Leita í fréttum mbl.is

Kæru ISIS félagar

 

félagar.

Bráðum kemrur vorið á Íslandi og þá verður veðrið líkara því sem þið eigið að venjast. Þá verða dagarnir langir og ferðamannatíminn byrjar.

Þá er hægt að komast til Íslands til nýrra verka í Jihad.Það er auðvelt að komast hingað og til þess margar leiðir. Séuð þið hagsýnir menn þá er líklega ódýrast fyrir ykkur að koma með Flugleiðum i Leifsstöð. Þar þurfa menn engin skilríki að sýna. Svo getið þið líka hrópað Asýl Asýl. Þá fáið þið fljótlega bíl til að keyra á Fit Hostel eða þá til höfuðborgarsvæðisins. Þið fáið peninga í vasann svo þið getið byrjað undirbúning þegar ykkur hentar.

Hjá 66 gráðum norður getið þið fengið kuldagalla í appelsínulit og líka svartar peysur og lambhúshettur. Stóra hnífa fáið þið allstaðar billega, til dæmis í Brynju á Laugavegi eða getið látið líka sérsmíða þá fyrir ykkur því þið fáið ekki að koma með svo hættulega hluti í gegnum Leifsstöð.

Þá er eiginlega allt til reiðu fyrir næsta þátt.Allir skólar eru fullir af börnum til dæmis eða fullt af Alþingismönnum í húsi við Austurvöll. Þið bara mætið með appelsínulitu gallana og veljið ykkur módelin. Það er líka alveg hægt að senda skotvopn til landsins með undirbúningi, þar sem yfirleitt er ekki skoðað í gáma í Sundahöfn eða hvernig sem þið viljið undirbúa þetta. 

Þið hringið svo í Sjónvarpið og Stöð 2  og boðið til blaðamannafundar. Raðið gíslunum upp fyrir framan t.d. þinghúsið eins og þið gerðuð á ströndinni og takið ykkur út. Það kemur kannski löggubíll framhjá en það er ekkert víst að hann sé með neitt vopn nema eina Glock 9 mm sem er nú ekki til stórræðanna eins og þið þekkið. Svo er heldur engin heimild endilega fyrir að opna skápinn.

Heckler og Koch 9 mm byssurnar góðu frá Noregi eru í tollinum á Keflavík og verða tæplega leystar út. Og svo heldur ekki nema náist í Katrínu Jakobsdóttir, Guðmund Steingrímsson eða Birgittu eða tekin verði umræða í þinginu. Ef þau skyldu samþykkja að þetta yrði sótt þá er öll pappírsvinnan eftir svo þetta er hættulaust.

Mjög líklega eru engin 45 ACP skot til hjá löggunni sem passa í gömlu Thompsonana enda eru þeir löngu úreltir og líklega fastir af brúkunarleysi, þannig að varla þarf að óttast að geta femgið í sig alvöru kalíber skot ef til þess kæmi. Enda eru Íslendingar mjög tillitssamir og hugsa ávallt fyrst um hagsmuni þess sem er í minnihluta eða stendur frammi fyrir ofurefli.

Sem þið eru nú staddir þarna með röðina ykkar krjúpandi fyrir framan þinghúsið eða annarsstaðar, sjónvarpið komið og ljósmyndarar þá veltur næsti leikur á ykkur. 

Hugsanlega viljið þið hætta við og fá hundrað milljón dollara og flugvél í skiptum fyrir gallafólkið. Eða þð eruð í Jihad.

Þá getur verið að gripið verð til piparúða og þið teknir fastir. Þá segið þið bara Akbar Allah því það er trúfrelsi á Íslandi og verðið fluttir í nýja fangelsið á Hólmsheiði. Þar væsir ekki um ykkur meðan þið bíðið réttarhalda get ég sagt ykkur.

Það verður séð til þess að þið þurfið ekki að borða svínakjöt því Íslendingar eru meðvitaðir um réttindi minnihlutahópa. Ef yfirmenn ykkar vorkenna ykkur og senda hingað sjö hreinar meyjar á hvern ykkar, þá fáið þið aðgang að hinum sérstöku kynlífsherbergjum sem þarna er nóg af því fyrir öllu sjáum við Íslendingar.

Svo verður áreiðanlega auðvelt fyrir félaga ykkar að ná ykkur út með aðferðum sem enginn kann betur en þið. Kannski getið þið líka sett upp höfuðstöðvar á Ísland þar sem þar er algert félagafrelsi og trúarskoðanir allra virtar.

Það eru margir Alþingismenn tilbúnir til að fylgjast með því að mannréttindi verði ekki brotin á ykkur né þið barðir eða hraktir. Engin dauðarefsing er á Íslandi. Engir drónar fljúga yfir og pikka ykkur niður á boltavellinum þegar fer að skyggja.

Sem sagt, það er eiginlega allt til reiðu kæru ISIS menn kjósið þið að heimsækja okkar fagra galopna land.

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Almenningur hér er meinlaus og frábitinn ofbeldi, jafnvel í sjálfsvörn, og treystir alfarið á að lögreglan mæti eftir korter eða svo.

Þetta er ekki eins og í Texas, eða Montana, eða verra: Sviss.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.2.2015 kl. 15:39

2 Smámynd: Sveinbjörn Hermann Pálsson

Frábær grein. Mér finnst samt þú gleyma rasistaterroristum eins og Breivik, aðskilnaðarsinnum, fjöldamorðingjum, ebólu, náttúruhamförum, flugslysum og spaugstofunni.

Sveinbjörn Hermann Pálsson, 19.2.2015 kl. 17:42

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Verður þetta svona flott upp á Hólmsheiði,sérstakar samfósvítur?

Helga Kristjánsdóttir, 19.2.2015 kl. 21:08

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Já So+viss er jög vígvætt land Ásgrímur. Þar skjálfa skógarnir þegar skothríðin dunar og heræfingar almennins standa yfir,

Já Helga mín, það er sko vel séð fyrir samfó i nýja fangelsinu á Hómsheiði. ég tók þátt í samkeppninniog veit þetta upp áhár.

 Takk sveinbjörn. En ég er minna hræddurvið Breiví en margt annað. Það eina sem stoppar bad guy witha gun is  a good guy with a gun segja Kanar

Halldór Jónsson, 20.2.2015 kl. 03:00

5 Smámynd: Gissur Örn

Kanarnir eru einmitt þjóðin sem við ættum að bera okkur saman við þegar kemur að ofbeldi og viðbrögðum við því. Segðu mér eitt þá Halldór. Af þeim rúmlega 80 fjöldaskotárásum sem hafa gerst í BNA seinustu 2 árin, hvað hafa margar þeirra verið stöðvaðar af "a good guy with a gun"? Og í framhaldi af henni hvað hefur lögreglan í BNA skotið marga saklausa borgara á sama tímabili?

Ég held án efa að það séu fólk eins og þú sem elur á útlendingahatri sem hefur verið vandamálið í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Fólk sem ýtir undir aðskilnað og illa meðferð á fólki sem kemur frá löndum þar sem annar litarháttur eða trú ríkir. Það er löngu vitað að hamingjusamt fólk setur ekki á sig sprengibelti. Þess vegna hef ég litlar áhyggjur af ISIS á Íslandi og meiri áhyggjur af vinum þínum eins og Breivík. 

Gissur Örn, 20.2.2015 kl. 11:42

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Gissur: þegar óður morðingi með byssu mætir vopnuðum borgara af handahófi, verður tala látinna það miklu lægri að fréttamönnum finnst ekki taka því að segja frá því utan viðkomandi borgar.

Þess vegna heyrir maður ekkert af því.  Það gerist, eins og allt annað, en er aldrei stórt mál.

Ásgrímur Hartmannsson, 20.2.2015 kl. 16:55

7 Smámynd: Gissur Örn

Virkilega Ásgrímur? Í landi þar sem byssuiðnaðurinn er margmilljarða virði árlega og menn missa saur og þvag ef einhver vogar sér að tala um hertar reglur við kaup á vélbyssum? Ég skal segja þér það að ef svo mikið sem ein manneskja myndi lifa af fjöldaskotárás vegna þess að venjulegur borgari var vopnaður og stöðvaði árásamann þá yrði tilfinningaklámið og þjóðernisstandpínan svo mikil í fjölmiðlum að þú gætir ekki horft á neina fréttastöð í BNA í marga mánuði án þess að heyra af því.

Ég veit ekki til þess að það hafi nokkurntíman gerst seinustu 10 árin hvað þá í þeim fjöldamorðafaraldri sem hefur herjað á BNA seinustu 2 árin.

Ekki einu sinni reyna þetta rugl við mig nema að vera með tilfelli til að bakka það upp. 

Eina tilfellið sem ég hef heyrt um þar sem annar en lögreglumaður hefur stoppað byssumann seinustu árin er frá skotárás í opinberri byggingu í Kanada þar sem svokallaður Master of Arms(vopnaður heiðursvörður) skaut árásamann nokkrum augnablikum áður en 20 lögreglumenn komu fyrir hornið með því að fleygja sér í gólfið fyrir horn og tæma úr vopninu sínu. Hættulegt og algerlega óþarft hetjustönt. Hann hefði getað drepið vegfarendur og sjálfan sig ef eitthvað hefði klikkað hjá honum. En aftur hann var vopnaður vörður en ekki óþjálfaður borgari.

Og bara svona til að loka á þessa rasista vitleysu um hættuna á ISIS á Íslandi þá gæti ég látið ykkur giska á hversu margir af þessum 80 skotmönnum væri múslimi? En ég skal bara segja ykkur það. Ekki einn. Allt kristnir og næstum allir hvítir. Prósenta hryðjuverka seinustu 15 ár í Evrópu sem voru múslimar? 2%. Hverjir fremja flest hryðjuverk bæði í BNA og Evrópu? Þjóðernissinnar(fólk sem talar eins og Halldór) og aðskilnaðarsinnar. Flestir innfæddir og eins á litin og íbúar þess lands sem þeir búa í.

Ég veit ég ætti ekki einu sinni að gefa ykkur þá fróun að svara ykkur en því miður þá er viðbjóður eins og þessi grein hans Halldórs töluvert líklegri að verða til þess að einhver sauðheimskur fábjáni taki sig til og reyni að "leysa" múslimavandamálið okkar með þeim afleiðingum að fólk slasast eða deyr. Ætlar Halldór að taka ábyrgð á því? Ætlar þú að gera það? Vegna þess að það verður ekki aftur tekið. 

Gissur Örn, 20.2.2015 kl. 20:23

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Gissur _rn, ég erað hugsa um að útiloka þig frá þesari síðu vegna sóðakjaftsins á þér, þú ert eiginlega ekki ´húsumhæfur

Halldór Jónsson, 20.2.2015 kl. 22:06

9 Smámynd: Gissur Örn

þú ræður því Halldór. Allt sem ég hef sagt er rétt og hægt að rökstyðja. Hvorki þú né Ásgrímur hafið getað hrakið nokkuð sem ég hef sagt vegna þess að ég hef rétt fyrir mér. En fyrst þið getið ekki svarað mér með rökum þá endilega bannaðu mig. Það er það eina sem veikir menn með slæman og óverjanlegan málstað geta gert. Bannað fólk sem lýsir ljósi á ormagrifjuna sem þessar skoðanir ykkar eru. Bannað svo þið getið baðað ykkur upp úr viðbjóðnum án þess að hægt sé að svara.

þetta er allt í fínu ég tók afrit af öllum kommentunum.

Gissur Örn, 21.2.2015 kl. 02:35

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Gissur minn, ég er ekki að vilja banna skoðanir þínar. Þeim berð þú ábyrgð á. ég ætla heldur ekki a' þurrka t það sem þú hefur skrifað, þannig að það verður hér áfram sem dæmi um þig. Ég held að þú getir alveg komi því til skila sem þú ert að segja þó að þú bætir orðavalið þér sjálfm meira til sóma. Ég held að þú getir það alveg og samt komið skoðunum þvínum á framfæri þó ég sé ekki mikiðhrifinn af þeim.

Halldór Jónsson, 21.2.2015 kl. 12:59

11 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Gissur: Links, or it didn't happen.

Hérna:

http://www.buzzfeed.com/ryanhatesthis/10-potential-mass-shootings-that-were-stopped-by-someone-wit#.dqRgo8bOw

http://www.weeklystandard.com/blogs/it-true-armed-civilians-have-never-stopped-mass-shooting_690808.html

http://www.gunnuts.net/2014/01/28/private-citizens-stop-16-of-mass-shootings/

Og ekki vera með fordóma í garð bandaríkjamanna.  Það jaðrar við að vera rasismi.

Ásgrímur Hartmannsson, 21.2.2015 kl. 20:29

12 Smámynd: Gissur Örn

Æji ég vissi ekki að þið útlendingahatararnir væruð svona viðkvæm blóm að maður mætti ekki nota myndlíkingar og smá litríkt mál. laughing

Ég skal passa málnokunina mína næst þegar ég kaffæri málflutninginum ykkar með rökum.

Góðar Stundir

Gissur Örn, 21.2.2015 kl. 23:39

13 Smámynd: Gissur Örn

Ásgrímur ég sá ekki þín ummæli. Gemmér 5 mínútur til að kaffæra þeim.

laughing

Gissur Örn, 21.2.2015 kl. 23:43

14 Smámynd: Gissur Örn

Sæll aftur Ásgrímur. Það er nú aldeilis að ég þarf að éta ofan í mig. Ha? 9 skotárásir(plús/mínus) hafa svo sannanlega verið stöðvaðar af vopnuðum borgurum. Flestir reyndar fyrrverandi löggæslumenn eða hermenn en jú borgarar.

Á sama tíma voru um það bil 160 fjöldaskotárásir framdar. http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_school_shootings_in_the_United_States

Það hafa 435,159 manns dáið að völdum skotvopna á sama tíma. Ég læt hérna CDC gangagrunn sem þú getur sjálfur séð þetta í: http://webappa.cdc.gov/sasweb/ncipc/mortrate10_us.html

Svo er smá graf hérna fyrir þá sem vilja vita hvernig svona mörg byssudráp á ári líta út http://guns.periscopic.com/?year=2013

Ég skoðaði nokkur af þessum tilfellum sem þú nefndir frekar og þó þau hafi klárlega stöðvað eitt eða fleirri morð í hvert skipti þá ýttu þau það mikið undir byssusölu eins og flestar skotárásir gera að bara slysaskot sem hafa orðið síðan árið 2000 eru yfir 9000.

Miðað við hlutfall múslima og kristnra í BNA þá er líklega bróðurparturinn af þessu ekki múslimar, hvað þá í ISIS.

Ég er ekki með fordóma gagnvart BNA. Ég hef kynnt mér þau ágætlega og þó fólkið þar sé flest örugglega gott eins og fólkið hér á Íslandi þá eru bandaríkjamenn kolruglaðir þegar kemur að skotvopnum og trúmálum. Eins og sumir íslendingar sem styðja ónefnda stjórnmálaflokka. BNA er orðið að Róm rétt fyrir fallið. Trúarofstækið og spillingin er orðin svo gegnsýrð út um allt að það er orðið að heimsógn.

Og bara að útskýra rasisma fyrir þér. Rasismi er þegar þú kallar fólk niggara eða talar um fólk af ákveðnum litarhátt sem óæðri. Þú ert að meina Xenófóbía eða útlendingahatur. Það er þegar þú skrifar eins og Halldór gerir hér fyrir ofan og berð saman hóp af geðsjúklingum og fólk sem hefur ekkert gert annað en að vera frá öðru landi og segir að þetta sé það sama. Ég gerði hvorugt.  

Heyrðu aðeins meira en 5 mínútur en þetta var gaman.

Aftur Góðar Stundir laughing 

Gissur Örn, 22.2.2015 kl. 00:42

15 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"9 skotárásir(plús/mínus) hafa svo sannanlega verið stöðvaðar af vopnuðum borgurum. Flestir reyndar fyrrverandi löggæslumenn eða hermenn en jú borgarar.

Á sama tíma voru um það bil 160 fjöldaskotárásir framdar. "

Það sýnir augljóslega að kanar ganga almennt ekki um vopnaðir, eins og sífellt er verið að segja okkur.

"Það hafa 435,159 manns dáið að völdum skotvopna á sama tíma"

Veit ekki hvað það kemur málinu við.

"Svo er smá graf hérna fyrir þá sem vilja vita hvernig svona mörg byssudráp á ári líta út"

... your point being?

"yfir 9000."

Þú hefur verið of lengi á 4chan.

"Miðað við hlutfall múslima og kristnra í BNA þá er líklega bróðurparturinn af þessu ekki múslimar, hvað þá í ISIS."

Ég sé ekki að það breyti neinu.  Eru múslimar eitthavð skotheldir?

"Ég er ekki með fordóma gagnvart BNA. Ég hef kynnt mér þau ágætlega og þó fólkið þar sé flest örugglega gott eins og fólkið hér á Íslandi þá eru bandaríkjamenn kolruglaðir þegar kemur að skotvopnum og trúmálum."

" Rasismi er þegar þú kallar fólk niggara eða talar um fólk af ákveðnum litarhátt sem óæðri. Þú ert að meina Xenófóbía eða útlendingahatur."

Og ég sagði: "Það jaðrar við að vera rasismi."

3 min 47 sek

Ásgrímur Hartmannsson, 22.2.2015 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 3418280

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband