Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009

Er þetta eitthvað flókið ?

Fór það framhjá nokkrum  að Sjálfstæðisflokkurinn var massívur á móti inngöngu í ESB á landsfundi sínum ? 

Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði líka skattahækkunarleiðinni  sem leið útúr kreppunni.

Geir Haarde lýsti því hvernig  hávaxtavaxtapólitík Seðlabankans kynti undir Jóklabréfaútgáfunni og  keyrði gengi krónunnar upp í hæðir.  Mér fannst Geir segja það berum orðum að Seðlabankinn bæri þannig sína ábyrgð á þeim lás sem við erum nú föst í útaf krónubréfum útlendinganna.  

Ef þú kjósandi góður vilt hækka staðgreiðsluna hjá þér í 47 % þá kýstu VG.

Ef þú vilt taka upp 2 % eignaskatt á foreldra þína, afa og ömmu þá kýstu VG.

Ef þú vilt ganga í ESB eins fljótt og auðið er þá kýstu Samfylkinguna,  Baug og Fréttablaðið.

Ef þú vilt ekkert af þessu þá kýstu Sjálfstæðisflokkinn undir formennsku Bjarna Benediktssonar, sem er heilli kynslóð yngri en Skallagírmur, Jóhanna og Ingibjörg Sólrún.

 Mér finnst þetta bara ekkert flókið !


Fjölmiðlun verði frjáls á Íslandi !

Ég skal viðurkenna það, að það pirrar mig meira og meira að taka upp Fréttablaðið sem eina prentmiðilinn sem berst til mín á virkum dögum.

 

Í dag greinir það þó frá því, að erfiðleikar í rekstri neyði það til að taka upp sparnað í dreifingu blaðsins. Eftir sem áður er því komið í hendur yfir 90 þúsund einstaklinga.

 

Þessi Baugsmiðill, sem dreifir skipulega pólitísku hatri til lesenda sinna, ætti það skilið að þeir sem átta sig á pólitísku og  hlutverki Fréttablaðsins, límdu sérstakan miða á bréfalúgur sínar þar sem afþökkuðu blaðið. Legðu þannig sitt lóð á þá vogarskál að hnekkja dreifingu þess sem aftur myndi draga úr auglýsingagildi þess.

 

Í dag fuðraði ég upp við að lesa leiðara fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem hann fer hamförum gegn þeirri skoðun meirihluta þjóðarinnar, að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB. Hann hampar auglýsingum frá sértrúarsöfnuðum og viðskiptablökkum sem einu von Íslands til að ganga undir okið og taka upp evru. Ég hugsaði til baka, að þennan mann hefði ég stutt til áframhaldandi formennsku í Sjálfstæðisflokknum gegn Davíð Oddssyni á sínum tíma. Já, tímarnir breytast og mennirnir með.

 

Í leiðaranum útnefnir Þorsteinn Steingrím Sigfússon,  sem leiðarstjörnu landsins í Evrópumálum og peningastefnu landsins. Hann  leggur traust sitt á, að Steingrímur og VG  nái lendingu í málinu með Samfylkingunni. Þrátt fyrir það að þessir flokkar  láti ekkert uppi um áform sín í efnahagsmálum eftir kosningar.

 

Áframhald leiðarans  finnst mér vera svartnættisraus um áframhaldandi kreppu  og margra ára atvinnuleysi á Íslandi ef ekki verði farið eftir ráðum skrifarans. Hann klykkir út með því að heimta myndun þjóðarhreyfingar, sem neyði Ísland inní ESB. Ef til vill var það þvílíkt sjálfsálit á ágæti eigin skoðana sem leiddi til þess að landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafnaði þvergirðingslund Þorsteins Pálssonar á sínum tíma og kaus Davíð Oddsson í hans stað til að leiða þjóðina til mestu uppgangstíma í hennar sögu.

 

Að þessu loknu las ég pistil Jónínu Michaelsdóttur um frumkvæði í samskiptum. Ekki er Fréttablaðið albölvað hugsaði ég,  þegar maður fær svona grein í stað algengs Evrópuofstækispistils eftir Þorvald Gylfason, eða þá hatursprédikun eftir Guðmund Andra Thorsson, sem oftlega finnast við hliðina á leiðaranum. Hafi Jónína mína þökk fyrir skrifin.

 

Leiðarasíðuna prýðir svo tilraun Bergsteins til að ófrægja nýjan formann Sjálfstæðisflokksins um skoðanaskipti í Evrópumálum og krefja formann Framsóknarflokksins um iðrun og yfirbót  vegna 90 % húsnæðislánanna. Verðug skrif fyrir Fréttablaðið og árétting minnar skoðunar á blaðinu.

 

Sem sagt, þarna birtist fólki hættan af því að peningavaldið hafi yfirráð yfir svo útbreiddum fjölmiðili eins og Fréttablaðið er. Þarna eru lamdar inn þær skoðanir, sem auðvaldinu eru þóknanlegar og reynt að níða allar aðrar skoðanir niður. Áhrif þess að fjölmiðlalögin voru stöðvuð á sínum tíma birtast þarna enn einu sinni og styrkir þjóðina í alkunnri ást sinni á forsetanum Ólafi Ragnar Grímssyni. En tíminn og skynsemi þjóðarinnar mun að lokum sjá í gegnum þetta moldviðri allt saman um leið og tennurnar detta smám saman úr skolti Baugsófreskjunnar.

 

Þorsteinn Pálsson gæti ef til vill útskýrt það fyrir okkur,  hvernig við tökum upp evru á morgun.  Einhverjir  vita að evrunni yrði ekki skipt á 160 krónur við það tækifæri. Norski kratinn í Seðlabankanum treystir sér að minnsta kosti ekki til að gefa gjaldeyririnn frjálsan um þessar mundir.Enginn lausn er í sjónmáli hvernig við getum losnað út þeim höftum sem Baugsveldið fyrst og fremst kom okkur í. Og Þorsteinn Pálsson er starfsmaður þessa sama veldis. 

 

Með allri virðingu fyrir Þorsteini Pálssyni þá held ég að hann hafi ekki skýrari Evrópusýn en 1900 landsfundarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem höfnuðu ESB aðild. Hann vex ekki sjálfur af því að gera lítið úr skoðnum  flokksins og krefjast þess að ný framboð komi fram honum til höfuðs.

 

 Ég er hinsvegar sannfærður um að það væri mjög æskilegt fyrir  þjóðina  að fá annan prentmiðil innum lúguna hjá sér á morgnana en Fréttablaðið.  Ég vildi líka að innlendur fréttaflutningur flytti fréttir sínar með hlutlægari hætti en nú er, þegar hver fréttamaðurinn af öðrum dettur uppí  pólitísk störf hjá umbjóðendum sínum og húsbændum til margra ára. . 

Ég vildi óska þess að einhver lausn finnist á því að fjölmiðlun yrði aftur frjáls á Íslandi.


Bjarni Ben á Z !

Nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins er á MBL  í viðtali. Þessi frumraun formannsins  var honum til sóma og voru svör hans einörð, skýr og málefnaleg.

Formanninum tókst að draga fram skilin milli skattastefnu vinstriflokkanna og Sjálfstæðisflokksins og það himin og haf sem skilur heimssýn þessara ólíku hugmyndakerfa.

 Sjálfstæðisflokkurinn skilur órjúfanlegt samband heimilanna og atvinnulífsins, að hvorugt gengur án hins. Þetta er vinstriflokkunum hulið þar sem þeir vilja skattleggja heimilin fyrst til þess að fjármagna gæluverkefni sín í atvinnulífinu.

Ríkisstjórnin rekur núna 4 peningalausa ríkisblanka, þar sem dagskipunin er að innheimta með hörku allar skuldir heimilanna en keyra atvinnulífið í þrot með hæstu vöxtum á vanskilaskuldir þeirra sem fyrirfinnast á jarðkúlunni  .  Ekkert fjármagn er í boði til nýsköpunar eða reksturs. Ríkisfyrirtækjum fjölgar dag frá degi  og rekur ríkið nú fjölbreyttan stvinnurekstur frá steypuframleiðslu til flugsamgangna og verktöku. VEB, -Volks Eigene Betriebe hét það þegar sumir af núverandi hagstýrendum landsins voru við nám í A-Þýzkalandi.

Gengi krónunnar hrynur nú dag frá degi undir stjórn norska kratans í Seðlabankanum, sem ætlaði sérstaklega að vernda gengið þegar hann tók við. Vextir, verðbólgan og gengið rekur sig allt á annars horn enda er vinstrimönnum yfirleitt fyrirmunað að skilja efnahagsmál.  Atvinnuleysið vex dag frá degi en hvíta vofan ræðir um bann við nektarsýningum  og inngöngu í ESB sem helsta áhugamál sitt.

Ég hvet menn að hlusta á Bjarna Ben á Z

 

.


Hvað segir Kolbrún ?

Kolbrún Bergþórs skrifar þessar línur í Mogga í dag :

"Það virðist óumflýjanlegt að vinstristjórn taki við eftir

kosningar. Síðan munu nokkrir mánuðir líða og þá verður

þjóðinni ljóst að afturhaldsöflin í Vinstri

grænum sem eygja engar aðrar lausnir en

skattahækkanir á öllum sviðum hafa náð undirtökum.

Þá mun þjóðin verða hugsi og loks

skelfingu lostin og ekkert botna í því hvernig

hún gat kosið þessi ósköp yfir sig.

Vinstri græn eru kokhraust þessa dagana

og það má sjá á þeim að þar á bæ geta menn

ekki beðið eftir að fá umboð hjá þjóðinni til að

koma hugmyndum sínum um skattahækkanir

í framkvæmd. Samfylkingin mun dansa með.

Eina vonin er sú að niðurstöður kosninga

verði þannig að þessir tveir flokkar fái ekki tilskilinn

meirihluta og neyðist til að taka

Framsókn með sér í ríkisstjórn.

Oft er sagt að þriggja flokka ríkisstjórn

sé ekki af hinu góða en þess konar stjórn er

miklu betri kostur en afturhalds-samsull

Samfylkingar og Vinstri grænna. Í þriggja flokka stjórn

mun það verða hlutskipti Framsóknar að halda ríkisstjórninni

í jarðsambandi og koma í veg fyrir að hún festist

í afturhaldsförunum.

Vinstri græn vonast eftir stórsigri í komandi kosningum.

Aðra hryllir við þeirri tilhugsun. Það er ábyrgðarhluti

fyrir þjóðina að kjósa yfir sig vinstristjórn með tilheyrandi

skattahækkunum. Og það er skelfilegt að

samfylkingarfólk sem skilgreinir sig til hægri eða á miðju

stjórnmála geti ekki treyst dómgreind Samfylkingar í

samkrulli hennar við Vinstri græna.

kolbrun@mbl.is"

 

Þetta er framtíðin eins og Kolbrún sér hana. Útí fenið ætlar þjóðin að ana með opin augun knúin áfram af einhverju óskilgreindu hatri á Sjálfstæðisflokknum sem slíkum .

Eru kjósendur svona vitlausir að þeir hlusti ekki á boðskap Skallagríms um hækkun skatta ? Hvað eiga peningarnir að koma til að borga þá ? Frá útrásarvíkingunum eða þér ?


Hvar er yfirbótin ?

Nú spyrja kommúnistarnir hverja formenn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks væru að biðja afsökunar á þætti sínum í bankahruninu. Einn spyr í Baugstíðindum hvar yfirbótin sé ? Annar spyr á útvarpi Sögu hvort Geir hafi ekki örugglega verið bara að biðja landfundarfulltrúa afsökunar á því sem miður hefði farið ? Ekki þjóðina sem fórnarlömb.

Henry Ford sagði: ¨Never complain, never explain." Þetta meinti hann  fyrir hvern þann sem lendir í fjölmðlafári. Útskýringar og svoleiðis þýða aldrei neitt þar sem fjölmiðlungar oftlega skrumskæla, snúa útúr eða ljúga útfrá  þeim orðum sem þeim sýnist.

Sturla Sighvatsson var leiddur á milli höfuðkirkna í Róm og hýddur svo að konur máttu eigi vatni halda að sjá svo fríðan mann svo hart leikinn. Sú yfirbót dugði honum Sturlu enda skammt.

Hvað sem verður um fsökunarbeiðnir þeirra Geirs og Ingibjargar, þá dugar það ekkert .Skrílinn vill fá þeu hengd.

Ætti gamli komminn Jón Baldvin ekki að biðjast afsökunar á að hafa innleitt EES ? Þar byrjaði þetta allt ef grannt er skoðað.

Annars fannst mér merkilegast að heyra Geir lýsa því hvernig stefna Seðlabankans í hávaxtamálum hefði snúist uppí andhverfu sína og leitt til styrkingar krónunnar og innstreymi Jöklabréfanna sem nú halda okkur í skák gjaldeyrishaftanna. Mér finnst þessi staðreynd alltaf hafa blasað við öllum sem vilja sjá. Seðlabankinn klikkaði á að stoppa ekki erlendar lántökur bankanna. það gat hann segir Yngvi Örn að minnsta kosti. Skoði menn svo vaxtastefnuna núna í neikvæðri verðbólgu og gjaldeyrsihöftum eins og nú er ! 

Það dönsuðu allir í kring um gullkálfinn í góðærinu. Mér fannst Icesave stórsniðugt hjá Landsbankanum . Alveg þangað til að mér er sagt að ég og afkomendurnir eigi að borga. Við flutum öll að feigðarósi.Bara skítánægð.

Geir Haarde þarf ekki að biðja afsökunar á neinu. Hann gerði eins og hann gat   Það voru bara alltof mörg fífl, fábjánar og glæpamenn í umferð sem fengu að vaða uppi. Hann, Ingibjörg eða heilög Jóhann, sem í stjórninni saman sátu, brugðust ekki við nógu snemma.

 Við erum öll samsek og erum saman um afleiðingarnar, að frátöldum glæpamönnunum.. Það er allt og sumt.

 


Kommúnistar sýna klærnar !

Lilja Mósesdóttir , hagfræðingur VG, boðar upptöku 2 % eingnaskatta. Þetta er sannarlega gott inleeg í kosningabaráttuna fyrir eldri borgara. Þeir eru helstu eignamenn landsins.

Fyrir var búið að tvöfalda skerðingu lífeyrisgreiðslna vegna fjármagnstekna af sparisjóðsbókum, sem helst eru líka í eigu eldriborgara. 

Indriði Þorláksson og Stefán Ólafsson hafa boðað aukna skattlagningu á almenning. Og að sú skattlagning verði varanleg.

Þá eru línurnar skýrar. Landsfundur Sjálfstæðismanna samþykkti rétt í þessu að  fara varlega í allar skattahækkanir. Sjálfstæðisflokkurinn trúir ekki á það að skattahækkanir á einstaklinga og fyrirtæki séu þær leiðir sem fara eigi til að skapa þau tuttuguþúsund störf sem nú vantar á vinnumarkaðinn á Íslandi. 

Valið er því einfalt í næstu kosningum.  Sjálfstæðisflokkurinn stendur einn á móti skattahækkunaráformum vinstriflokkanna allra. Sjálfstæðisflokkurinn trúir á framtak einstaklinganna til þess að vinna þjóðina útúr kreppunni fremur en að stjórnmálamenn eigi að deila og drottna úr ört fjölgandi ríkisfyrirtækjum. SJálfstæðisflokkurinn trúir í innanlandsmálum  á þjóðlega og víðsýna umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsi og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Þetta hefur ekkert breyst frá stofnun flokksins 1929. Þá hefur þjóðinnni vegnað best þegar áhrif slokksins hafa verið sem mest.

Kaupmáttur á Íslandi jókst um 60 % á síðustu 16 árum í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins. Þrátt fyrir hin stóru áföll eru enn eftir 40% af þeirri aukningu. Skattahækkunaráform kommúnistaflokkanna munu þurrka út þann ávinning allan. Því mega launþegar treysta.

Kommúnistarnir sýna nú skattaklærnar, sem þeir vilja krækja í almenning. Verði þeim að góðu sem trúa á þann fagurgala þeirra, að þetta sé allt  undir ráðgert yfirskyni jöfnuðar og félagshyggju sem andsvar við nýfrjálshyggju Sjálfstæðisflokksins. Innantómt slagorð sem þeir hafa aldrei geta útskýrt hvað merki.  


Tillögur ?

Ó heilaga einfeldni sagði Giordiano Bruno þegar gamla konan lagði hríslu á bálköstinn  hans.  

Framsóknarkonan, Fanný Gunnarsdóttir, frambjóðandi í 4. sæti  í Reykjavík norður,   skrifar eftirfarandi klausu í Mogga :

" ÞVÍ VERÐUR ekki á móti mælt að Framsóknarflokkurinn hafði forgöngu um að leggjafram hugmyndir að lausn efnahagsvandans. Í febrúar kynnti Sigmundur Davíð, formaðurflokksins, ásamt þingflokknum átján fjölbreyttar tillögur til úrlausnar. Framsóknarflokkurinn er ófeiminn við að fara ótroðnar slóðir og fékk til liðs við sig hagfræðinga á sviði efnahagsmála. Slík vinnubrögð bera vott um fagmennsku og ný vinnubrögð. Það kom skýrt fram að tillögurnar voru fyrst og fremst innlegg í vinnu ríkisstjórnar og Alþingis en ekki hluti af kosningabaráttu Framsóknar. Því miður hefur ríkisstjórnin ekki unnið frekar með hugmyndirnarog talaði þær í raun strax út af borðinu án þess að koma með tillögur að lausn vandans. Sem ábyrgur flokkur er Framsóknarflokkurinn tilbúinn að horfa á allar góðar leiðir við núverandi aðstæður. Með því að leggja fram þessar tillögur eykst pressan á aðra flokka að leggja fram sínar hugmyndir.M.a. var lögð til lækkun stýrivaxta sem og að samið yrðivið þá erlendu aðila sem ættu mikið af íslenskum krónum í jöklabréfum. Það er nauðsynlegt til að styrkja krónuna og koma á stöðugleika. Flýta ber uppgjöri gömlu bankanna, semja við kröfuhafa umhlutdeild í nýju bönkunum og vinna að sameiningu og endurskipulagningu banka og fjármálastofnana.Einnig þarf ríkið að tryggja öruggt starfsumhverfi útflutningsfyrirtækja og það þarf að endurskoða reglur Íbúðalánasjóðs

með það að markmiði að örva fasteignamarkaðinn."

Ef einhver annar en þessi blessuð kona getur lesið það útúr þessu að hér séu um tillögur fremur en draumóra að ræða, þá er vonandi að sá kjósandi leggi höfuðið í bleyti. En kjósendur átti sig á muninum á draumsýnum og veruleika.

Það er náttúrlega ágætt að óska þess að öll vandamálin með krónubréfin leysist með samningum. En gallinn er bara sá að það hefur ekki tekist að semja um þau og þau svífa eins og Damoklesarsverð yfir okkur öllum. Rétt eins og Icesave,  sem Skallagrímur treystir  Svavari Gestssyni best til að leysa. 

 Auðvitað væri flott að lækka stýrivexti . En til þess að einhver vilji taka lán verður að vera til peningur. Hann er hvergi á boðstólum. Og tuttuguþúsund atvinnuleysingjar eru ekki að leita að lánsfé heldur vinnu.

Það vantar fé á markaðinn. Framsókn né "Hvíta Vofan " er hvorug að gera eitthvað í því máli. Þeir sjá bara ein leið, hækka skatta á almenningi og draga saman í ríkissrekstri í öllu öðru en ríkisrekstrinum sjálfum eins og Ögmundur sýnir manna greinilegast.  

Til þess að tryggja starfsemi útflutningsatvinnuveganna þarf bæði að veiða fisk og selja hann. Hið fyrrnefnda er bannað til þess að hvalirnir hafi örugglega nóg að  éta og það er kreppa í útlöndum sem torveldar það síðarnefnda. Allt þetta eru frómar óskir hjá Fanneyju en því miður aðeins og draumsýnir fólks sem veit ekkert um hvað málið snýst. Nema um það að halda Framsóknarflokknum í fjárkúgunaraðstöðu eins og hann var í tíð R-listans í Reykjavík.  Geta skákað og staðið í vegi fyrir framförum gegn greiðslum. Vonandi fær þessi ábyrgðarlausi hentistefnuhægrivinstriflokkur studdur af nytsömum sakleysingjum eins og Fanneyju ekki aðstöðu til þess að flækjast fyrir eftir kosningar.  Sjálfstæðisflokkurinn er núna umkringdur öllum öðrum flokkum, sem eiga það eitt sameiginlegt að vilja tortíma honum sem stjórnmálaafli.  Kommúnistaflokkarnir báðir hafa svarist í fóstbræðralag til að svo megi verða og óska þess heitast að þurfa ekki að kaupa aðstoð til þess frá Framsókn.  Með slíkri holtaþoku um ímyndaðar tillögur eins og fram kemur hjá greinarhöfundinum og frambjóðandanum í 4. sæti, Fanneyju Gunnarsdóttur, aukast líkurnar  á því að til þess þurfi ekki að koma. 


Það vantar banka !

Það vantar banka strax til Íslands!

 Það er með ólíkindum ef einhver erlendur aðili vill ekki koma og verzla hér við  Íslendinga  á þessum 17 %okurvöxtum. sem nú eru hæstir í heiminum á Íslandi. Vilja þeir heldur vera heima og lána ekkert á núlli ? Hér er þó hægt að græða.

Þessir ríkisbankaræflar,  sem eru hér eru til einskis gagns, steingeld og peningalaus apparöt,  sem hugsa ekkert um annað en rukka aumingja ,sem ekki geta borgað vegna atvinnuleysis og kyrrstöðu, leysa akkúrat ekki neitt fyrir efnahagslíf landsins.   Það vantar peninga í umferð. Og þá vantar strax ! Og þeir eru til ! Það þarf bara að bjóða þá velkomna. 

Þessi ríkisstjórnarræfill sem nú situr, -"Hvíta Vofan" ,- hefur engin úrræði né tillögur um það hvernig eigi að draga úr atvinnuleysinu eða koma einhverju af stað.  Hún bíður að sögn eftir uppgjöri á gamla svínaríinu. Eins og það geti nú ekki beðið meðan fólkið sveltur.    Eina sem vofunni dettur í hug er að tala um að draga saman ríkisútgjöld um leið og Ömmi hækkar þau  og boða hækkun  skatta á aumingjunum að hætti Indriða og Stefáns.

Algerlega steingeld vinstri vofa sem bara bullar almennt um Shangríla, þar sem einhver félagshyggja á að sitja í öndvegi í stað einhverrar nýfrjálshyggju, hvað sem það nú er.

þAð  vantar peninga í umferð !

Það vantar atvinnulíf !

Það vantar líf !

Það vantar banka !


Enn lengist afrekaskráin !

Þá hefur enn ein skrautfjöðrin bæzt í hatt Baugsmanna og Jóns Ásgeirs. Fyrst ryksugaði hann  Glitni, svo BYR,  svo SPRON og Sparisjóðabankann. Þvílíkur afreksmaður.   Það var við hæfi að hinn þotuglaði forseti vor veitti honum sérstök heiðursverðlaun á síðasta ári. 

Og  ekki þarf núna að bendla Davíð Oddssyni og hans flokki  um þessi afrek,   þar sem téður Jón Ásgeir hefur stutt Ingibjörgu Sólrúnu dyggilega allt frá Borgarnesi,  Samfylkinguna,  mótmælendur og allt sem nöfnum tjáir að nefna í andskotahópum Sjálfstæðisflokksins.   Það breytir engu þó að Fréttablaðið, sem er undir stjórn  Jóns Ásgeirs , reyni  í gegnum Guðmund Andra  núna í dag að klína honum pólitískt á Sjálfstæðisflokkinn.  Þetta eru ómerkilegar rangupplýsingar og áróður leigupenna Baugs í aðdraganda kosninga.

Hinir mikilvirkustu  fjármálamenn þjóðarinnar Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson, Gunnlaugur Sigmundsson, Sigurður Einarsson, Öskjuhlíðar Pálmi í  og Bakkabræður hafa ekki vermt stólana í Valhöll.  Það er billeg lausn hjá Skallagrími á landsfundi VG að öskra á Sjálfstæðisflokkinn og segja fólki að  gera hann ábyrgan fyrir framferði þessara manna.

Kjósendur mun átta sig á því, að það er ekki við Sjálfstæðisflokkinn sem slíkan að sakast þó að illa hafi farið.  Það  dönsuðu allir  í kringum gullkálfinn meðan spilað var. Þjóðin lifði mestu upgangstíma um árabil.   Það var þjóðin,  sem kollsigldi sig með þeim stóru.   Það þýðir ekkert fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að þykjast hvergi hafa nærri komið né vitað   hver hættan væri af ICEsave og Kaupthing-Edge , sem og öðru sem úrskeiðis fór.   Hún var um borð í bátnum alveg eins og Ingibjörg Sólrún. Jafnvel þó þær hafi báða verið steinheyrnarlausar þegar Davíð reyndi að tala við þær á ríkisstjórnarfundi.  

Það er auðvitað auðvelt að vera vitur eftir á. Auðvitað átti Seðlabankinn að gera svona en ekki hinsegin. Það sé jafnvel ég núna.  En það gerðist bara ekki. Og svo kom lánsfjárkreppan,  sem við Íslendingar eða Sjálfstæðisflokkurinn  fundum ekki upp.

Þjóðin er slegin vinstri villu um þessar mundir. Vvera kann að  leiðin verði grýttari vegna blekkinga og áróðurs vinstriaflanna sem nú verma ráðherrastólana. Því munu mörg mistök verði gerð á leiðinni upp. 

 Þegar vinstriþokunni léttir og rykmökkinn frá hamförunum hefur lægt,  þá mun það  bíða Sjálfstæðisflokksins að vísa veginn uppúr öldudalnum á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Því fyrr því betra.


Valið snýst um vinstri stjórn !

Þegar Jaques Delors hefur opinberlega  lýst vantrú sinni á því að evran muni  lifa af efnahagsþrengingarnar , þá sjá sumir íslenskir stjórnmálamenn það vænlegast fyrir  kosningarnar framundan, að tala um upptöku evrunnar og ræða inngöngu í ESB. Á sama tíma er okkur sagt í fréttum að meirihluti Breta er sagður vilja ganga úr ESB. Ennfremur að  ekki sé  ólíklegt að Þjóðverjar séu orðnir  ekki síður blendnir í Evróputrúnni enda fer þeim röddum fjölgandi í Evrópu,  sem hafa efasemdir um að Evrópubandalagið sjálft muni lifa af þá erfiðleika sem við því blasa núna. En er þetta ekki bandalag jafninga heldur hinna ríku  og fátæku sem augljóst er að ná ekki saman. 

Evrusvæðið er því í raun gjaldþrota og samhjálpin er auðvitað að bregðast. Evrópubandalagið er og verður aldrei jafnoki Bandaríkjanna sem hefur einn fána, eitt þing  og eina þjóð á móti 27 sundurlausum ríkisheildum Evrópu,  sem eru auk þess illa haldnar af ofstjórnaráráttu sem við Íslendingar eigum erfitt með að þola.  

Trúin  á Evrópubandalagið hefur samt ekki dvínað hjá Samfylkingunni. Hinn nýi  leiðtogi Samfylkingarinnar boðar áframhaldandi faðmlag sitt við VG eftir kosningarnar til þess að leiða þjóðina úr vandanum,  -með eða án Framsóknar.  Undir þetta tekur formaður VG. Þessir flokkar,  sem flestir vita að eru algerlega ósammála um afstöðuna til ESB, ætla sem sé að vera áfram  í einni sæng eftir kosningarnar framundan. Að líkindum leiðir það til þess að ekkert gerist í þeim málaflokki meðan sú stjórn hjarir, sem samkvæmt reynslunni af vinstristjórnum verður styttra en eitt kjörtímabil.  

Í því ljósi hljóta menn að skoða ræðu Steingríms formanns á  landsfundi VG.  Formaðurinn sagði þar ekkert um afstöðu flokksins  til  ESB.   Hann lýsti hinsvegar fögrum orðum óskilgreindri  ánægju sinni með samstarfið við Samfylkinguna . En sá flokkur undir forystu Ingibjargar gerði ESB afstöðu Sjálfstæðisflokksins að stjórnarslitaástæðu á liðnum vetri. Sem leiddi til valdatöku núverandi ríkisstjórnar eftir óþolandi afskipti og stjórnlagahefðarbrot forseta Íslands sem við var að búast.     

Ekki var tal formannsins um væntanlegar skattahækkanir skýrara.   Það er því greinilega meira hrein  valdagræðgi en grundvallarhugsjónir sem ráða framgöngu  formanns VG um þessar mundir. Enda voru þeir Indriði H. Þorláksson og Stefán Ólafsson búnir að útlista þær skýrt og greinilega fyrir okkur á dögunum. Öfugt við hagfræðinga vestanhafs, sem halda fram skattalækkunum á almenningi til þess að brjótast útúr kreppunni, þá boða íslenskir kommúnistar skattahækkanir og niðurskurð opinberrar þjónustu sem framtíð þjóðarinnar. Allt aðgerðir sem munu dýpka kreppuna en ekki lina.  

Renna ekki tvær  grímur á einhverja kjósendur við þessar aðstæður ?  Hvað bíður þjóðarinnar með þessa þá vinstri forystu sem þeir rauðliðar boða  núna eftir kosningar ?    Samstjórn flokka sem eru ósammála um flest nema að takmarka vændi,  loka Goldfinger og reka Davíð Oddsson.  Nefna engin úrræði gegn atvinnuleysinu, hafa enga framtíðarsýn í orkufrekum iðnaði eða hvernig eigi að nýta auðlindir landsins. Fullyrða að stóriðja skili engu til þjóðarbúsins. Sjá ekkert nema  skiptingu skorts milli landsmanna. 

Japl, fálm og fuður einkennir yfirleitt oftlega framgöngu vinstristjórna. Sjaldnast er gengið hreint til verks.  Hefði það ekki skipt meira máli fyrir almenning að álversframkvæmdir stæðu nú sem hæst í Straumsvík heldur en að fá að kjósa Lúðvík Geirsson í 5. sæti Samfylkingar í komandi kosningum ?  En sá frambjóðandi og flokkur hans er mest ábyrgur fyrir því að af þeirri framkvæmd varð ekki.

Sjálfstæðisflokkurinn er því grannt skoðað eina stjórnmálaflið sem landsmenn geta bundið vonir við að viðhafi  hófstillingu  í skattheimtu og lífskjaraskerðingu.  Eina stjórnmálaflið sem er líklegt til að vilja hefja sókn í atvinnumálum og auðlindanýtingu. Enginn getur séð fyrir hvaða afleiðingar það hefur að kjósa Framsókn, slíkt ólíkindatól og tækifærissinni sem sá flokkur er. Atkvæði kastað á litlu flokkanna er atkvæði kastað á glæ. 

Valið snýst um vinstri stjórn eða ekki.    

 


Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 77
  • Frá upphafi: 3417885

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband