Leita í fréttum mbl.is

Kjördæmasubbuskapur

Steingríms J. Sigfússonar vegna sértækra stuðningslaga við framkvæmdir á Bakka, sem hann kom í gegn á síðustu metrum ríkisstjórnar sinnar, ætla að draga dilka á eftir sér.

Í máli Ragnheiðar Elínar Árnadóttur ráðherru á Sprengisandi núna kemur í ljós að þessi lög eru alvarleg hindrun í viðræðum við alla mögulega erlenda fjárfestingaaðila sem hingað vilja koma. Og þeir eru sem betur fer þó nokkrir þrátt fyrir allt. Svo er einnig spurning hvort þessi lög standast skoðun ESA og yrði það ein háðungin enn fyrir fyrrverandi AlÞingi ef þau yrðu dæmd af en hugsanlega happ fyrir þjóðina.

Það ber allt að sama brunni. Þegar búið er að ræða almenn skilyrði, þá fara menn að krefjast sérstyrkja og ívilnana eins og Steingrímur J. kom á í sambandi við framkvæmdir á Bakka.

Það er sama hvar borið er niður. Slóðinn eftir Steingrím Jóhann er hvarvetna til óþurftar. Nú síðast eru það bankamálin sem eru að verða óleysanleg vegna ráðstafana þessa manns. Málin flókna í stað þess að greiðast og nú sér eiginlega hvergi til lands. Enda var maðurinn að eigin sögn svo úrvinda af vinnuálagi að ekki er að búast við öðru en svona niðurstöðu.

Kjördæmasubbuskapuri Steingríms Jóhanns í sambandi við Bakka er enn einn steinninn í hauginn yfir  vinstri stjórnina sem er núna eins og vond martröð í minningu þjóðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Guðnason

Jæja Dóri minn   Meðan ekkert verra en hinn augljósi kjördæmasubbuskapur Skallagríms kemur upp á þinn skjá, ættum við engu að þurfa að kvíða - Ennþá óttast ég þó að þú hafir aðeins velt um fáeinum smásteinum. 

Mér býður í grun að við ráðstöfun bankanna til að friðþægja "Hr. kröfuhafa" hafi hvergi verið TRYGGT að athafnir bankanna í eigu nýrra aðila teldust undanskildar frá óbeinni ríkisábyrgð - frekar en var áskilið af útlendingum meðan þeir voru í einkaeigu fyrir hrun.  Það skyldi þó ekki vera forsenda áhuga skáeygðra - nei ég segi bara sisvona

Þorkell Guðnason, 12.8.2013 kl. 00:34

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Að sjálfsögðu á að selja erlendum fjárfestum allt höfuðborgarsvæðið eins og það leggur sig og breyta stjórnarskskránni í leiðinni þannig að Landsbyggðin þurfi ekki að borga.Skiptum landinu upp í fylki þannig hægt verði að selja altt höfuðborgarsvæðið, þig meðtalinn Halldór.

Sigurgeir Jónsson, 12.8.2013 kl. 05:45

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er löngu tímbært að skipta landinu upp í fylki,svo gjaldþrota óþjóðalýður sé ekki að ráðskast með landið.

Sigurgeir Jónsson, 12.8.2013 kl. 05:49

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hið eina raunverulegakjördæmapot er stanslaust pot höfuðborgarsvæðisins þar sem allt sogast til, þar er embættismannamafían á fullu.

Sigurgeir Jónsson, 12.8.2013 kl. 05:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 68
  • Frá upphafi: 3418300

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband