Leita í fréttum mbl.is

Til hvers er Parísarráðstefnan?

eiginlega? Bara ástæða til þess að fara og eyða peningum í brauð og leiki? Til að skuldbinda ókomnar kynslóðir til að eyða peningum í framtíðinni út í loftið í víðustum skilningi?

Myndin frá Dr. Roy Spencer, fyrrum vísindamann hjá NASA gefur mynd af gerfihnattamælingum á hitastigi í neðri lögum lofthjúpsins:                     

 

 temperatur1

 

 

 v

 

 

 

 

Því miður sést þetta kannski lla. En mín kúnst nær ekki lengra í augnablikinu. En það má fara á fyrstu krækju og þá blasir þetta línurit við.Það nær frá 1979 til 2015 í október. Þá er síðasti blái toppur. Það er greinilegt að ástandið núna er lítið öðruvísi en það hefur verið.Það var heitara 1998 og 2010 en er núna á ráðstefnunni.

Rauða línan sýnir 13 mánaða meðatal á undan. Hún sýnir engin sérstök frábrigði. 

Á 99 stöðum um heiminn stíga upp loftbelgir með radíohitamæla. Þær mælingar sýna hlýnun sem nemur 0.166°C á hverjum áratug. En þessum stöðum er ekki jafndreift um heiminn. Gerfitungl mæla á heimsvísu kólnun -0.03 °C yfir alla jörð á hvern áratug. Ekki mikið en kólnun samt. 

Á síðustu krækju er staðfest nákvæmni mælinganna.97% fylgni er milli gervihnattamælinga og hinna 99 mælipunkta þar sem belgirnir stíga upp.

http://www.drroyspencer.com/latest-global-temperatures/

http://www.remss.com/measurements/upper-air-temperature

http://www.cgd.ucar.edu/cas/catalog/satellite/msu/comments.html

Ekki hef ég  áhyggjur af hlýnun jarðar eða minni líðan. Ég tel að heimurinn hér á Íslandi hefði orðið betri aðeins hlýrri.Ég held að allur gróður hefði gott af meira CO2 en er í lofthjúpnum. Það er svo sáralítð af CO2 eins og er. Frá 2008 eru aðeins 39 af hverjum 100.000 mólekúlum af andrúmslofti CO2.Það myndi krefjast alls útblásturs mannkyns í 5 ár ef ætti að fjölga þeimí 40.

Líkur eru leiddar að því að breytingar í lofthjúpi jarðar geti stafað frá-LOFTHJÚPNUM SJÁLFUM. Þær mun eiga sér stað alveg án okkar tilverknaðar.

Við skulum vona Dagur Bé. og hirðin í kring um hann, sem er svo aftur hluti stærri hirðar í kring um vísindamanninn Al Gore, hafi það gott í ferðinni. Ég sé ekki annan tilgang tilgang með Parísarráðstefnunni. 

 

 

 

 

Það er nokkuð ljóst að það hefur ekki hitnað núna meira 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Bergþórusonurinn, eins og Dagur vill láta kalla sig, skilst mér, er aldrei ánægðari, en þegar hann getur náð að eyða skattpeningum almennings í algeran óþarfa, fuglahús ofl.

Gleymum ekki flugvellinum, sem ætti að stórauka á allan hátt til hagsbóta fyrir alla landsmenn ásamt bættu landshlutaaðgengi túrista.

Vandinn er að Dagur mun aldrei hafa persónulega efni á að borga þjóðinni til baka skaðann sem hann veldur daglega!

Það mun eflaust taka allt of langan tíma fyrir næsta komandi skynsama borgarstjóra, sem vonandi mun hafa hagsmuni allra Íslendinga að leiðarljósi, að bæta fyrir allan þann stórskaða sem Gnarrinn ásamt Bergþórusyni og Blöndal hafa nú þegar valdið almenningi, þjóðinni  og viðskiptalífi!

Kolbeinn Pálsson, 26.11.2015 kl. 21:38

2 Smámynd: Þ. J.

Sæll Halldór, smá athugasemd.  Þú segir að það þurfi allan útblástur mannkyns í fimm ár til að koma co2 hlutfalli upp í 40/100.000

Þar sem einungis 4% af co2 útöndun í heiminum er af mannavöldum þá grunar mig að þú sért að ofmeta mátt mannskepnunnar þarna.

Þ. J., 26.11.2015 kl. 23:39

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 Svarið við fyrirsagnar spurningunni er í raun, að losna úr leiðindunum og hafa það gaman saman, eins og tildæmis þegar fólk hópast saman um verslunarmannahelgar. 

Í náttúrunni verða svona hjarðsamkomur til gagns um  fengitímann , en í þessu steingelda tilfelli heillar það mest að þurfa ekkert að borga, ekki einu sinni að kaupa sér svefnpoka og bús í nesti.

Leiðindin hefjast svo þegar þetta glöggskyggna fólk kemur heim að kenna okkur fræðin um glöggið sem það fékk á undan okkur öllum hinum. 

Hrólfur Þ Hraundal, 27.11.2015 kl. 01:21

4 Smámynd: Jón Bjarni

Prófar þú aldrei að fact tjekka það sem þú setur hér inn?

https://www.skepticalscience.com/skeptic_Roy_Spencer.htm

Jón Bjarni, 27.11.2015 kl. 01:29

5 Smámynd: Jón Bjarni

Segðu mér Halldór... afhverju heldur þú að stór hluti vísindamanna sé að vara við þessum hlutum? Er það samsæri?

Jón Bjarni, 27.11.2015 kl. 01:42

6 Smámynd: Halldór Jónsson

 Bjarne, fact er að Roy segir akkúrat þetta

Halldór Jónsson, 27.11.2015 kl. 22:06

7 Smámynd: Halldór Jónsson

ekki samsæri heldur afvegaleiðsla

Halldór Jónsson, 27.11.2015 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband