Leita í fréttum mbl.is

Eitt vask-þrep

og hækkun persónuafsláttar væri án efa sú aðgerð sem myndi þessu þjóðfélagi  best gagnast. Þetta hefði það í för með sér að allir ferðamenn hingað færu að greiða með okkur byrðarnar í stað þess að við séum að gefa þeim okkar skattfé.

Gæti ríkisstjórnin ekki látið reikna út einhverja fléttu af þessu og kynna fyrir þjóðinni? Hugsið ykkur ef við gætum fengið undanþágulaust vsk-kerfi og að þeir tekjulægstu hættu að greiða skatt? Yrði þetta kerfi ekki manneskjulegra, auðveldara í framkvæmd og myndi líklega skila auknum tekjum sem Íslendingar væru ekki að greiða sjálfir nema að hluta til? Flytja byrðarnar af okkar minnstu bræðrum yfir á útlendinga?

Er ekki eitt vask-þrep og hækkun persónuafsláttar leiðin okkar upp á við? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Þetta væri væntanlega langbesta kerfið. Einfalt og auðskilið.

Til dæmis 20% VSK á allar vörur og þjónustu. Ekkert undanskilið. Enginn tekjuskattur á tekjur undir 250.000. 

Ríkið fengi tekjur af erlendum ferðamönnum og ferðamannapassar óþarfir.

Ágúst H Bjarnason, 13.9.2014 kl. 09:52

2 Smámynd: Eiríkur Björnsson

Auðvitað á að vera ein VSK%. Og sama skattprósenta af öllu öðru,einnig fjármagnstekjum,en um leið og einhver skynsemi kæmist á í þessum málum hefðu stjórnmálamenn minna til að véla um, þannig að þetta verður aldrei.

Eiríkur Björnsson, 13.9.2014 kl. 10:44

3 Smámynd: Halldór Jónsson

akk fyrir þetta frændi. En líklega myndu þeir ekki þora að byrja með þína tölu þó óneitanlega væri æskilegri en 24%.

Já Eiríkur, þú ert líklega ekki í þeim hópi skoðanakannanna sem bera mikið traust til Alþingis

Halldór Jónsson, 13.9.2014 kl. 12:26

4 Smámynd: Eiríkur Björnsson

Nei, það er sannarlega rétt.

Eiríkur Björnsson, 13.9.2014 kl. 17:17

5 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Í allri þessari umræðu virðist fólk ekki átta sig á að margar innfluttar vörutegundir- á okurverði her- bera ekki neina tolla- eða vörugjöld.

 Kaupmenn græða á að almenningur trúir röngum upplysingum.

Erla Magna Alexandersdóttir, 13.9.2014 kl. 18:39

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Það eiga allir að greiða tekjuskatta hvað svo sem prósentutalan er, eða það a enginn að greiða skatta.

Skattleysismörk fyrir þá sem hafa minni tekjur eiga að vera þær sömu og hjá þeim sem eru betur launaðir.

Svo ma deila um það hvað prósentutalan a að vera, en það eiga allir að vera með sömu prósentutölu.

Her i USA er tæplegak 50% launþega sem greiða ekki skatta! sem sagt helmingur launþega bera allan kostnað ríkisins, er eitthvað vit i þessu.

Þeir sem greiða ekki skatta fjölgar árlega, hvernig verður þetta þegar 90% af launþegum greiða ekki skatta?

En auðvitað a enginn að greiða tekjuskatta, söluskattar er það eina sem a rétt a sér. Það a ekki að hegna fólki fyrir að vera duglegt.

Kveðja fra Houston

Jóhann Kristinsson, 13.9.2014 kl. 19:12

7 Smámynd: Elle_

Jóhann, þegar Ágúst talaði um engan tekjuskatt undir vissum tekjum, stóðst það alveg við það sem þú segir að allir ættu að vera með sömu skattleysismörk.  Það væri verið að miða skattleysismörkin við vissar tekjur.

Elle_, 13.9.2014 kl. 23:10

8 Smámynd: Magnús Jónsson

Halldór: Hvers vegna að vera með persónuafslátt, hvaða rugl er það að einhver sé stykk frí frá rekstri þjóðfélagsins?, eiga þeir ekki börn eða nota þeir ekki sjúkrahús og skóla, eða hvað, það þarf virkilega að taka til hendinni í þessu þjóðfélagi alsgnægtanna, það að einhverjir telji að þeir eigi að vera stikkfrí vegna þess að þeir láta bjóða sér það lág laun að atvinnuleysisbætur væru betri, er ekki borðleggjandi, ef persónuafsláttur væri afnuminn mæti lækka skattprósentu verulega, og allir eiga að taka þátt eða er það ekki??.

Magnús Jónsson, 13.9.2014 kl. 23:42

9 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri Halldór.

ENGAN tekjuskatt ! Eitt virðisaukaþrep. Launþegar greiði engan tekjuskatt - skatturinn skilar sér í gegn um vörukaup. Það er búið að reikna þetta oft út og dæmin um heiminn sanna þetta.

Er ekki sanngjarnt að enginn greiði tekjuskatt ? Allir greiði samt virðisauka af vörum sem þeir kaupa ?

Menn ráða þá sjálfir í hvað launin þeirra fara, en eru aldrei stikkfrí frá samfélagsskyldum sínum þrátt fyrir það. Magnús - hugsa !

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.9.2014 kl. 03:33

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk frir þetta öll. Ég var nú bara að velta hlutunum fyrir mér útfrá því kerfi sem hér er við lýði, ekki metafýsík um hvernig eigi að skattleggja. Við erum hér með þennan persónafslátt sem stýrir skattlagningunni, ef við breytum honum og aukum vægi virðisaukaskattsins í tekjuöflun ríkisins,þá borga þeir sem eyða.Og þá líka þeir sem græða á striti sínu eða stuldi. ég gæti alveg hugsað mér tekjuskattslaust samfélag en það er óraunhæft að ræða það við okkar stjórnmálamenn.

Það er hér fullt af glæpamönnum og svoleiðis dóti sem ekkert leggur til samfélagsins nema þegar það kaupir eitthvað fyrir ránsfeng sinn,Þetta lið keyrir um á stolnum bílnúmerum og ótryggðum bílum. Við ráðum ekkert vi það.Það er líka meira sem betur fer af góðu fólki sem vinnur fyrir sér og heldur samfélaginu gangandi. Mér finnst ekki vit í því að leggja vsk. ofan á vexti sem það fær af sparifé sínu eða það sem það greiir af lánum sínum. Fjármagnstekjuskattur var temmilegur með 10 % að mínu viti. 20% er of hátt greinilega.

Halldór Jónsson, 14.9.2014 kl. 06:29

11 Smámynd: Elle_

Prédikari, það var ekkert vitlaust við það sem Magnús skrifaði.

Elle_, 14.9.2014 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418225

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband