Leita í fréttum mbl.is

Breyttir tímar?

er ef til vill það sem okkur tveimur eldri Sjálfstæðismönnum skaust yfir þegar við vorum að ræða það vandmál flokksins okkar  að hann höfðar ekki til unga fólksins á milli 16-29 ára, sérstaklega í Reykjavík.
 
Við vorum að ræða gömlu gildin um "eign fyrir alla". Menn fóru að vinna í gamla daga , fengu svo lóð, byrjuðu að byggja og eyddu ævinni  í að borga af lánunum þangað til skuldirnar voru uppgreiddar, börnin löngu farin og fólkið búið að missa vinnuna vegna aldurs. Þá var lagður á auðlegðarskattur og tekjulausir urðu að selja eignina sína til að borga skattinn. ­Þetta var þróunin á tímum norrænu velferðarinnar sem lét svo eitthvað standa á sér.
 
Unga fólkið kærir sig bara ekkert um  þennan lífsstíl. Láta steypa sig fast til að verða ævilangt atkvæði einhvers þjóðamálaskúms eða bæjarmálabjössa. Það er búið að fara til Noregs eða lengra og vinna fyrir mikið betra kaup. Það er orðið alþjóðlega menntað og fær góðar stöður erlendis af þvi að það er sæmilega upp alið í Guðskristni og góðum siðum. Allstaðar tekið fram fyrir  múslímska innflytjendur, Allt evrópska efnahagssvæðið liggur fyrir fótum þess.
 
Það verður ekki þetta fólk sem mun reisa nýju kísílverin fyrir 150 milljarða heldur pólskir verkamenn rétt eins og Kárahnjúkar voru reistur af Kínverjum. Smám saman verður íslensku þjóðinni eins og við þekktum hana skipt út fyrir dimmleita innflytjendur.
 
Gömlu gildin eru bara ekki lengur í gildi hjá unga fólkinu. Þetta er Dagur B. búinn að skilja og þessvegna lofar hann þrjúþúsund niðurgreiddum leiguíbúðum. Þeta er unga fólkiðð búið að skilja og því þjappar það sér um Dag og Samfylkinguna. Fyrirmyndin er til staðar í Danmörku þar sem margir ættliðir hafa búið í kratískum leigukössum hins opinbera og á sósíalnum.
 
Það eru breyttir tímar framundan í íslenskum stjórnmálum . Menn vona að þeir séu bjartir og kjósa því Bjarta Framtíð án þess að nokkru hafi verið lofað sem stefnumálum af þeim lista öðru en að vera skemmtilegur í framtíðinni hvenær sem hún annars kemur.
 
Samfylking og Björt Framtíð er líklega það sem koma skal í pólitík næstu daga. Hefðbundnir flokkar verða kosnir áfram  af þeim stöðnuðu sem enn láta blekkjast eða geta ekki flúið vegna fötlunar eða farlemi. Eða sjá menn aðrar ástæður betri til skýringar á skoðanakönnunum?
 
Kosningarnar verða því merkilegar fyrir margra hluta sakir. Það eru kannski bara komnir breyttir tímar sem fæstir taka eftir því þeir gerast hægt. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband