Leita í fréttum mbl.is

Hvað vilja Píratar?

eiginlega?

Svo segir í Morgunlaðinu:

"Alþingi samþykkti undir lok seinasta þingfundarins fyrir þingslit í gær lög um 39% stöðugleikaskatt og nauðasamninga fjármálafyrirtækja, svonefnd haftafrumvörp. Var þverpólitísk samstaða um afgreiðslu þeirra.

Frumvarpið um stöðugleikaskatt var samþykkt með 55 atkvæðum en einn þingmaður, Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, greiddi ekki atkvæði. Frumvarpið um fjármálafyrirtæki og nauðasamninga var sam- þykkt með 53 atkvæðum.

Einn þingmaður, Ögmundur Jónasson í Vg, greiddi atkvæði á móti og tveir þingmenn sátu hjá, Andrés Ingi Jónsson, Vg, og Jón Þór Ólafsson, Pírati.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði við lokaumræðu um málið að þingið væri að samþykkja leið til þess að leysa stærsta efnahagsvandamál sem þjóðin hefði staðið frammi fyrir undanfarin ár.

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vg, sagði að réttlæting skattsins væri vandasöm og það væri vel gert í greinargerð frumvarpsins. Stöðugleikaskatturinn væri fyllilega réttlætanlegur og stæðist ákvæði stjórnarskrárinnar.

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng og sagði að mikilvægasti þáttur framhaldsins væri að tryggja að farið yrði þannig með þá fjármuni sem renna til ríkissjóðs að þeir valdi ekki efnahagslegum óstöðugleika. Þá mætti heldur ekki valda pólitískum óstöðugleika með loforðaflaumi í aðdraganda kosninga. „Það er verkefni okkar allra að standa við þá pólitísku samstöðu sem fram hefur komið í nefndinni að við ætlum öll að verjast þeirri freistingu,“ sagði hann.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, þakkaði fyrir samstöðu þingsins. Um ráðstöfun fjármunanna sem um ræðir sagði Bjarni skýrt að þeim bæri að ráð- stafa til að lækka skuldir ríkissjóðs. „Hér kemur fram heildstæð áætlun um það hvernig á að leysa vandann. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenska þjóð að finna fyrir þeirri samstöðu sem er hér á þinginu um aðferðafræðina við að ná því markmiði,“ sagði Bjarni. Skatturinn verður einskiptisskattur sem lagður verður á 15. apríl 2016 og verða gjalddagar fjórir á árinu: 1. maí, 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst 2016. 

Hverju mun það þing koma frá sér sem verður undir forystu Pírata með Jón Þór Ólafsson sem forsætisráðherra?

Skyldi hann kaupa sér slifsi daginn sem hann þarf að útskýra hvað stærsti flokkur þjóðarinnar Píratar vill í raun og veru?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 67
  • Frá upphafi: 3418329

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 63
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband