Leita í fréttum mbl.is

Læknir í Svíþjóð

segir frá. Guðmundur Pálsson bloggari segir svo:

"Ég átti um daginn samtal við starfskonu í athvarfi fyrir flóttabörn hér í Svíþjóð. Slík heimili eru rekin fyrir börn, oftast unglinga sem eru send til Svíþjóðar einsömul frá fátækum ríkjum til að freista gæfunnar. Á sænsku;Hem för ensamkommande flygtningsbarn. Mörg þeirra eru frá Afganistan, Sómalíu og Sýrlandi. Ungir drengir eru í meirihluta, 15 til 18 ára að aldri, um 5-10% eru stúlkur.

Heimilin eru fjögur sem ég veit um í nágrenninu. Í tveimur húsum eru 18 drengir, ég giska á að þeir séu um 50-60 alls.
Því miður, segir konan eru drengirnir mikið til sjálfala þó starfsmenn sjái um húsin myndast oft "fangelsismenning" innan heimilisins.

Allt kostar og ef einn fær eitthvað þarf annar að fá það sama. Drengirnir hópa sig saman á móti starfsfólkinu og þrýsta á og stundum hóta þeir. Einn fær svefntöflu eða verkjatöflu og þá vill annar fá. Einn þarf að skúra, af hverju sleppur hinn? Þeim er greitt fyrir að halda herbergjum sínum hreinum. Úti við gera þeir ekkert. Slá ekki grasið, snyrta runna, sópa, mála eða laga til úti við. Sérstakir starfsmenn borgarinnar koma til að gera þetta. 

Stundum eru slagsmál á milli drengjanna og lögregla tilkvödd. 

Kona þessi sem ég talaði við var hrædd á næturvöktunum og gat ekki hugsað sér að vera ein á vaktinni eins og tilskipað var af yfirmönnum. Þeir hlusta ekki, sagði hún vonsvikin. Mér var sagt af tveimur starfsmönnum að drengirnir væru allir í skype-sambandi við fjölskyldur sínar í heimalandinu, fá þaðan stuðning og ráð um hvað megi fara fram á og krefjast.
Konan sagði þá vanþakkláta og freka. Margir þeirra eru með kvíða og neikvæðar hugsanir um sjálfan sig og samfélagið. Allir eru þeir auðvitað múslímar og kenndin að vera aðskilinn frá samfélaginu og annarrar trúar minnkar ekki, hún vex þegar þeir eldast."

 

Halda menn að tengslin við föðurlandið rofni?

Ég var Íslendingur í Þýzkalandi og veit hvernig menn dragast í dilka sem útlendingar. Núna, er sama hvar maður er, frænka eldfjalls og ísa fylgir þér alltaf. Trúin mun fylgja innflytjendunum og þeirra tengsli við sand og eyðimerkur. Og Islam, sem sér fylgismenn sína sigra ný lönd.

Læknirinn Guðmundur Pálsson er aðeins að lýsa staðreyndum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sæll Halldór! í sambandi við frétt þessa á það við um aðstæður unglinga,að þær er ýmist í ökla eða eyra. Í því sambandi minnist ég frétta,sem Rúv. sýndi fyrir nokkrum árum,af ungum drengjum,sem framfleyttu fjölskyldum sínum með því að gramsa í ruslahaugum og hirða allt sem var nýtilegt (minnir í suðurameriku).Þetta var vinna frá morgni til kvölds. ég man þá tíð hér á landinu okkar,að drengir fóru í sjóróður beint úr fermingu sinni.þótt þetta séu öfgafull dæmi,verður mér á að telja þá sem unnu með og fyrir fjölskyldur sínar,eiga meiri möguleika til þroska. Ég er komin á ystu nöf í spekularsjónum um hánótt,svo ég kveð með bestu kveðjum. 

Helga Kristjánsdóttir, 4.12.2015 kl. 06:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband