Leita í fréttum mbl.is

Friðkaupastefnan

eða Apeacement, sen tók á sig mynd eftir för Chamberlains á fund Hitlers og  er núna á uppleið um Vesturlönd. Skaðaðu ekki skálkinn svo hann skemmi þig ekki var máltæki sem Íslendingar þekktu hér áður.

https://www.youtube.com/watch?v=uoeuh-EGj7s 

Mér finnst að þessi maður hafi verið leiðtogi með skýra sýn umfram marga sem hafa á eftir honum komið.  Hann segir á þessu myndbandi að þau landamæri séu til sem frjálsir menn megi aldrei láta ofbeldismenn stíga yfir í skiptum fyrir stundarþægindi. Friðkaupastefnan verði að enda þar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Karl

Um hvað ertu að tala??

Einar Karl, 26.7.2014 kl. 11:16

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Náðirðu ekki í myndbandið?

Halldór Jónsson, 26.7.2014 kl. 11:21

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Frábært myndband kæri Halldór.

Ronald Reagan skírmæltur að vanda og óragur. Einstæður maður í alla staði. Hárrétt greining hjá þér á því sem hann segir þarna að sjálfsögðu.

Haf þökk fyrir að koma þessari upptöku á framfæri við alþjóð. Hafi einhvern tíma verið þörf á þessari ræðu þá er það um þessar mundir !

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.7.2014 kl. 12:16

4 Smámynd: Einar Karl

Nei ég nennti ekki að hlusta á Ronald Reagan í rúmar þrjár mínútur.

Er fólk í dag að fylgja "friðkaupastefnu" til að kaupa sér "stundarfrið"? Hvar þá??

Einar Karl, 26.7.2014 kl. 13:01

5 Smámynd: Þórir Kjartansson

Það er með ólíkindum hvernig skynsamasta fólk getur lokað augunum fyrir borðleggjandi staðreyndum.  Nú er norska lögreglan með gríðarlegan viðbúnað vegna yfirvofandi hryðjuverka. Eftir fréttum að dæma má jafnvel ætla að þar séu að verki norskir ríkisborgarar, fæddir og uppaldir í Noregi sem búnir eru að fara til Sýrlands eða annarra mið-austurlanda og læra manndráp og hryðjuverk í boði Íslamskra ofstækismanna. Þetta hefur verið að gerast í Bretlandi. Íslamistar af jafnvel annarri og þriðju kynslóð, fæddir og uppaldir þar í landi hafa verið uppvísir að slíkum áformum.  Er einhver ástæða til að halda að reynslan hér á Íslandi yrði önnur?

Þórir Kjartansson, 26.7.2014 kl. 14:54

6 Smámynd: Þorkell Guðnason

Ég var svo bláeygur að halda menn reyna að draga lærdóm af niðurlægjandi mistökum nánustu kollega. Sé að því fer fjarri.

Vísa í orð EK hér að ofan: "Nei ég nennti ekki að hlusta...í rúmar þrjár mínútur" !!!

Rifjar upp forsendur ICESAVE-samnings Svavars, sem ..nennti ekki að hafa þetta hangandi yfir sér lengur...

Þorkell Guðnason, 26.7.2014 kl. 15:11

7 Smámynd: Einar Karl

Hvað segir Reagan svona merkilegt?

Einar Karl, 26.7.2014 kl. 16:14

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Einar Karl, auðvitað er ekkert merkilegt sem kemur frá Bandaríkjunum eða öðrum frjálsum lýðræðisríkjum eða kjörnum fulltrúum. Vona að þú komist yfir að hafa komið á síðuna.

Halldór Jónsson, 26.7.2014 kl. 20:14

9 Smámynd: Einar Karl

Ég sótti mér menntun til Bandaríkjanna, bara nokkuð góða, svo ég segi sjálfur frá. Bjó þar í fimm ár. Frábært land, gnótt tækifæra, fullt af dásamlegu fólki. En sumt orkaði tvímælis og að sumu leyti hafa Bandaríkin farið aftur á bak á þessum 15 árum síðan ég bjó þar. Öfgafull og íhaldssöm viðhorf taka meira pláss, ójöfnuður er meiri, ótti við hið óþekkta enn meiri en áður.

Einar Karl, 26.7.2014 kl. 20:43

10 Smámynd: Þorkell Guðnason

Sitthvað bendir til að EK gæti verið viðbjargandi...

Ef hann NENNIR að hlusta augnablik - t.d. heilar 3 mínútur - áður en hann geysist fram á ritvöllinn. Ég, fyrir mitt leyti skal taka undir, að öfgafull sjónarmið s.s. boðskapur prédikaranna á FOX news eða Tea party liðsins, virðast hafa heilaþvegið þar stóra þjóðfélagshópa. Svipaðir hlutir eru líka að gerast hér og víðar um heim. Valdagræðgi er réttur dagsins. Áróðurshýenur og "spindoctors" menntaðir í stjórnmálafræði, beita einhæfri menntun sinni fyrst og fremst til eineltis og eyðileggingar málflutnings pólitískra andstæðinga. Almannahagur skipir þá engu.

Sé hins vegar ekkert neikvætt við merkingu orðsins íhaldssemi = If it ain´t broke, don´t fix it

Þorkell Guðnason, 26.7.2014 kl. 21:30

11 Smámynd: Einar Karl

Jæja, ég hlustaði á þessa ræðu. Þetta er fyrst og fremst stríðsæsingaræða.

Einskonar herkvaðning. Hver voru skilaboðin? Að fara ætti í stríð við Sovétríkin sálugu? Vannst Kalda stríðið með stríði? Hvernig hefði það stríð endað??

Þessi ræða minnir mig á 'Lord of the Rings' myndirnar. Ég er ekki hrifinn af myndunum, því þær ganga út á svart-hvíta heimsmynd (eins og heimsmynd Reagan), þar sem menn eru annað hvort góðir eða vondir, óvinirnir er afmennskaðir.

Hver er óvinur þinn Halldór Jónsson?? Kaffihúsaeigandi í Teheran? Eða ljósmóðir á spítala á Gaza?

Einar Karl, 26.7.2014 kl. 23:23

12 Smámynd: Halldór Jónsson

Eonar Karl, þú komst mér á óvart. Ég helt að þú værir Anti-American all. Bandaríkin koma mér fyrir sjónir sem Mega-Ríki, Mega-Land með Mega-Problem. En þau hafa líka einhvern Mega-Spirit sem ég finn bara ekki annarsstaðar, patriotism sem ég bara finn hvergi í Evrópu, frá Íslandi til Albaníu. Þessvegna dugir Evrópusambandið ekki til neins, einskis nýtt makindabandalag kratismans og minni þá á Bosníustríðið.

Ég eygi von í hvítu Ameríku. Þar finnast enn hin gömlu gildi. Bandaríkin eru hinsvegar að rotna innanfrá með innflutningi óþjóða og fjölgunar svarta dropoutmassans sem ennþá leggur fátt til málanna annað en vandamál.

Ég finn til algers vanmáttar ef ég er spurður hvernig ég vilji leysa vanda Bandaríkjanna og viðurkenni það. Mig skortir of margt til að skilja Bandaríkin. En mér finnst miklu líklegra að þau leysi sín vandamál heldur en að Evrópusmabandið leysi sín vandmál nokkurn tímann og þá ekki heldur vandamál Íslands,

Halldór Jónsson, 26.7.2014 kl. 23:27

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Einar Karl, óvinur minn er aðeins sá sem vill þvinga mig til að játast undir einhverskonar ok.

Óvinur minn er sá sem segir mér að virða sharíalög og játast undir trúarbrögð sem ég vil ekki.

Sá er minn óvinur sem vill gefa upp mitt fósturland til,óhefts innflutnings kreddu-múslíma eins og Íslamista og láta þá taka yfir þjólífið eða selja landið til kínverskra kommúnistaflokksins í gervi Huang Nupo.

Ég er patríót af gmala skólanum og vil vernda kynstofninn í landinu með því að hefta innflutning ólíkra þjóða og siða.

Ég vil varðveita þjóðernið eins og það var sem las fornsögur. Ég kæri mig ekkert um magn af innflytjendum sem gefa ekkert fyrir menningararfinn eins og við þekktum hann.

Ég vil flokka innflytjendur og hælisleitendur í æskilega og óæskilega.

Fyrir mér eru allir menn og kynstofnar úr mismunandi menningarheimum langt frá því að vera jafn æskilegir hingað viljum við endilega taka við slíku fólki. Ég myndi heldur kjósa að vera sem Lichtenstein sem tekur ekki við neinum sem ekki borgar.

Halldór Jónsson, 26.7.2014 kl. 23:39

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Göngum úr Schengen sem fyrst og svo úr EES sem hefur ekki fært okkur neitt nema vandamál. Við þurfum ekkert á þessu hælisleitendafólki að halda. Það þarf hinsvegar á okkur að halda sér til framfærslu. Fiskikaupendur geta eki án okkar verið. Hættum að væla yfir hruninu.

Halldór Jónsson, 26.7.2014 kl. 23:42

15 Smámynd: Einar Karl

Halldór, er þessi óvinur ekki fyrst og fremst í höfðinu á þér? Ekki vill neinn í alvöru að þú undirgangist Sharia-lög? Vill Salman Tamimi það?? Er það ekki frekar Þú sem vilt takmarka trúfrelsi HANS, heldur en að hann vilji takmarka trúfrelsi ÞITT ??

Svo verð ég nú að segja að mér blöskrar þessi rasískra sýn þín á Bandaríkin.

Einar Karl, 27.7.2014 kl. 00:13

16 Smámynd: Þorkell Guðnason

Jæja... þarna eruð þið komnir lengra en ég ætla að hætta mér út á "ótraustan ísinn".

Etv mætti einhvern lærdóm af þesu draga: http://avpixlat.info/2014/07/17/mer-an-en-myt-erik-ullenhag/

Þorkell Guðnason, 27.7.2014 kl. 04:31

17 Smámynd: Einar Karl

En svo við snúum okkur aftur að ræða Reagans og myndbandinu. Hver er boðskapurinn í myndbandinu sm slíku? Hver er tilgangurinn með því ða klippa inn myndbúta frá ÍRAN?

Nú ætla ég ekki að réttlæta eða verja hatursáróður þarlendra gegn Bandaríkjunum eða taka upp hanskann fyrir mannkertið og popúlistann Mahmoud Ahmadinejad - EN hverjir hafa meiri ástæðu til að óttast:

Bandaríkjamenn ófríð frá Íran, eða

Íranir ófrið frá Bandaríkjunum?

Er þetta myndband kannski sett saman sem réttlæting á innrás í Íran? Við vitum jú að "haukar" í Bandaríkjunum hafa talað mjög opinskátt um að ráðast á Íran.

Einar Karl, 27.7.2014 kl. 09:28

18 Smámynd: Halldór Jónsson

Einar þáð er dálítið síðan að þessi Reagan flutti þessa ræðu. En hann er að segja að þjóð getit ekki látið undan ofbeldi endalaust. Hann er fyrir mig að segja að ég krefst Þess að mín þjóð sé vernuð gegn óheftum innflutningi óþjóða. Þá á að skilgreina það hversu margi múhameðskir arabar geti flutst hingað á ári. Þar næst á að skilgreina hversu margir af þeim verði að koma með tilekna fjárupphæð til landsins. Því næst hvaða menntun hver þeirra skala hafa, smiður, suðumaður, vélamaður, verkfræðingur, læknir. Kallaðu þetta hvaða ónefnum sem þið notið af þínu sauðahúsi. Þetta er mín skoðun.

Halldór Jónsson, 27.7.2014 kl. 11:09

19 Smámynd: Einar Karl

Ég held nú að Reagan sé bara alls ekki neitt að fjalla um innflytjendur. Bandaríkin eru land innflytjenda, en það háir þeim í dag, t.d. í Silicon Valley að það er miklu erfiðara fyrir fyrirtæki að fá til sín vel menntaða og klára innflytjendur til starfa, t.d. frá Indlandi og Kína.

Það sem ég er að benda á er að þetta myndband er að gera tilraun til að "óvinavæða" Írani. Það eru Bandaríkjamenn sem virkilega ógna Íran, miklu meira en Íran ógnar Bandaríkjunum.

Halldór, við ættum að feraðst saman til Íran! Jóhanna Kristjónsdóttir hefur skipulagt hópferðir þangað. Þeir sem þangað koma, og til annara miðausturlanda, tala um einstaka gestrsini hvert sem komið er, vingjarnlegt fólk og viðmót.

Ég vona að ég komist einn góðan dag til Íran, áður en Bandaríkjamenn sprengja landið í tætlur.

Einar Karl, 27.7.2014 kl. 11:25

20 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég hef komið til ýmissa múhameðslanda og fleiri skilgreindra trúarlanda öðruvísi. Allstaðar hef ég hitt vingjarnlegt fólk og viðmót þó maður hafi séð götuslagsmál bæði þar og svo í Evrópu.

Ertu endilega viss um að Reagan sé að ræða Iran í ræðunni? Ég hélt að hann væri að ræða heimsástandið og kalda stríðið Það var Carter sem lenti í Írönum og missti hermenn þar. Hvenær var sendiráðstakan annars? Hinsvegar er Íran frekar að ógna Ísrael fyrst með atómbombum. Ef þeir þurrkuðu út Ísrael, hvert yrði framhaldið. Er ayjatollarnir fólk sem þú heldur að sé gestrisið, og vingjarnlegt? Eru þeir yfirleitt með greind eða upplýsingar sem eru þess eðlis að þú treystir þeim fyrir atómsprengjum eða þá honum í N-Kóreu? Þarf ekki að gera frekari kröfur til ráðamanna en að þeir kunni Kóraninn eða Biflíuna?

Halldór Jónsson, 27.7.2014 kl. 11:50

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Einar Karl

Ég hlustaði á þetta aftur og bar svo saman við seinni myndir af Reagan. Ég held að ræðan sé flutt löngu áður en hann varð forseti og mér heyrist að hann sé að tala um kaldastríðið við Sovétríkin. Ég myndi halda að myndin sé frá 1960-70 og þá frá ríkisstjóraárum hans. Eða hvað heldur þú?

Þetta er svo klippt saman sem klassískt efni gagnvart vandamálum dagsins í dag og þá kemur það út eins og kallinn sé að hamast gegn múslímum dagsins.

En við tveir látum ekki blöffa okkur þannig. Ég tek þetta sem klassískan texta, eins og Gettysborgarávarp Lincolns sem hrífur okkur enn í dag þó margt sé breytt.

Halldór Jónsson, 27.7.2014 kl. 12:18

22 Smámynd: Einar Karl

Ég geri mér grein fyrir því að ræðan er miklu eldri en fremstu myndbútarnir. Og kallinn má eiga það að hann kann að flytja ræður. Enda lærður leikari. En ég er prinsipiellt mótfallinn svona stríðsæsingatali.

Hér er önnur ræða, að mínum dómi miklu betri:

http://www.historyplace.com/speeches/eisenhower.htm

Einar Karl, 27.7.2014 kl. 13:46

23 Smámynd: Einar Karl

... Down the long lane of the history yet to be written America knows that this world of ours, ever growing smaller, must avoid becoming a community of dreadful fear and hate, and be instead, a proud confederation of mutual trust and respect. Such a confederation must be one of equals. The weakest must come to the conference table with the same confidence as do we, protected as we are by our moral, economic, and military strength. That table, though scarred by many past frustrations, cannot be abandoned for the certain agony of the battlefield. Disarmament, with mutual honor and confidence, is a continuing imperative. Together we must learn how to compose differences, not with arms, but with intellect and decent purpose. Because this need is so sharp and apparent I confess that I lay down my official responsibilities in this field with a definite sense of disappointment. As one who has witnessed the horror and the lingering sadness of war -- as one who knows that another war could utterly destroy this civilization which has been so slowly and painfully built over thousands of years -- I wish I could say tonight that a lasting peace is in sight. Happily, I can say that war has been avoided. Steady progress toward our ultimate goal has been made. But, so much remains to be done. As a private citizen, I shall never cease to do what little I can to help the world advance along that road.

Einar Karl, 27.7.2014 kl. 13:47

24 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Einar Karl.

Reagan var ekki lærður leikari. Hann fékk vinnu sem leikari eftir að hann hafði útskrifast úr College þar sem hann var lærði hagfræði og félagsfræði. Leikarastarfið tók hann þar sem ekki var aðra vinnu að fá þegar hann vantaði vinnu á þeim tímapunkti.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 27.7.2014 kl. 15:01

25 Smámynd: Halldór Jónsson

Reagonimics var ekki della einhvers leikara heldur hagfræðisannfæring.

Halldór Jónsson, 28.7.2014 kl. 00:44

26 Smámynd: Halldór Jónsson

Já, Einar,

ég held að Eisenhower hafi verið mjög merkilegr maður. Ég las bók hans "Crusade in Europe". Sú bók gaf mér innsýn í hugarheim hermanns frá Bandaríkjunum. Einbeittur, stoltur, greindur,hógvær. Og árangurstengdur fyrst og fremst. Virðing mín fyrir þessum manni er mikil.Ég held að hann hafi verið býsna einstakur.

Halldór Jónsson, 28.7.2014 kl. 00:49

27 Smámynd: Þorkell Guðnason

http://en.wikipedia.org/wiki/Frank_Maxwell_Andrews

EF og HEFÐI...

Frank M Andrews forveri Eisenhowers slapp ekki lifandi yfir Fagradalsfjallið okkar 3.maí´43. Þá losnaði staða hans og Eisenhower tók við. Varð síðar forseti sem stríðshetja. Minn mentor taldi á Fagradalsfjalli hafa farist mikilmenni, sem trúlega hefði sest á forsetastól í USA og leitt heimsbyggðina með vænlegri hætti.

Þorkell Guðnason, 28.7.2014 kl. 12:11

28 Smámynd: Halldór Jónsson

Keli , ég er ekki viss um að þetta sér rétt hjá þér. Ég er bara ekki með bókina. En Eisenhower er fyrsti yfirmaður SHAFE og stjórnar Afríkustríðinu fyrst gegn Rommel, svo innrásinni í Sikiley og svo kemur Normandy í júní 1944. hann var bara major 1939 en séníð Marshall kom auga á hann og valdi hann

Halldór Jónsson, 30.7.2014 kl. 00:04

29 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessi bók hans, Crusade in Europe er mjög merkileg. Hann er svo hógvær um sinn þátt, talar svo vel um alla samstarfsmenn, er svo jákvæður, samviskusamur, einbeittur en mannlegur. Hann hefur verið alger yfirburðamaður hvernig sem á hann var litið.

Halldór Jónsson, 30.7.2014 kl. 00:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband