Leita í fréttum mbl.is

Allt í plati?

hjá skipulagsnefnd Sjálfstæðisflokksins á Landsfundi? Þar var áréttað að aðeins þeir sem væru í Sjálfstæðisflokknum og hefðu greitt þangað árgjald myndu kjósa í prófkjörum flokksins. Kjördæmisráð eiga að að samþykkja með 2/3 atkvæða að bregða frá þessu í stað helmings áður.Hugsunin var skýr.

Þetta var gert ekki hvað síst til að fá fleira fólk fram til framboðs í prófkjörum. Auglýsingamennskan og áróðurinn var farinn svoleiðis útí öfgar að aðeins ríkt fólk gat tekið þátt í þessu. Hæfileikafólk sem ekki var tilbúið að veðsetja fjölskylduna lagði hreinlega ekki í þetta. Menn vonuðu sannarlega að þetta fólk myndi frekar koma fram ef markhópurinn væri minni eins og félagaskrár en ekki allur almenningur eins og verið hefur. Það þyrfti ekki að auglýsa heilsíður í blöðum til að fá annarra flokka fólk til að mæta í prófkjörin og kjósa.

Nei ekki aldeilis. Nú byrja allskyns spámenn innan flokksins að tala um það að flokkurinn sé að kaupa sér atkvæði ef hann heldur þessu fram og höfðar ekki til breiddarinnar. Allir sem kjósi í prófkjörum kjósi hugsanlega líka flokkinn í kosningum og þannig áfram gengur dælan. Unga fólkið borgi ekki félagsgjöld og heldur ekki aldraðir. Ætlum við að útiloka þetta fólk spyrja þeir? Hver talaði um það spyr ég? Auðvitað er þetta algerlega léttvægt. Það er hægt að ákveða árgjald fyrir ungt fólk 10 krónur og gamlingja líka.

Nei nei, þá stendur frambjóðandinn með posann við kjörstaðinn og borgar fyrir alla sem vilja koma og kjósa hann segja þeir á móti. Af hverju má ekki fara fram á það að flokksmaður þurfi að hafa verið flokksmaður í tiltekinn tíma fyrir kjördag og greitt þetta gjald? Auglýsing komi fram núna um það að sá flokksmaður sem vill kjósa í prófkjöri í nóvember verði að staðfesta það fyrir 1.október og borga ef hann vill kjósa. Aðrir fái bara ekki að kjósa í prófkjöri.Þannig myndu loksins innheimtast félagsgjöld sem sárlega vantar því alltof fáir borga. Þannig er það því miður.

Þannig var skipulagið hugsað til að reyna að gera prófkjörin aðgengileg venjulegu fólki. Nei þetta skal rústað af fólki sem situr í trúnaðarstöðum og gott ef ekki miðstjórn flokksins líka. Það skal þannig allt vera óbreytt, það verður að fá komma og krata til að kjósa ásamt með hinum breiða massa sem kýs flokkinn. Auglýsa fyrir milljónir og gefa ókeypis pylsur. Sá kemst áfram sem auglýsir mest. Er ekki ljóst hverjir eru kaupendur að frambjóðendum við þessi tækifæri?

Skiptir einhverju höfuð máli hverjir eru á framboðslistum? hefur það skipt sköpum? Er það ekki frekar hvernig liðsheildin starfar? Er þetta ekki samvinna frekar en eitthvað sólóspil? Stefnan liggur fyrir, hún var samþykkt á Landsfundi. Skiptir þá öllu hverjir gefa öskrið eins og Churchill orðaði það.

Af hverju skiptir persónan öllu máli spyr ég? Eru ekki kosnir listar flokka á kjördegi? Hver er ánægður með þessa lista? Strika menn ekki út hægri vinstri? Er ekki helsti gallinn sá að gáttin er of þröng til að breyta listanum með útstrikunum? Er ekki hægt að laga það?

Mér finnst það hart ef Landsfundarsamþykktir eiga bara að vera allt í plati ef það passar ekki einstökum mönnum, oft nefndir flokkseigendur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég hef nú aldrei skilið það að VG gæti haft áhrif á það hver er í framboði hjá sjálfstisflokknum?

Til hvers ættu menn að greiða félagsgjöld?

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 1.9.2012 kl. 19:18

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Heill og Sæll Halldór. Góður pistill hjá þér. Það virðist svo sem þekking á félagsmálum sé á undanhaldi. Ef samþykktir segja til um að kjörgengir séu þeir sem hafi greitt sitt félagsgjald, á það að standa. Skilaboðin eru alveg skýr. 

Með nýjum miðlum á að vera auðveldara að gefa nýju fólki möguleika á að bjóða sig fram, án of mikils kosnaðar.  Þegar jafnvel forráðamenn, og innsti kjarni annarra flokka er farinn að kjósa í prófkjörum, er ástæða til að spyrna við fótum. 

Sigurður Þorsteinsson, 2.9.2012 kl. 09:49

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Auðvita hafa bara Íslenskir ríkisborgarar atkvæðis rétt við alþingiskosningar á Íslandi.  Auðvita hafa bara skráðir félagar atkvæðisrétt í heilbrigðum félögum, allt annað er vanvirðing við hina skráðu félaga. 

Forsendur skráningar geta svo verið með ýmsum hætti, en það er tortryggilegt þegar þeim forsendum er breitt rétt fyrir kjördag.  Án balllestar þá vantar stöðugleika og þá getur illa farið.  Heilbrigður flokkur er samstæða, ekki safn í hrúgu.    

Hrólfur Þ Hraundal, 2.9.2012 kl. 09:53

4 Smámynd: Jón Atli Kristjánsson

Sæll félagi Halldór,

Orð í tíma töluð. " Nýja fólkið " sem prófkjörin eiga að laða að flokknum, sérst ekki í starfinu eða á félagsfundum.  Það að ganga í flokkinn kostar heldur ekki neitt og því ekki að vera með. Sérfræðingar í " smölunum " hafa notað sér þetta þægilega kerfi með miklum ágætum.

Allt sem þú segir er hárrétt, enda hefur þú séð allar útgáfur af þessu réttlæti, og vita fáir betur hvað hér er um að tefla.

Jón Atli Kristjánsson, 3.9.2012 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 3418228

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband