Leita í fréttum mbl.is

Klods-Mayor

gæti manni dottið í hug þegar maður les yfirlýsingar Dags B. Eggertssonar um tillöguna illræmdu. En hann er auðvitað þekktur alþjóðlega sem "Mayor of Reykjavik". Útskýringarnar  eru með þeim hætti að menn eru orðlausir.

Þegar rann upp fyrir lækninum, að líklega hefði ekki verið alllt í lagi með að samþykkja viðskiptabann á Ísrael í þeirri mynd sem gert var, þá byrjar hann að vanda á að búa til útskýrngar afturábak og út frá því að samþykktin meini í raun allt annað en stendur í henni. Þetta hafi aðeins átt að tengjast Gazasvæðinu.

Þetta yfirklór er svo klaufalegt að með eindæmum er og toppar eiginlega samþykktina sjálfa.

Skyldi viðskiptabannið ná til tölvubúnaðar Borgarstjórnar? Það er sögð stórhætta á því að örgjörvarnir sé framleiddir af útibúi Intel í Ísrael svo eitthvað sé nefnt.Mikið af hátæknibúnaði er framleiddur þar.

Væri ég Reykvíkingur, þegar svona heimskupar er framkvæmt í nafni Reykavíkinga allra, hefði mér ekki fundist við hæfi að safnað hefði verið udirskriftum á móti þessu og lýst yfir kærleika þessara Borgarbúa til Ísraelsku þjóðarinnar um leið og beðið væri fyrir friði í Austurlöndum nær?

 

Það var sorglegt að horfa upp á þessa atburðarás. Jafnvel þó megi kenna klaufagangi að eihverju leyti um þá liggja afleiðingarnar fyrir sem langan tíma mun taka að lagfæra. En þegar Dagur B. Eggertsson reynir svo að ljúga sig frá gerðinni með meiri klaufagangi og óskiljanlegri þvælu, á toppar það hið fyrsta í augum áhorfandans.

Gæti Dönum ekki dottið í hug að kalla Dag Bé. KlodsMayor?

 

 

"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Yngvi Högnason

Það er betra að horfa á björtu hliðarnar Halldór. Núverandi skaði er æru og peningalegur. Hugsum okkur að þessi "KlodsMayor" hefði starfað sem læknir með mannslíf margra í sínum "flumbruhöndum".

Yngvi Högnason, 20.9.2015 kl. 12:17

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já þú meinar? En engum er þó alls varnað þó svo að við vildum hvorugir eiga nótt undir hnífi hans.

Halldór Jónsson, 20.9.2015 kl. 12:57

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Dagur hefir lítið meira vit en fyrrverandi sem hann studdi við bakið á. Bara að horfa á Dag sér maður að á mjög erfitt með að hugsa rökrétt. Þegar hann svarar kluðri sínu með því að ''hann'' ætli að breyta eða laga til þessa tilkynningu um viðskiptabann. Ég vil að þessi Borgarstjórn verði gerð brottræk fyrir að brjóta stjórnarskrá varðandi alþjóðaviðskipti.Þetta er major klúður á alheims vísu og magnast frekar en að réna.

Valdimar Samúelsson, 20.9.2015 kl. 18:30

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Takk fyrir Vakldimar.Mér finnst oft vanta samhengi í málflutnnginn og mikið af slagorðablaðri og vælu eins og viðtalið við hann fyrsta um álykrunina. Mér fannst þetta samhengislaust bull og jafnvel hlálega vitlaust

Halldór Jónsson, 20.9.2015 kl. 20:03

5 Smámynd: Bjarni Jónsson

Mannréttindablaðrið, sem réttlæta átti "utanríkisstefnu borgarinnar", er hlálegt í ljósi þess, að Ísrael ber af nágrannaríkjunum sem gull af eiri stjórnarfarslega, þar sem grundvallarmannréttindi eru fótum troðin á hverjum degi á meðal Araba og Persa. Dagur Bergþóruson er ekki eins og námuhestur.  Hann virðist bara ekkert vita í sinn haus og vera bæði blindur og heyrnarlaus, enda með alleiðinlegustu mönnum á að hlýða.

Bjarni Jónsson, 20.9.2015 kl. 22:11

6 Smámynd: Halldór Jónsson

Ef Dagur sér allt fyrir eins og hann segir þá er spurning um augnspeldin hjá dráttarklárunm hans?

Halldór Jónsson, 21.9.2015 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband