Leita í fréttum mbl.is

Kjör varaformanns

á Landsfundi í Sjálfstæðisflokknum nálgast.Nær útilokað er annað en að kona verði kjörin í embættið vegna þessa eilífa jafnréttistals. Sem hreinlega leiðir til þess að konur eru allsstaðar kjörnar fram yfir kalla. Þannig virkar kynjakvótinn öfugt að mér finnst blasa við. Kallarnir þora ekki í konur þar sem þeir eiga á hættu að verða kallaðir karlrembur og annað í þeim dúr.

Fulltrúaráðið á Nesinu samþykkti líka í gær einróma áskorun á Ólöfu Nordal að gefa á sér kost. Hver þorir að stinga upp á einhverju öðru? Hver þorir að vilja eitthvað annað en konu? Ekki ég-allavega upphátt. 

En að öllu gríni slepptu þá er varaformaður staðgengill formanns. Hann þarf að vera reiðubúinn að taka við fyrirvaralaust. Þá er óþægilegt að Ólöf er ekki á þingi núna en það getur fyrst breyst í næstu kosningum. Núverandi varaformaður er þingmaður. En líklega telja margir að hún þurfi lengri tíma til að jafna sig eftir lekamálið mikla. Ótal dæmi eru til um fólk sem kemur tvíeflt til baka frá slíkum hléum. Hanna Birna er ung kona í blóma lífsins og á alla möguleika. 

Ég kem ekki auga á sterkara framboð til varaformanns en Ólöfu.En ég  er auðvitað ekki sá sterkasti á spámannssvellinu. Hún hefur líka reynslu af embættinu. Ég tel líka ólíklegt að nokkur reyni framboð á móti sitjandi formanni, Bjarna Benediktssyni.Bjarni nýtur mikils trausts langt út fyrir raðir flokksins og mál manna er að hann hafi stöðugt vaxið í embætti fjármálaráðherra.

Það er bara eitt með flokkinn undir formennsku Bjarna, að flokkurinn gengur ekki neitt og safnar ekki fylgi.Steindauður í Borginni þar sem Guðfinna og Sveinbjörg brilléra. Manni skilst að formenn eigi almennt að fiska ella megi fórna þeim til árs og friðar ef svo er ekki.  

Guðlaugur Þór er í embætti ritara. Mér finnst Guðlaugur Þór bera af sem einn starfsamasti maður á Alþingi og ég viðurkenni fúslega að ég man ekki eftir að vera honum ósammála nema kannski í brennivínsmálinu í búðirnar. Mér finnst óþarfi að pirra kjósendur með svo miklu deilumáli.

Hann Gulli hefur hinsvegar verið rægður ótæpilega fyrir að hafa verið of duglegur í fjáröflun fyrir bæði sig og flokkinn og fella Björn Bjarnason í prófkjöri. Ég vildi óska að þjóðin mætti njóta krafta Guðlaugs Þórs án þessara sífelldu Gróusagna, því hann er bæði einlægur og heill í sínum málflutningi.

Sjálfstæðisflokkurinn  er sagður á hausnum um þessar mundir og víst búinn að veðsetja Valhöll upp í rjáfur eftir að hann ákvað að skila framlögum frá útrásarvíkingum. Samfylkingin hinsvegar fékk hinsvegar jafnhá framlög frá nákvæmlega sömu aðilum en skilaði ekki krónu. En auðvitað gildir allt annað siðferði hjá kommum og krötum en hjá Sjálfstæðisflokknum þegar það snýr að peningum handa þeim sjálfum. Og fólki virðist slétt sama og gefur ekkert fyrir þetta að séð verður.

Upp sprettur svo alls kyns nýtt fólk á Landsfundi með spánýja hæfileika til að sitja í miðstjórn flokksins. Eilífar plottanir, miðadreifingar og uppáheilsingar. Svo kemur bara aldrei neitt frá þessari miðstjórn að mörgum finnst. Þetta virðist allt velta á formanninum og forystuliði til syvende og sidst. Auðvitað ræður formaður öllu þó hann hlusti kannski á sjónarmið miðstjórnar.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksin er megaviðburður og þar er gaman að koma og hitta allt þetta góða fólk. Því miður er þetta rándýrt og margir sem erindi ættu geta ekki komið. Sem er slæmt og spurning er hvort félögin sem kjósa ættu að niðurgreiða. En þau eru yfirleitt líka á hausnum því að það virðist vera svo að allir halda að félagsstarf kosti ekki vandfengna peninga. Þess vegna er búið að ríkisvæða stjórnmálin að kröfu kommanna, sem aldrei gátu rekið flokkana sína til jafns  við Sjálfstæðisflokkinn.

Því miður er Sjálfstæðisflokkurinn með í þessu ríkissukki sem aldrei hefði betur verið.Félagsmenn og flokksmenn eiga að leggja fé sitt í lagsmennsku segir orðanna hljóðan en ekki gapa upp í ríkisraufina og bíða. En svona er þetta víst og félagsmenn verða latir og hætta að brenna í andanum.

En það eru auðvitað allir í kjöri eins og það er kallað, bæði til varaformanns og formanns. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helvíti fín ræða.

Kveðja

Direktör Moestrup

Moestrup (IP-tala skráð) 1.10.2015 kl. 08:44

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Tusind Tak Hr.direktör Moeastrup. Vil vi ses om kort angående denne sag og flere?

Halldór Jónsson, 1.10.2015 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418219

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband