Leita í fréttum mbl.is

Úllen dúllen doff!

kirkelani koff , eða einhvernveginn var þetta þegar verið var að taka slembiúrtak í leikjunum í den.

Ég var að hlusta á frambjóðendur frá einum sjö listum í SV koma með gáfulegar uppástungur hvernig þeir ætli að lækka vexti og byggja leiguíbúðir með lágri leigu fyrir almenning eða námsmenn, gefa öllum þrjár millur fyrir útborgun,  losna við verðtrygginguna, stofna myntráð, binda krónuna við mynt sem hún hefur verið að skjóta aftur fyrir sig í verðmæti, halda áfram aðildarviðræðum við Evrópubandalagið og ganga svo í það, útvega lán á evrópskum vöxtum og Guð veit hvað ekki.

Hvernig halda menn að hægt sé að koma saman ríkisstjórn útá svona snjallræði einstakra óskyldra manna? Smáflokkagerið er eiginlega gersamlega vonlaust fyrir margt fólk að aðgreina eða hlusta á. Hver lofaði þessu, hver lofaði hinu? Ruglast enginn við hlustunina?

Svo til hvers er verið að þessu? Skemmta okkur áheyrendum? Þyrfti ekki að hækka kröfurnar til þeirra flokka sem vilja bjóða fram. Landsfundir í framboðssal eru varla boðlegir.

Menn tala drjúgt um lán til húsnæðiskaupa á evrópskum vöxtum. En banna lántökur í erlendri mynt með lágum vöxtum? Sé gengið stöðugt þá er slíkt lán gott. Ef gengið fellur er komið 2008 aftur og lánið vont.

Enginn minnist á sparnað. Hvernig á að geyma peninga? Útlendingur getur keypt hér hús og komið með útlend lán með sér. Húsið hækkar i verði sé það í 101. Hann bara gerir það ekki. kannski eru vextir ekki eins lágir í útlöndum og margir segja. Mér var sagt að yfirdráttur í Deutsche kostaði svona 10-20 % vexti eftir ýmsu.

Árið 2007 gátu menn fengið l10 % lán til húsakaupa í erlendri mynt eða íslenskri. Flott hús með RangeRover í skúrnum. Allt að láni og ekkert út. Gott meðan það entist.

Nú er eiginlega eins konar "Gettu Betur" í gangi í pólitíkinni. Hver kemur með mestu snjallræðin? Kjósum hann en ekki hinn. Alveg án þess að spá í hvort eitthvað sé á bak við hugmyndasmiðinn, hvort hann sé líklegur til að efna eitthvað.Því í tiilvikum er hann búinn að útiloka þá sem honum þóknist ekki að starfa með eftir kosningar. 

Það verður skrautlegt að fylgjast með framvindunni eftir kosningarnar.

Úllen dúllen doff!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einhverntíma hafði ég víst orðað það á þá leið að loforðin yrðu að vera skilyrt,þ.e. "Ef samstarfs flokkar okkar samþykkja"gætu verið þrír eða fjórir smáflokkar,oft kvistar af stæðilegu gömlu tré.

Hjálpi mér!! Hvað þessi merkikerti hafa misst sjarmann kallaðan kjörþokka.-Það hefst ekkert með þessari taktík við sáningu pólitískra loforða,jarvegurinn er grýttari en nokkurn sinni.Uppskeran skrælnar um leið og hún kemur upp; hún þolir ekki dagsljósið.. Drögum upp gamla slagorðið frá hryllings árinu 2009; Ekkert ESB.

Helga Kristjánsdóttir, 20.10.2016 kl. 05:09

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Bravó Helga mín, þú bregst ekki frekar en fyrri daginn.

Halldór Jónsson, 20.10.2016 kl. 07:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418224

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband