Leita í fréttum mbl.is

Slugsið

á íslenskum vinnustöðum er víðfrægt. Hver kannast ekki við myndina af íslenska starfsmanninum sem stikar um vinnusvæðið, 3 skref til hægri, tvö skref til vinstri,... kjaftandi í gemsann sinn sem leysir hann undan vinnuskyldu eins lengi og verkast vill. Svo þarf hann að vera heima hjá veikum börnum, fara til tannlæknis, fara í jarðarför, skreppa í banka. Allt nema að vinna fyrir kaupinu.

Enda segja menn að kaupið sé svo lágt að það sé ekki hægt að ætlast til mikils og enginn geti lifað á dagvinnunni.Þessvegna verður að vinna svona mikla yfirvinnu sem leiðir til þess að álagið er yfirþyrmandi. Lögreglan er þjökuð af streitu, flugumferðarstjórar að kikna. Samt er numerus klausus beitt þar sem annarsstaðar. Kennarar stynja undan álaginu hvað sem svo PISA kannanir segja um pródúktið.

Svo horfi ég á faglærða Pólverja vinna austur í sveitum. Þeir bara vinna og líta ekki upp. Enginn sími, ekkert kjaftæði, engir smóktæmar, fara á kamarinn á morgnana í eigin tíma, engar skreppingar ekkert slugs.

Illugi segir að hægt sé að kenna meira á styttri tíma sem er sama og að segja að ég hafi verið að slugsa allan  5. bekk. Kjaftæði auðvitað, ég hefði ekki mátt vera deginum yngri en tvítugur þegar ég fór til Þýskalands. 

Guðrún Hafsteinsdóttir segir hægt sé að auka framleiðni á Íslandi með þvi að sleppa kaffitímum og hækka kaupið. Ég hef reynt þetta sjálfur og þetta skilaði þá  engu nema hærra kaupi og meiri yfirvinnu. Kjaftæðið bara jókst ef nokkuð var og það var enga hægt að reka því það var svo mikill skortur á fólki.Sumir atvinnurekendur vilja heldur flytja inn útlendinga og hafa Íslendingana frekar heima á sósíal.  En samt eru ekki í mínum huga til duglegri kvikindi en þeir Íslendingar sem vilja vinna. Sérstaklega verktakar og akkorðarar. Það er ævintýri að vinna með sumum slíkum gæjum. Við skulum sleppa allri kynjafræði hér, kallar eru kallar sem eiga að strita í vinnunni. 

Einfalt ráð sem Guðrún mætti huga að til að auka framleiðni á Íslandi er að skylda alla, nema skrifborðsmenn og verkstjóra kannski, til að skilja gemsann eftir í skápnum í búningsherberginu. Það eitt myndi skila mörgum prósentum í framleiðni. 

Og stórminnka slugsið á vinnustöðunum sem er þjóðareinkenni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

Ja - nú erum við 100% sammála gamle ven !

Kristmann Magnússon, 10.5.2014 kl. 11:40

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Já það skiptir miklu máli hvar slugsað er. Ef það er gert á þinn kostnað er það þitt mál, en þegar það er t.s. gert af bæjarstjóra eða bæjarfulltrúum okkar er það ólíðandi. Á hins vegar ekki von á að þú fjallir um þetta mál af nokkru viti þessa dagana.

Sigurður Þorsteinsson, 10.5.2014 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 3418444

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband