Leita í fréttum mbl.is

Af hverju er þetta Alþingi ónýtt?

til allra verka?

Ég fór að velta þessu fyrir mér undir sjónvarpi frá Alþingi. Ég fór að horfa á skallana á Þór Saari og Steingrimi, sem mér finnst vera álíka vitlausir báðir.(pólitískir féndur mínir en ekki persónur)

Ef maður fer að skoða inní hausinn á þeim báðum, þá eru þetta sjálfsagt báðir betur gefnir menn en ég á margann hátt þó þeir séu til muna praktískt vitlausari. Þair halda að þeir geti leitt þjóðina með öskrum og óhljóðum og stjörnulátum einir og sér í pontu Alþingis. Þegar margir svona snillingar koma saman án þess að hafa bundist í fóstbræðralag alvöru stjórnmálaflokks eða bræðralags með öðrum um framkvæmdir, þá verður útkoman auðvitað sú að ekkert gerist frekar en í stjórnlagaráði, þar sem tuttugu séní geta ekki séð einföldustu hluti fyrir.

Stjórnmál eru hópvinna flokka sem hafa komið sér saman um meginstefnu. Og eru í grunninn líka vinir sem virða hverjir aðra. Ræðumennskan í pontu Alþingis er bara farsi til að skemmta áhrifalausum minnihlutanum sem lætur ekki skynsemina af hendi fyrir trúarsetningar og alþýðusnobb. Á móti til að vera á móti.

Samvinna skynsams fólks er það sem stjórnar framförum þjóðar en afturgöngur Leníns eins og Steingrímur J.,Áfheiður Ingadóttir og Björn Valur til dæmis tefja bara málin með hávaða og bulli eins og afturganga ömmu sinnar hún Jóhanna Sigurðardóttir gerir sig seka um aftur og aftur. Frá þessu fólki kemur ekki neitt, hvorki nú né síðar og vest að kjósa það frá strax.

Það er ekkert hægt að gera fyrr en þetta fólk er í afgerandi minnihluta. Það væri alveg hægt að nota Þór Saari og fleiri í Sjálfstæðisflokknum ef hann hefði haft þolinmæði til. Þar hefði hann getað haft áhrif í stað þess að sprikla svona eins og trúður í flokksbroti sem ber áhrifaleysi dauðans í sér.

Þessi flokksbrot eru til einskis nýt. Hafa sýnt það og sannað um áratugi að þeu eru bara sönnun skapgalla forystumannanna sem setja eigin hag ofar þjóðarhag hverju sem tautar og raular.Þór Saari, Lilja Mós, Guðmundur Seingríms eru ömurleg dæmi um þannig hreyfingar.

Þessvegna er þetta Alþingi sem hann nú situr ónýtt með öllu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ætli það verði ekki þekkt í sögunni sem SVIKAÞINGIÐ, eftir allan ólukkuferilinn? Samfylkingin verðskuldar nú þegar útlegðardóm.

Jón Valur Jensson, 21.3.2012 kl. 04:14

2 Smámynd: Þorgeir Ragnarsson

Hárrétt.

Þorgeir Ragnarsson, 21.3.2012 kl. 10:04

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Lagasetningar eru ekki spurning um afköst eða hraða í Ríki þar sem stöðugleiki ríkir í grunni.  Framkvæmdagleðinn kemur best út á mörkuðum þar leikreglur eru skýrar. Langtíma þjóðartekjukökuskipting er staðfest fyrst  sínðan skuldbindingar frá 12 til 60 mánuðum, síðan eru fjárlög árs hönnuðu fyrir afgangstekjurnar. Þetta gildir um Meiri Háttar ríki EU og Miðstýringuna sjálfa.  Hér þarf að tak upp meiriháttar langtíma grunn fjárlagaramma í anda Meiriháttar ríkja. Minnka kostnaðinn við Alþingi og lagasetningar við borgum nóg fyrir EU grunnreglustýringuna. EES tryggir að raunþjóðartekjur aukast ekki nema á heimamarkaði. Ábyrgir erlendir fjárfestar læra ekki Íslenska fjármálfræði sem er ekki samræmi við alþjóðalög og hefðir.
Hér á að gefa lífeyrisjóði frjálsa. En skipta ákveðinni prósentu raunþjóðartekna á milli allra þeirra sem hafa haft hér búsetu í 18 ár þannig að þessi hópur ekki full starfandi hafi allur sömu lámarks framfærslu tekjur.  Þá einfaldast allt hér og fjárfestingar almennings samfara kauphækkunum vaxa. Almenningur með viti vill velja sjálfur hvernig og hvort hann sparar lífið eða fjárfestir af skynsemi.  Ríki sem gefur út ávísanir til að setja í geymslu hefur enga tryggingu fyrir því að eitthvað fáist fyrir ávísana safnið eftir 30 ár. Ef þetta eru Pund rýna þau að raunvirði um 60% á 30 árum.  Genið hér eftir uppsöfnun fó í gang hefur fallið um 50%, er það það ekki nóg sönnum að betra hefði verið að þetta fé hefði farið almennt í umferð á hverju ári. Ríkið á ekki að borga sínu liði kaup til að spara heldur sem nægir því til framfærslu í samræmi við nísku þess. Nískir ríkisstarfsmenn fá minnsta kaupið.

Júlíus Björnsson, 21.3.2012 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband