Leita í fréttum mbl.is

Flugvöllur Gústafs

Elí Pálssonar leit svona út skv. teikningu hans frá 13. sept.1937. Þá var enn mánuður í að undirritaður fæddist á Rauða Blettinum að mig minnir.



flugvollurgustafRauði bletturinn á myndinni er Landspítalinn. 

Það er nokkð ljóst að Gústaf byggir tillögu sína á rannsóknum enda er núveramdi flugvöllur í megin atriðum svipaður þessum. Neyðarbrautin sem nú á að slá af hvað sem það kostar sýnist mér liggja eins og hjá Gústaf sem virðist hafa gert ráð fyrir því að hún yrði ekki minnst notuð vagna vindátta.

Þorkell flugstjóri er búinn að gera allt sem í hans valdi stendur til að hafa áhrif á Dag Bé. En það er morgunljóst að hann má sín lítt gegn hagsmunum Valsmanna ehf eða hverjum öðrum borgarstjórnarvinum.

Magnús Ó.Erlingsson lögfræðingur Reykjavíkurborgar er búinn að tilkynna að eigendur Fluggarða skuli rífa flugskýli sín bótalaust. Sigurður Ingi Jónsson forseti Flugmálafélagsins tiltekur að mannvirkin, sem eru 8000 fermetrar af atvinnuhúsnæði,  hljóti að njóta hefðarréttar skv. landslögum. Ekki hefur það áhrif á Dag Bé frekar en annað því hann er víst búinn að gefa Háskólanum þetta verðmæta svæði. Hvaðan kom honum eiginlega sá réttur? Hvað skaðast Reykjavíkurborg mikið á svona sýnigjörningi?Getur ekki Örn arkitekt reiknað það út?

Skipulag Reykjavíkur hafði áður samþykkt að flugvöllur Reykjavíkur skyldi vera á þessum stað. Ríkið tók land í Vatnsmýrinni eignarnámi undir flugvöll Bretanna. 1947 var Reykjavíkurflugvöllur afhentur Ólafi Thors sem var á sjakett og með pípuhatt að mér ásjáandi, f.h.íslenska ríkisins, í heilu lagi 1947. Reykjavíkurborg á ekkert í þessum flugvelli.

Það er skelfilegt að vita til þess að Reykjavíkurborg skuli í dag ráða slíkir sveitamenn sem raun er. Sjá ekki hvílík tækifæri fyrir efnahag Reykvíkinga völlurinn er. Þaðan gætu farið mörg Evrópuflug á dag til viðbótar því sem þegar er, án þess að nokkur yrði var við.Svo hljóðlátar eru þoturnar orðnar.

Þvílíkar Zombíur í Borgarstjórninni sem sjá ekki hvað samgöngur þýða fyrir eina þjóð eins og til dæmis Bretar sem hafa City-flugbrautina á bakka Thames inn í miðjum bæ.Jafnvel Xerxes Persakóngur skildi þýðingu samgangna fyrir þúsundum ára. Í fullri andstöðu við 80 % þjóðarinnar erum við með slíkar fornaldareðlur við völd árið 2016 að þær eru að eyðileggja þetta óborganlega mannvirki. Reykjavíkurflugvöll.

Vonandi gerir Alþingi eitthvað á næstu dögum tkil að bjarga þeim mannslífum sem annars verða í hættu í vetur að því að Þorkell flugstjóri telur.

Flugvallarhönnun Gústafs Elí Pálssonar er í fullu gildi eftir þessi stuttu 79 ár. Sama er ekki hægt að segja um hugsanir Dags Bé og hans nóta. Þeir verða orðnir að martröð Reykjavíkur eftir þann árafjölda.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Takk Halldór gaman að skoða þetta. Óvinir Íslenskrar þjóðar eru nú ákafari en oft áður og vilja hafa af okkur landhelginna, miðinn og flugvöllinn.  Ef svona væri komið í öðru ríki en hér á Íslandi þá væri hafin borgarastyrjöld.  En við erum seinþreytt til vandræða en þetta vandræða fólk það tefur og þvælist fyrir og að endingu þá þreytir það svo mikið að það hefur vinning og Ríkisútvarpið stendur alltaf með landssölumönnum.  Það er á brattann að sækja í pólitíkinni, Austurvallar uppákomum, og í kosningum til alþingis og Borgastjórnar að hafa Ríkisútvarpið alltaf á móti skinseminni.    

Hrólfur Þ Hraundal, 18.8.2016 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 3418230

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband