Leita í fréttum mbl.is

Timburmenn

eftir Steingríms-og Jóhönnustjórnina eru enn að koma fram.Svo stendur í Mogga í dag:

"Ráðuneytisstjórar hækka um 36-37% í launum nú um mánaðamótin, skv. nýjum úrskurði kjararáðs. Þá hækkar greiðsla fyrir fasta yfirvinnu úr 50 þús. kr. í 500 þús. kr. Laun ráðuneytisstjóra fara því nú í um 1,9 millj, kr. á mánuði en voru áður 1,1 millj. kr. Þá hækka laun skrifstofustjóra í Stjórnarráðinu um 28-35% og verða nú að jafnaði um 1,4 millj. kr. að auknum yfirvinnugreiðslum með- töldum.

Í úrskurði kjaradóms er vitnað til bréfa frá ráðuneytisstjórum sem segja að álag í starfi hafi aukist mikið, skipulag ráðuneyta breyst verulega og ábyrgð ráðuneytisstjóra aukist. Launahækkunin er sögð viðbrögð við þessu – auk þess sem tekið sé tillit til þróunar kjaramála. Kjararáð hefur ekki áður tekið sérstaka ákvörðun um laun ráðuneytisstjóra en kjaranefnd ákvað þeim síðast laun vorið 2005"

Hver var það sem réðist til atlögu við allt ráðuneytabatteríið og sölsaði sem flest undir sig? Allt hagræðing sagði hann þá.

Nú er sannleikurinn að koma í ljós, "skipulag ráðuneyta breyst verulega og ábyrgð ráðuneytisstjóra aukist. Launahækkunin er sögð viðbrögð við þessu.."

Dýr verður Hafliði allur áður en yfir lýkur.Þjóðinni er mátulega í rass rekið að hafa kosið þetta endemis lið yfir sig. Og skelfilegt til þess að hugsa að í haust hefur hún ekkert lært ef hún er tilbúin að kjósa Pírata sem ekki verða lengi að því að fara undir forsjá Steingríms sem vans manns af vinstri kanti. Hugsjónalega getur aldrei steytt á neinu ef valdakaup er í augsýn á þeim bæ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er Bleik brugðið verulega:

Salek samkomulagið fyrir skrílinn, og kjararáð fyrir Elítuna.  Þjóðin lætur ekki bjóða sér þetta, það held ég að sé nokkuð víst. Nú held ég að best sé að flýta alþingiskosningum, eins og hægt er. Ég hugga mig við að það er búið að stofna formlega, Íslensku þjóðfylkinguna, nú veit ég hvað ég kýs.              

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 1.7.2016 kl. 12:00

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þér dettur ekki í hug að mikill sparnaður hafi orðið við það að fækka ráðuneytisstjórunum, skrifstofustjórunum og fleiri yfirmönnum stórlega með fækkun ráðuneyta?

Og hverjir voru það sem ollu því að það þurfti að rétta af meira en 200 milljarða króna halla ríkissjóðs 200

Ómar Ragnarsson, 1.7.2016 kl. 12:39

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Já nafni minn, ekki er ég nú viss um að hann Helgi hafi ráð til að  laga þetta.

Og Ómar, þú ert enn sannfærður um að Sjálfstæðisflokkurinn hafi sett Lehman Brothers á hausinn sem felldi mikinn kostnað á ríkssjóð þegar kerfið hrundi. Steingrímur og Jóhanna gerðu ekkert nema að auka á bvandann og ætluðu að gera enn meira með Icesave sem ekki tókst. Samt var Samfylkingin í hrunstjórninni þó hún kannist ekki við það núna.

Ef þú lítur yfir stöðuna núna þá sérðu að ýmislegt hefur lagast frá 2009 og íslenska krónan hreinlega gerði endurreisnin mögulega. Og kvótakerfisbundinn sjávarútvegurinn byrjaði strax að skila bullandi gjaldeyrisjöfnuði sem gerði það að verkum að ísland rétti hraðar úr kútnum en nokkurt Evrópuríki annað.

Okkar efnahagsfasi er nefnilega ekkert í takti við stöðnunina sem er búið að ríkja áratugum saman í ESB.Þetta benti Davíð okkur á þegar dollarinn snarféll hjá honum eitt árið en náði sér upp aftur á engum tíma. Samt berjið þið  hausnum við steininn og viljið þangað inn og losa okkur við fullveldið.

Þessir 200 milljarða herkostnaður  eru  nú langt að baki. Þá vill þjóðin kjósa einhverja Pírata sem enginn þekkir og allra síst þeir sjálfir?

Halldór Jónsson, 1.7.2016 kl. 16:22

4 identicon

Heilar okkar túlka lýsingu sem berst til augnanna á mismunandi hátt. - Þannig virðist það einnig vera í stjórnmálum, hjá sumum amk. 

Eygló (IP-tala skráð) 1.7.2016 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband