Leita í fréttum mbl.is

Eitthvað rotið í ríki Ísraels

sýnist manni eftir lestur greinar ísraelska sagnfræðingsins Benny Morris um land sitt í Newsweek.

Ríkið sem stofnað var til á grundvelli jöfnuðar og stighækkandi teksjuskatts í anda hins snauða Ben Gurions býr núna við það að efsti tugur launþega aflar 31 % teknanna og 15 % Júðanna sjálfra og 20 % allra Ísraela, lifir undir fátæktarmörkum við flatan tekjuskatt í landinu. Neðstu 10 % afla 1.5 % af launatekjunum. Sungið er á samkundum Bibi)væntanlega Benjamin) á 3 íbúðir, þessvegna átt þú enga. Arabiski minnihlutinn í landinu telur sig æ meira hliðholla Arabönum í nágrannaríkjunum og vill skilgreininguna á Ísrael sem Júðaríki burt. Hátækniiðnaður Ísraela heldur þjóðfélaginu uppi og kostar völd hægrimanna,sem stuðla að frekara misrétti með styrkjum til landnemabyggða og strangtrúarhópa, sem leggja ekkert til samfélagsins .

Stöugur fólksflótti og spekileki er frá landinu af þeim betur settu og menntuðu. Strangtrúar-Júðar sem hvorki vinna né gegna herþjónustu eiga 8 börn á móti 3 venjulegra heimila og hafa áhrif þeirra á þinginu því vaxið úr hófi. Í Berlín(sic!) einni eru núna 10.000 brottfluttir Ísraelar sem borga þar 15.000 króna leikskólagjald á móti 140.000 í Ísrael. Benjamín Netanyahu er teiknaður í SS búningi með Hitlersskegg í egypsku blaði sem tákn um vaxandi andsemítiskar tilfinngar í mið-Austurlöndum.

Höfundur er ekki meira en svo viss um að Ísraelsríki eigi sér langa framtíð. Hluti af því sé Aröbunum sjálfum að kenna því Arafat neitaði tilboði Ísraela árið 2000 um að taka við 100 % af Gaza og 95 % af vesturbakkanum, vildi allt eða ekkert.

Hvaða áhrif hefur þetta á heiminn og Ísland?

Gætum við reynt að bjóða ungum og menntuðum Ísraelum landvist hér sem flóttamönnum? Reyna að troða upp í spekilekann sem við búum við og fylla flóttmannakvótana með slíku menntafólki í stað ómenntaðs og framandi fólks sem streymir hingað?

Upplausn Ísraelsríkis innanfrá kallar á meiri átök í Bandaríkjunum sem óneitanlega hafa haldið uppi tilveru Ísraelsríkis með fé og vopnavaldi um allan þess aldur fyrir áhrif Gyðinga.Þetta minnkar líka vonir manna um einhvern frið fyrir botni Miðjarðarhafs og þetta dregur úr mætti Ísraela þegar vaxandi hópur þegnanna neitar að þjóna Ísraelsher. Auðvitað sökkva öll lífskjör í þessum heimshluta ef hlutur ísraelskra bænda, hátækniiðnaðar og menntafólks færi minnkandi.

Það er eitthvað meira en lítið rotið í ríkinu Ísrael en maður hefur hugsanlega gert sér grein fyrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Sumir telja margt líkt með Íslendandi og Ísrael, þar er til dæmis CIP álag á 30 ár jafngreiðslu veðskuldum [ekki 25 ára því þeir kosta 20% strafstekjur á mánuði] . Hinsvegar eru meintar verðbætur endurskoðar í samingin á 5 ára fresti til hækkunar að lækkunar.

Ég vil USA jafngreiðslu form  allar greiðslur jafnháar 30 ár, þannig að raunvirði endurgreiðslu reiðfjár verður mest fyrstu 5 árin en minnst síðust 5 árin.  

Þar sjá bankar um að velta "reserve" varsjóðum enda eru þeir sérhæfðir þjónustu aðilar í færa hreinar eignir[reiðfé] milli ára. 

Vsk. aðilar sjá um raunvirðisaukann [viðhald á keppnimörkuðum]. [20%]

 Starfmannaskattur fer í samfélagsgrunntryggingar kerfið. [20% eða 60.000 á haus].

Fasteignaskattar beinir og óbeinir[vextir] max. 1,99%.

Júlíus Björnsson, 3.10.2011 kl. 20:57

2 Smámynd: Elle_

Já, það er heilmikið rotið í ríkinu Ísrael harðstjórans Benjamin Netanyahu og hrottastjórnar hans sem andstæðingar Palestínu hérlendis hæla eins og guð væri, enda stutt í gamalli bókarskruddu. 

Elle_, 3.10.2011 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 3418398

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband