ţessum viđskiptalánum".



Hvernig myndi Glitnir banki sem er ađ stćrstum hluta í eigu Baugsmanna í gegnum FL group, bregđast viđ ef ađili myndi sćkja um nokkur hundruđ milljón króna lán án trygginga og vísa í "félag mitt er mjög eignasterkt, ţiđ ţurfiđ ekki ađ hafa neinar áhyggjur".

Myndi Glitnir banki veita slíkt lán ?

Rétt er ađ taka fram ađ allir stjórnarmenn almenningshlutafélagsins Baugs hf. neita ţví harđlega ađ hafa vitađ um ţessa lánastarfsemi Baugs hf. og hvađ ţá heimilađ hana. Ţeir einfaldlega vissu ekkert um ţessa "sjálftöku-bankastarfsemi" forstjórans, Jóns Ásgeirs.

Ţorgeir Baldursson, stjórnarmađur í Baug hf. segir t.d. varđandi lánveitingar til Fjárfars sem voru m.a. notađar til ađ kaupa 10-11 verslunarkeđjuna eftirfarandi í framburđi sínum hjá lögreglu:

"Ađspurđur segir Ţorgeir ţađ alveg klárt mál ađ Jón Ásgeir hafi ekki haft heimild til ađ ráđstafa fjármunum Baugs hf. međ ţví ađ lána félagi í hans eigu sjálfs". "


Ţađ er ofvaxiđ mínum skilningi ađ stjórnarmenn og framkvćmdastjórar geti ţannig löglega lánađ sjálfum sér fé međ ţessum hćtti úr sjóđum almenningshlutafélags til ađ kaupa ţetta sama hlutafélag , sem ţeir eru ađ reka í umbođi allra hluthafa,  útaf markađi, og ţvinga ţarmeđ ađra hluthafa til ađ láta af hendi eign sína.

Ef ţetta er í lagi ţá finnst mér ađ engann varđi um einhvern tittlingaskít í lífi ţessara ađalsmanna um báta, bíla  eđa sláttuvélar. Frekari farsi í réttarsal finnst mér vera algerlega óţarfur. Íslenzka réttarkerfiđ á ađ halda sig viđ ţađ sem ţađ rćđur viđ,  svo sem innbrot í sjoppur og stúta viđ stýriđ en ekki vera ađ skipta sér af ţví hvađ hinir stóru gera.  Ţeir eru líka svo góđir og búnir ađ gera svo margt gott fyrir okkur rćflana ađ ţađ á ađ láta ţá í friđi.   


Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 3417884

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband