Leita í fréttum mbl.is

Bjarni setti Landsfund Sjálfstæðisflokksins

með bravör og brilljans í eftirmiðdag.

Þeir sem ég hitti voru  allir á einu máli að nú hefði ræða formanns hitt í mark. Jafnvel gamall keverúlant og þrasari eins og  ég varð að viðurkenna „að ég hefði barasta ekki getað gert þetta betur sjálfur“  svo ég vitni til gamla sýslumannsins aftur. Og auðvitað hitti ég marga aðra þrasara en merkilegt nokk, þeir voru mér sammála að þessu sinni.

Bjarna formanni tókst að taka á öllum þeim málum þar sem eldarnir brenna heitastir. Hann lofaði úræðum í vandamálum heimilanna og boðaði lausnir í gegnum skattakerfið sem myndi gefa frádrátt vegna afborgana húsnæðisskulda á svipaðan hátt og  séreignasparnaður.

Hann vildi greinilega ekki ganga í Evrópusambandið  við mikinn fögnuð fundarmanna. Hann taldi að við yrðum að búa við krónuna enn um sinn og uppskar aftur lófatak. Við yrðum að byggja up stöðugleika áður en við gætum rætt upptöku annars gjaldmiðils. Meira lófatak.

Hann boðaði að taka á uppgjöri á þrotabúum bankanna með þeim hætti sem þjóðin þarfnaðist þar sem hún gæti ekki  horft á hrægammasjóði rústa gjaldeyrisstöðu hennar. Mikið lófatak fundarmanna.  Hann boðaði afnám gjaldeyrishaftanna í framhaldi af því.

 Hann lofaði afléttingu skattahækkana vinstristjórnarinnar. Við myndum byrja á tryggingagjaldinu og vitnaði í finnska stjórnmálamanninn sem lýsti því hvernig Finnar hefðu brotist út úr sinni kreppu fyrir tveimur áratugum með því að lækka skatta á fyrirtækjum fyrst og hleypa vexti í atvinnulífið.Síðan yrði þrepaskipting tekjuskattsins afnumin og annað eftir því.

 Sjálfstæðismenn myndu stækka þjóðarkökuna svo allir fengju meira mótsett við vinstristjórnina sem aðeins kynni að skera þynnri sneiðar handa hverjum og einum. Við yrðum að fara leið sparnaðar og ráðdeildar á öllum sviðum í meðferð skattfjár, Við yrðum að hætta að leggja ósanngjarnar álögur á sjávarútveginn einan og sér sem væru óháð afkomu fyrirtækjanna.

Það væri umfram allt verkefnið að finna starfsorku fólksin viðnám. Það skipti mestu máli. Of sterkur gjaldmiðill þjóðar skapaði ekki umræður um kjaramál heldur þýddi bara fyrirvaralaus uppsagnabréf.  Við slíku yrði ekki brugðist á annan hátt. Það þýddi ekki að tala um að taka upp evru um leið og umræður um kjaramál. Við gætum litið til evrulandanna. Hann las upp tölur um atvinnuleysi ungs fólks í evrulöndunum sem skipti tugum prósenta og væri nú yfir 50 % í Grikklandi sem væri í efsta sæti.

Við Íslendingar skynjuðum að Evrópusambandið seildist til sívaxandi áhrifa og inngripa í fullveldi okkar og landa sinna. Fullveldisframsal hérlendis  gæti brotið í bága við stjórnarskrána.  Samfylkingin vildi þá bara breyta stjórnarskránni og segði það skiljanlegt því að ESB væri orðið svo þreytt á EES samningnum EFTA-ríkjanna. Bjarni sagðist fyrir sitt leyti vera orðinn þreyttur á Samfylkingunni og hlaut gríðarlegar undirtektir við þeirri yfirlýsingu.

Hann ræddi málefni sjúkrahúsanna og lýsti hvernig hann hefði jafnvel bæði misst barn sitt og konu fyrir ári síðan  ef svo hæft fólk sem raun ber vitni mannaði ekki spítalana okkar. Við yrðum að finna leiðir til að halda uppi heilbrigðisþjónustu í landinu. Annað væri ekki í boði fyrir þjóðina.

Hann vakti athygli á að konur munu verða um helmingur þingmann flokksins í vor. Hann sagðist skyldu sjá til þess að kynjajöfnuður yrði í ráðherraliði flokksins. (Og eru það eitt mikil tíðindi fyrir almenning en auðvitað vond fyrir efstu menn kjördæmanna sem hafa þóttst eiga embættin innskot kverúlantsins.) Hann sagðist hlakka til að fara fyrir glæsilegum frambjóðendum flokksins í kosningunum í vor og tók þar af skarið með vangaveltur sumra.

Fundarsetningin var hin glæsilega og Laugardalshöll þéttsetin og fólk á svölunum líka. Fundurinn verður með öðru sniði þar sem  fólk verður kosið í nefndirnar með sérstökum framboðum. Veit ég ekki hvernig það virkar en kverúlantar fá sjálfsagt að þenja sig í umræðunum til að stöðva vitleysur eða búa til nýjar. 

Ræða Bjarna formanns var góð . Ekki endilega í flutningnum sjálfum, leikrænni tjáningu eða „steingrímskum öskrum“.  Heldur voru það málefnin sem hittu í mark.  Það var upplifun að skynja undirtektir meira hálfs annars þúsund manna við ræðu formannsins. Hann náði með þessu beint til fólksins á yfirvegaðan hátt. Það væri ömurlegt ef kosningar fara þannig að þesi stefnumál ná ekki brautargengi. Því miður er slíkt ekki sjálfgefið ef semja þarf um afslátt við aðra flokka.

Það er greinilegt  að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að fara mikinn á þessum Landsfundi og ætlar sér að höfða til landsmanna sem hafa fengið nóg af úrræðaleysi vinstristjórnarinnar.

Fram til sigurs !

X-D


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hann lofaði öllu fyrir alla. allt fyrir aumingja.

Sama tima lofa lækkandi sköttum

lýðskrumið náði nýjum hæðum

Sleggjan og Hvellurinn, 21.2.2013 kl. 22:04

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Venjulega eyði ég ekki orðum á huglausa nafnleysingja eins og þig sem felur þína kommaásjónu bak við felunafn. Enda þýðir ekki að reyna að skýra það út fyrir þér að 10 % í hundrað er meira en 100 % í núlli.

Halldór Jónsson, 21.2.2013 kl. 23:01

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ábyrgðamaður er á hverri bloggsíðu hér á moggablogginu. Nafnleysi ekki leyfilegt.

kv

Sleggjan og Hvellurinn, 21.2.2013 kl. 23:46

4 Smámynd: Rafn Guðmundsson

blind hrifning - leitt hvað sumir eru ei......

Rafn Guðmundsson, 22.2.2013 kl. 00:54

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Trú formannsins á krónuna virðist styrkja hana allsnarlega. Það eitt og sér er auðvitað jákvætt....!

Ómar Bjarki Smárason, 22.2.2013 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband