Leita í fréttum mbl.is

Framsókn segir SKÁK !

á Sjálfstæðisflokkinn með ályktunum frá flokksþingi sínu.

Ályktanirnir þingsins eru margar mjög áhugaverðar og eru Sjálfstæðsflokknum hvatning til þess að reyna ekki að koma með neina moðsuðu frá væntanlegum Landsfundi. Því miður virðist margt vera í þeim dúr í drögum að ályktunum sem sjá má á heimasíðu flokksins sem án efa eiga eftir að slípast.

Það er greinilegt að Sjálfstæðisflokkurinn mun eiga í beinni samkeppni við Framsóknarflokkinn um nýjar og ferskar hugmyndir nema um einbreiðar brýr í strjálbýli í stað slitlags.

Grípum niður í ályktunum Framsóknarflokksins:

  * **Framsóknarmenn vita að velferð grundvallast á atvinnu. Því svíður sú alvarlega sóun á mannauði og verðmætum að tæplega 15.000 manns gangi atvinnulausir. Að vinnabug á atvinnuleysinu er forgangsverkefni næstu missera.

 

*** Framsóknarflokkurinn leggur því til að íslensk stjórnvöld beiti sér nú þegar fyrir olíurannsóknum  á Drekasvæðinu

 

•Veita auknu fjármagni til kennslu í raun- og verkfræðigreinum í háskólum Landsins

•Lagður verði meiri kraftur í kornrækt í landinu til fóðurframleiðslu og manneldis.

• Framsóknarflokkurinn standi vörð um skógrækt í landinu sem vaxandi atvinnugrein.

• Fjölga þarf tækifærum matvælaframleiðenda til að vinna úr og þróa eigin afurðir. 

 

***Framsóknarflokkurinn hafnar fyrningarleiðinni sem fiskveiðistjórnunartæki.

       2. Stjórnun fiskveiða verði blönduð leið, annars vegar á grunni aflahlutdeildar á skip

og hinsvegar úthlutun veiðileyfa sem taki mið af sértækum byggðaaðgerðum, auk

hvatningar til nýsköpunar og til þess að auðvelda aðgengi nýrra aðila að útgerð.

Pottur 1

 þar sem gerður verði nýtingarsamningur til u.þ.b. 20 ára, á grunni aflahlutdeildar á hvern bát. Samningurinn verði á milli ríkisins og íslensks aðila sem haft hafa búsetu á Íslandi að minnsta kosti síðustu 5 ár.

 Pottur 2

 þar sem veiðileyfum verði úthlutað til:

a.  Fiskvinnslu. – Um er að ræða byggðaívilnun þar sem að aflaheimildum verði fyrst og fremst úthlutað til fiskverkenda þar semþað á við. Fiskvinnslurnar semji við einstaka útgerðir um veiðar.

b.  Ferðaþjónustuveiða. – Þar sem þessum aðilum verði tryggð aflahlutdeild með því að landa aflanum til Hafrannsóknastofnunar –

VS-afli . Setja þarf sérstakar reglur um úthlutunina.

c.  Nýsköpunar. – Stuðningur við nýsköpun m.a. með leyfum í meðafla og til sérstakra verkefna auk beins fjárstuðnings.

d.  Strandveiða – nýliðunarpottur. – Megin tilgangur strandveiða er að auðvelda nýjum aðilum að hefja útgerð og má hver aðili einungis fá úthlutað einu strandveiðileyfi.

* Undirbúa byggingu áburðarverksmiðju.

 * Framsóknarflokkurinn telur að stefnt skuli að því að tekjuskattsprósenta fyrirtækja á Íslandi sé ávallt með þeim allra lægstu í löndum Vestur og Norður Evrópu. Lág tekjuskattsprósenta er mun líklegri til að draga að erlenda fjárfesta, auka innlendar fjárfestingar og auka skatttekjur.

 *Framsóknarflokkurinn telur að nú þegar þurfi að hefja sérstakt átak í opinberum framkvæmdum.

* Mikilvægt er að stuðlað verði að meiri  sparnaðarhneigð almennings, t.d. með aðgerðum í skattakerfinu. Í því sambandi leggur Framsóknarflokkurinn m.a. til að breytingar verði gerðar á fjármagnstekjuskatti,  þannig að í stað skattlagningar nafnvaxtatekna verði raunvaxtatekjur skattlagðar. Núverandi skattlagningaraðferð, samfara þeirri staðreynd að álagsprósenta fjármagnstekjuskatts hefur tvöfaldast í tið núverandi ríkisstjórnar getur auðveldlega leitt til neikvæðra raunvaxta á innistæðum fólks í bönkum og þar með stórlega dregið úr sparnaðarvilja almennings. Þá telur Framsóknarflokkurinn mikilvægt að aftur verði tekinn upp sérstakur skattaafsláttur vegna hlutabréfakaupa.



****Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram ítarlegar tillögur til lausnar skuldavanda heimila og fyrirtækja. Enn vantar mikið upp á að bankar og önnur fjármálafyrirtæki hafi unniðúr þeim gríðarlega flóknu og erfiðu skuldamálum sem einstaklingar, fjölskyldur ogfyrirtæki eiga við að glíma, ekki síst vegna lagalegrar óvissu um ýmis mikilvæg mál,doða og ráðaleysi stjórnvalda. 

 

*Framsóknarflokkurinn er hlynntur persónukjöri.

 **** Við viljum að vægi atkvæða verði jafnað eins og kostur er.

 * Við höfnum því alfarið að landið verði gert að einu kjördæmi.

***** Miða skal við að erlendir ríkisborgarar afpláni íslenska refsidóma sína í heimalandinu þegar við á.

* Áfram verði haldið uppbyggingu og viðhaldi vegakerfisins  þrátt fyrir efnahagsþrengingar.

* Auka þarf umferðaröryggi og útrýma einbreiðum brúm í þjóð- og stofnvegakerfinu.

 

**** Flugvöllurinn í Reykjavík verði áfram í Vatnsmýrinni, sem hornsteinn fyrir samgöngur

landsmanna, vegna almenningsþarfa.

 

*****Við viljum tryggja að grunnnet fjarskipta og raforku verði í opinberri eigu og haldið verði áfram að byggja upp gott dreifikerfi fjarskipta og raforku til lands og sjávar.

 

*Íslendingar skulu áfram leita eftir samstarfi við þjóðir innan og utan Evrópusambandsins á grundvelli frjálsra og sanngjarnra samninga og samvinnu sem byggir á jöfnuði og ábata allra aðila. Með slíkum samskiptum geta íslensk stjórnvöld tryggt hagsmuni Íslands best á hverjum tíma.

 

**** Framsóknarflokkurinn telur hag lands  og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Nú sem fyrr standa auðlindir þjóðarinnar undir velferð hennar og fullt og óskorað forræði á þeim er forsenda farsældar til framtíðar. Framsóknarflokkurinn telur að þjóðin skuli ætíð eiga beina aðkomu með þjóðaratkvæðagreiðslu að ákvörðunum um stórmál eins og aðild að Evrópusambandinu og mun flokkurinn berjast fyrir þeim rétti.

 

****Nýta skal möguleikana sem felast í fríverslunarsamningi Kanada og EFTA- þjóðanna auk þess að gera fleiri fríverslunarsamninga við ríki utan EES-svæðisins. Í ljósi fyrirsjáanlegrar þróunar loftslags á næstu áratugum skal leggja áherslu á að styrkja og auka innlenda matvælaframleiðslu. Mikilvægi auðlinda eins og endurnýjanlegrar orku, landbúnaðar, sjávarútvegs og drykkjarvatns mun aukast mjög á næstu áratugum. Yfirráð og úrvinnslu auðlinda lands og þjóðar þarf því að efla.

 

***Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ásamt þátttöku í varnarsamstarfi við aðrar þjóðir á jafnréttisgrundvelli, tryggir best öryggi  borgaranna og ríkisins enda séu mannréttindi og lýðræði leiðarljós slíks varnarsamstarfs...."

Ég er virkilega ánægður með ályktanir flokksþings Framsóknarflokksins. Ég tel að þær   stefni til aukins hags íslenskrar þjóðar og eru gróðarskúr í eyðimörk Steingríms og Jóhönnu sem við höfum nú ráfað um í fjögur glötuð ár.  

Nú bjarmar fyrir nýjum degi og vinstri fnykinn og Móðuharðindin af mannavöldum fer að leggja frá landinu .

Um þessi mál öll sem Framsóknarmenn hafa sett fram þarf að verða hægt að semja við Sjálfstæðismenn þegar þeir komafrá sínum Landsfundi nú eftir tvær vikur.

Sjálfstæðismenn! Brettum upp ermar:

Framsókn hefur sagt SKÁK! 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ekkert talað um verðtryggingu lána, þar skutu þau framhjá marki.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 11.2.2013 kl. 00:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

HÆGRI GRÆNIR HAFA SAGT XB og XD SKÁK OG LÍKA MÁT! www.xg.is
www.afram-islands.is/islandsmagasin.pdf

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 11.2.2013 kl. 01:07

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Zumann góður,

Byrjanir ykkar eru allar réttar en þið hafið ekki ennþá komist af byrjunarreitnum ef marka má skoðanakannanirnar þar sem Frammararnir eru með mun meira fylgi. En þið kannski lagist. Og þá finndist mér sanngjarnt að þið fengjuð meira fylgi en stefnuskrárlaus framboð hjá hinum Gvendinum Steingrímssyni. Eller hur?

Jóhannn, það er ekki rétt því það er eitt aðalmálið

Halldór Jónsson, 11.2.2013 kl. 08:20

5 Smámynd: Samstaða þjóðar

Athyglisvert er að sjá, að Framsóknarmenn telja sig vita meira um veðurfar á komandi áratugum, en þeir vísindamenn sem stunda rannsóknir á því sviði. Verst er að Framsóknarmenn gefa ekkert upp um þessa sérfræðilegu vitneskju. Mun hlýna eða kólna ? Mun úrkoma aukast eða minnka á nærstu áratugum ? Þú hefur eftir þeim Halldór:

 

»Í ljósi fyrirsjáanlegrar þróunar loftslags á næstu áratugum skal leggja áherslu á að styrkja og auka innlenda matvælaframleiðslu.«

 

Ég verð að hryggja Framsóknarmenn, því að líkur fyrir kólnun veðurfars eru meiri en fyrir hlýnun. Í 15 ár hefur hitastig í andrúmi Jarðar staðið í stað og margt bendir til að hitaferillinn muni falla á nærstunni. Aukinn lífsandi (CO2) í andrúminu mun engin áhrif hafa á þessa þróun í framtíðinni, ekki frekar en í fortíðinni.

 

Loftur Altice Þorsteinsson.

Samstaða þjóðar, 11.2.2013 kl. 09:58

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Kollege Loftur

Ég gaf ekki í skyn sklyrðislausa þjónkun við allt sem þeir segja. Til dæmis er ég sammála því sem þú segir um kólnun fremur en hlýnun. En hvort sem þeir meina kólnun eða hlýnun, þá þarf að huga að ræktun.

Halldór Jónsson, 11.2.2013 kl. 12:43

7 Smámynd: K.H.S.

það er sérstaklega vandaður kafli hjá Framsókn um hvernig eigi að tækla vrðtryggingrmálið. Örugglega frá Frosta kominn. Hann var í Sylfri Egils og fór þar á kostum á sinn hægláta hátt.

það er mjög athugandi fyrir okkur Sjálfstæðismenn að kjósa Framsóknarflokkinn núna, því forystu Sjálfstæðisflokksins nú er vart treystandi bæði í ESB málum og stjórnarskrármálinu.

Bjarni þarf að víkja eins og Þorgerður. Hann gerði herfileg mistök er hann færði Jóhönnustjórninni bjarghringinn í stjórnarskrárkosningunum með að hvetja menn til að mæta og segja nei, þarmeð ónýtti hann meiningu þeirra sem ekki mættu vegna ólöglegra kosninga og málatilbúnaðar. Herfileg mistök en ekki þau fyrstu.

K.H.S., 11.2.2013 kl. 15:28

8 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Fyrningarleiðin var aldrei hugsuð eða skilgreind sem "fiskveiðistjórnartæki" eða skilgreind sem "fiskveiðistjórnartæki".  Hún var aftur á móti afar vel heppnað kosningaslagorð til þess gert að ná atkvæðum af Frjálslyndum. 

Jón Bjarnason verður seint kallaður byltingamaður en hann tók þó rækjuna alfarið úr kvóta og skötuselinn að hálfu leyti. Allavega nóg til þess að nú þurfa Norðlendingar og Austfirðingar ekki lengur að henda skötusel ef hann slæðist í netin.  Árni Matthísen kom skötuselnum í kvóta, líklega til að hægt verði að veðsetja hann. Steingrímur ætlar að koma þessu til fyrra horfs.

Ég tek undir að það virðast heldur betur orðið umskipti til hins betra hjá Framsókn við formannsskiptin.  Frosti Sigurjónsson er oddviti B í RN (þar sem ég bý) og það sæti er vel skipað.

Sigurður Þórðarson, 11.2.2013 kl. 16:01

9 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Halldór,

Ég rúllaði yfir þetta sem þú settir í pistilinn og sá ekkert um Verðtryggingu, kanski get ég ekki fundið það?

En ef það er ekki í pistlinum, þá bjóst ég við að það væri ekki í (F) manifesto?

En ég hefði haldið að svo mikilvægt mál sem Verðtryggingin er, væri sett fram í pitlinum þínum Halldór minn ef það væri í (F) manifesto. Ef ekki er afnám verðtryggingu þá kemur fröken verðbólga og fröken verðtrygging og étur upp allt það sem var gert til að lagfæra skuldfen heimilana.

Svo mikilvægt er afnám Verðtryggingu.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 11.2.2013 kl. 16:18

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram ítarlegar tillögur til lausnar skuldavanda heimila og fyrirtækja. Enn vantar mikið upp á að bankar og önnur fjármálafyrirtæki hafi unniðúr þeim gríðarlega flóknu og erfiðu skuldamálum sem einstaklingar, fjölskyldur ogfyrirtæki eiga við að glíma, ekki síst vegna lagalegrar óvissu um ýmis mikilvæg mál,doða og ráðaleysi stjórnvalda.

Jóhann er ekki skuldavandinn verðtryggingunni að kenna?

Er nokkur annar vandi?

Halldór Jónsson, 11.2.2013 kl. 18:49

11 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Það er alveg óskiljanlegt hvernig skautað er framhjá verðbólgunni í umræðum um verðtrygginguna nú á dögum. Oft er haft á orði að erfitt sé að vita hvort kom á undan eggið eða hænan. Í þessu tilfelli er svarið einfalt: Verðbólgan kom á undan verðtryggingunni. Verðtryggingingin var verkfæri til að hindra eignabruna og eignatilfærslu í verðbólgunni.

Auðvitað skapaði það vanda þegar laun voru aftengd en eignir/skuldir varðar áfram með verðbótum. Við höfum þó lifað þá tíma, þegar verðbólgan var ekki áhyggjuefni og lífið með gluggaumslögum var áhyggjulaust frá mánuði til mánaðar á árunum frá 1990 - 1995. Þá var verðtryggingin í fullu fjöri en verðbólgan lítil og jafnvel lægri en í mörgum nágrannalöndum.

Ég þekki þetta allt þar sem ég er af Sigtúnskynslóðinni og er enn að borga af síðasta húsnæðisláninu mínu. En fólk er furðu fljótt að gleyma. Við stenum nú hraðbyri aftur á 8. áratug fyrri aldar.

Líklega þarf að fara að rifja upp: "Úr fylgsnum fyrri aldar."

Sigurbjörn Sveinsson, 11.2.2013 kl. 22:00

12 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Já það er flakkið á verðgildi krónunar og verðbólgan sem að því hlýzt.

Fólk fær kauphækkun hjá þeim fyrirtækjum sem það vinnur hjá og Seðlabankinn tekur það allt af þeim með því að lækka verðgildi krónunar. Þetta er alveg jafn mikið vandamál og verðtrygging á lánum húsnæða.

Maður mundi ættla að svona fíflalæti gerðust aðeins á geðveikrahúsum en ekki hjá vel mentuðu, heilbrigðu og siðferðislegu fólki.

Til hvers að berjast fyrir kauphækkun, ef að Seðlabankinn tekur það og meira af fólkinu, geðveiki líkt.

Kveðja frá Las Vegas.

Jóhann Kristinsson, 11.2.2013 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418331

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband