Leita í fréttum mbl.is

Að hengja bakara

fyrir smið er vinsælt úrræði þegar öðrum sleppir.

Þetta kemur manni í hug þegar Sérstakur birtir Lárusi Welding hverja ákæruna af annari sem flestar lúta að því að gleyma að láta stjórn Glitnis vita um stórlánveitingar til félaga sem óneitanlega tengjast einhverjum  stjórnarmönnum sama Glitnis.

Það var verið að auglýsa hús Al Capones til sölu hérna í Flórídu. 400 m2 á einn milljarð. Mig minnir að á dögum Als sáluga  hafi verið til hugtak sem nefndist "Fall-Guys". Það voru svona prammakallar sem voru leigðir til að tapa í boxkeppnum sem veðjað var um, taka á sig skelli fyrir séffana gegn greiðslu og svo fram eftir götunum. Séffarnir sluppu þannig við truflanir.

Ég á bágt með að Lalli Welding sé svona mikið staðfastur fjármálatöffi eins og Séerstakur virðist halda. En hann kann kannski að þegja betur en margir aðrir. Ég trúi því svona mátulega að hann sé bakarinn allra brauða. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sérstakur hefur ekki en birt Lárusi ákæru vegna skattsvvika.Það hlýtur að koma að því. Það var það eina sem dugði til að koma AL í tugthúsið.Ef Lárus hefur stolið einhverju hlýtur það að varða við skattalög.Ef hann hefur ekki stolið neinu er hann saklaus´.

Sigurgeir Jónsson, 16.2.2014 kl. 04:04

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

En vissulega er litð öðrum augum á skattalagabrot hér, en í flestum löndum.Sérstakur hefur ekki umboð.til að skoða slikt.Spurning er hvort ekki sé tilefni að veita honum umboð til að skoða slík brot.

Sigurgeir Jónsson, 16.2.2014 kl. 04:16

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Skattsvik fara fram hér fyrir allra augum.Menn eru misjafnlega stórir í svikunum.Al Capone var góður í þessu með her lögfræðinga.Það dugð ekki.

Sigurgeir Jónsson, 16.2.2014 kl. 04:21

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sú ríisstjórn sem nú situr er ekki gæfuleg hvaðskattsvikinvarðar.Hún sker niður hvað varðar rannsóknir á skattsvikum,Engar forrsndur eru gefnar fyrir þessum niðurskurði.Helst má skilja að þetta sé komið frá embættismönnum í fjármálaráðuneyti.Kanski hefur góði hirðirinn í þínum flokki,fjármálasnillingurinn verið þar eitthvað eithvað með puttana Halldór.

Sigurgeir Jónsson, 16.2.2014 kl. 06:51

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Hver stjórnaði Glitni Sigugeir? Hver réði í Glitni? Illugi Gunnarsson? Birna Einarsdóttir? Þorsteinn Már? Lárus Welding? Hvað átti Lárus mikið í Glitni? Var ekki þarna einn í viðbót sem enginn man hvað heitir?

Halldór Jónsson, 16.2.2014 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 3418253

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband