Leita í fréttum mbl.is

Trúfrelsi

er jafnan hrópað hástöfum af góða fólkinu þegar við "rasistar" "fasistar" og "nasistar" eins og það kallar okkur látum þá skoðun í ljósi að það sé praktískara fyrir Íslendinga að velja sér kristna flóttamenn til að fylla okkar kvóta af tegundinni. Manni skilst að það sé enginn hörgull á kristnum til að velja úr gommunni sem í boði er. 

Svo höfum við látið í ljósi ákveðnar skoðanir á þvi að flóttamennirni séu valdir fremur úr menntaðum hópum til munns og handa. Þeir muni hafa meiri möguleika á að plumma sig í samfélaginu hér með okkur.

Ekkert að þessu samþykkir góða fólkið. Trúarskoðanir eiga að vera einkamál fólksins, heilbrigði þess. Kynhneigð og kunnátta er líka einkamál flóttamansins  og væntanlega sakaskrá hans líka. 

Bara það að kristnir flóttamenn þurfa ekki sér lóð undir mosku hélt maður að það væri til hægðarauka fyrir okkur. Nei, það gengur gegn trúfrelsinu segir góða fólkið.

Valdimar Jóhannesson veltir fyrir sér trúfrelsi Múslíma á sinni heimasíðu. Þar segir hann m.a.:

"Trúfrelsisákvæði stjónarskrárinnar eiga ekki við um íslam vegna þess að íslam stenst ekki skilyrðin sem stjórnarskráin setur fyrir iðkun hennar hérlendis. Hér er vísað í 63. grein stjórnarskráinnar: »Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.«

Þeir, sem þekkja íslam, vita að íslam samræmist ekki góðu siðferði eða allsherjarreglu. Flestir sem ekki þekkja íslam ættu að hafa hugboð um þetta sama. Hvað boðar íslam sem ekki samræmist allsherjarreglu? Hér koma nokkur atriði:

Misrétti milli karlmanna og kvenna. Misrétti milli múslíma og annarra trúarhópa. Dauðarefsingar fyrir að ganga af íslamstrú. Dauðarefsingar fyrir samkynhneigð. Limlestingar fyrir t.d. þjófnað. Dauðarefsingar fyrir að hallmæla íslam eða Múhameð. Bann á tjáningarfrelsi um íslam. Karlmönnum er leyft að eiga fjórar konur. Margt fleira ljótt má tína til.

Fari svo að moskan í Sogamýri rísi fyrir peninga frá arabískum salafistum, sem hafa verið að styrkja ISIS og Al Kaída, ber lögreglunni að stöðva boðun íslams í húsinu. Sama á við um starfsemi beggja félaga múslíma á Íslandi, nema þessi félög lýsi yfir andstöðu við þau ákvæði í trúarritum sínum sem stríða gegn allsherjarreglu (þ.e. öll íslensk lög) og góðu siðferði eins og við skilgreinum það."

Skýrara getur það ekki verið hjá Valdimari. Trúfélag sem boðar handarhögg á þjófum og umskurn meybarna samrímist varla íslenskum lögum og allsherjarreglu.

Ætli boðun Woodoo trúar með drápsfórnum yrði talin styrkhæf af góða fólkinu og fengi lóð? Myndu Hells Angels geta sótt um stofnun safnaðar hérlendis á grundvelli trúarskoðana?

Af hverju má helst ekki beita skynsemi æsingalaust í nokkrum hlut á Íslandi? Sagði ekki Ljósvetningagoðinn að vér skyldum allir einn sið hafa og ein lög.

Er það ekki líka okkar trúfrelsi að mega blóta á laun?

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég styð þig 100% til að verja landið.

Hvaða stjórnmálamanni á ALÞINGI treystir þú best til að framfylgja þinni stefnu eins og þú spyrð sjálfur á þinni síðu?

Jón Þórhallsson, 30.11.2015 kl. 18:32

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón, mér er til efa að þar sé nokkur inni sem vill viðra nokkra sína skoðun sem gæti farið fyrir brjóstið á einhverjum kjósendum hvað sem þeir hugsa méð sér. Er ekki aðalhugsjóni að tryggja eigið endurkjör, eftirlaunsrétt, osfrv.?

Halldór Jónsson, 30.11.2015 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3417882

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband