Leita í fréttum mbl.is

Náttúrupassanum klúðrað

af ráðherrunni Ragnheiði Elínu. Í stað þess að hafa þetta einfalt ætlar hún að þenja út ríkið, ráða 10 nýja náttúruverði(með verðtryggðum lífeyri) og heimta að fólk sé með skírteini á sér til að sýna.

Einkennilegt er það hve mikið lag og lánleysi Sjálfstæðismenn hafa á því að klúðra einföldum hlutum. Má minnast á Leiftursóknina frægu í því sambandi.  Það er eins og okkur í þessum flokki sé fyrirmunað að hafa verksvit.

Það er búið að skýra það út hér a síðunni hvernig þetta getur virkað án vandræða með valkvæðni Íslendinga, sem rafræn skrá, án skírteina og náttúruvarða en tryggja samt að þeir borgi sem skipta máli. Láta kerfið skila meiri tekjum með minni tilkostnaði.

Allir Íslendingar vilja þetta ekki í þeirri mynd sem ráðherran velur. Líklega verður þetta stoppað í þinginu og landið fær ekki neitt í sinn hlut þetta árið.

Nei, það verður að klúðra Náttúrpassanum endanlega með skorti á verksviti og almnennri skynsemi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristmann Magnússon

100% rétt hjá þér Halldór

Kristmann Magnússon, 15.12.2014 kl. 13:28

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Við klikkum ekki Kanísarnir!

Halldór Jónsson, 15.12.2014 kl. 14:21

3 Smámynd: Halldór Jónsson

CandÍsarnir!

Halldór Jónsson, 15.12.2014 kl. 14:21

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Sagt er að hvergi í heiminum þekkist náttúrupassi eins og er. 

En í tugum þjóðgarða og verndarsvæða, sem ég hef komið í, var hvergi það fyrirkomulag sem nú er krafist hér, að aðeins útlendir ferðamenn borgi fyrir aðgang og á þeim forsendum að átroðningurinn sé þeim einum að kenna. 

Og þá er ég líka að tala um einstök ríki Bandaríkjanna. Í fjölmörgum þjóðgörðum Utah, Arizona og Wyoming eru "heimamenn" hvergi undanþegnir gjaldskyldu. 

Ómar Ragnarsson, 15.12.2014 kl. 14:25

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Ég ætla heimamönnum líka að borga en skírskota til heiðarleika sinna og skrá sig á netinu án þess að litið sé frekar eftir því með kostnaði. Ferðaskrifstofurnar og flytjendur innheimta af öllum útlendingum

Halldór Jónsson, 15.12.2014 kl. 18:44

6 identicon

Ég hef komið í nokkra þjóðgarða í Bandaríkjunum, og t.d. í Yellowstone er keyrt að hliði, þar borgar þú um 20 dollara fyrir bílinn burtséð frá því hver margir eru í honum. Passinn gildir í viku.

 Þú færð bækling með korti og smá upplýsingum um staðinn. Ég ætla ekki að fullyrða neitt, en ef mig minnir rétt þá held ég að þeir sem eru í hliðinu séu sjálfboðaliðar. 

Hérna ætla þeir að rukka 1500kr. á mann 18 ára og eldri fyrir passann. Passinn gildir í 3 ár og þú þarft ekki að kaupa hann. Mér skilst að nota eigi peninginn til að byggja upp göngustíga, koma salernismálum á hreint og þess háttar, og er það vel. 

Ég veit ekki hvaða leið er best en mér líst bara nokkuð vel á þessa leið, ekki veitir af að byggja upp þessi svæði og vernda fyrir ágangi ferðamanna. Þess ber að athuga að megnið af peningunum mun koma frá erlendum ferðamönnum, 

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.12.2014 kl. 20:56

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er eins ykkur sé fyrirmunað að skilja að Íslendingar verða að borga rétt eins og útlendingar,vegna EES reglna. Er það svo mikið þan,að ráða 10 náttúruverði í alla fjórðungana. Það er bara af því góða að hafa fólk í vinnu hjá ríkinu á ferðamannastöðum.



Helga Kristjánsdóttir, 15.12.2014 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 3418250

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband