Leita í fréttum mbl.is

Vantar krabbameinslyf?

Í Fréttó í dag er þessi frétt:

"Heilbrigðismál Ekki verður neinu fjármagni varið til upptöku nýrra lyfja hér á landi í ár þar sem ekki er gert ráð fyrir því í fjárlögum.

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítala segir það bitna á sjúklingunum sjálfum. Guðrún I. Gylfadóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar, segir ekkert svigrúm á þessu ári til að taka ný lyf í notkun. Hún hafi gert heilbrigðisráðherra grein fyrir þessari stöðu. Eins og staðan sé núna verði hins vegar þau lyf sem þegar er búið að samþykkja notuð. Þau nýju bíði enn um sinn.

„Upptaka nýrra lyfja er kostnaðarsöm og öll vestræn ríki vinna nú að því að stemma stigu við kostnaði við upptöku nýrra lyfja. Við höfum tekið upp fjölda lyfja á síðustu árum. Nú er hins vegar ekki svigrúm til upptöku nýrra lyfja,“ segir Guðrún.

„Lyfjagreiðslunefnd vinnur eftir mjög skýrum ramma og það er stjórnvalda að setja fjármagn til upptöku nýrra lyfja.“

María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans, segir spítalann líta þetta sömu augum. „Að okkar mati mun þetta helst koma niður á sjúklingunum sjálfum,“ segir María. „Vissulega er bagalegt ef ný lyf verða ekki tekin upp hér á landi á þessu ári.“

Samkvæmt Frumtökum, samtökum frumlyfjaframleiðenda, hefur Ísland dregist aftur úr varðandi upptöku nýrra krabbameinslyfja frá árinu 2013.

Af 25 nýjum lyfjum við illkynja krabbameinum hefur Ísland tekið átta í notkun. Noregur hefur hins vegar veitt leyfi fyrir 24 lyfjum, Danir og Svíar 22 og Finnar hafa tekið upp 17 þessara lyfja.

Óttarr Proppé heilbrigðisráð- herra segir stöðuna erfiða vegna alvarlegrar framúrkeyrslu á síðasta ári. Hún sé til skoðunar í ráðuneytinu um þessar mundir.

„Það sem kom í ljós er að kostnaðurinn á árinu 2016 fór alvarlega fram úr áætlunum. Kostnaður af lyfjum er því miður vandamál og viðvarandi vandamál að upptaka nýrra lyfja verður dýrari og dýrari,“ segir heilbrigðisráðherra en bendir á að hægt sé að laga stöðuna. „Á síðasta ári var samþykkt að auka innspýtingu í málaflokkinn og við erum að skoða það núna.“ 

Er þetta svona dýrt að innleiða lyfin hérlendis vegna þess hversu mikið þarf að borga lyfjafyrirtækjunum?

Hvað er þá í boði fyrir mig sem krabbameinssjúkling telji minn læknir að ég þurfi önnur lyf en þau sem honum eru aðgengileg á Landsspítalanum?

1.Getur hann sent mig til Noregs með resept og látið mig sækja lyfin og smygla þeim hingað inn?

2.Getur hann sent mig til meðferðar í Noregi?

3.Eða get ég bara drepist í boði ríkisstjórnarinnar, Proppé og Bjartrar Framtíðar af því að það vantar krabbameinslyf?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Það er mikilvægara fyrir Ríkissjóð að fjárfesta í asískum fjárfestingabanka fyrir milljarða. Krabbameinslyf eru óþörf. Þetta lið drepst hvort eð er flest, er "attitjúið". Ömurlegur andskotans hugsunargangur. Allt er verðlagt fyrirfram og ef almenningur vogar sér að veikjast, umfram áætlanir, er talað um framúrkeyrslu á fjárlögum! Það er ekki í lagi með fólk sem hugsar svona. Því miður fást engin lyf við svona fávitahætti og þó þau fengjust, fengu aðeins fyrstu hundarað bjálfarnir lyf, en restin mætti siðan bara eiga sig og hoppa upp í rassgatið á sjálfu sér, án lyfja.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 14.2.2017 kl. 13:30

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorsteinn, ég er búin að fara í geilsunina 35 sinnum og hún dugði ekki á krabbann. Auðvitað veit ég hvaða afleiðingar aðrar hún getur haft. En ég er að verða áttræður.

Með Chemoið bendr þú ekki á neitt annað. Þér til upplýsingar væri ég líklega að drepast núna hefðði ekki Chemoið komið til þar sem krabbinn hefur látið undan síga. Líklega bar frestun þar til hann veður ónæmur eða ég hætti að þola meðferðina. Svo hvað átti ég að gera? Strax eða síðar? Það væri ágætt að fá ráð hjá þér sem svona allsherjar séníi.

Halldór Jónsson, 14.2.2017 kl. 13:48

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvað þykist þú vita um virkni þessa ávaxtaáts?

Halldór Jónsson, 14.2.2017 kl. 15:11

4 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Við vitum ekkert.

En, ef við gætum orðið að liði, og þeir sem eru glöggir, vel menntaðir, læsir á hinar ýmsu tungur, leggja sig fram, þá skulum við minni spámennirnir ekki spara okkur.

Hér er það sem ég hef fundið og sett á netið, bloggið.

Ef til vill sér einhver eitthvað, sem getur orðið að liði.

Guð veri með okkur öllum.

Halldór, það er forvitnileg hologram þrívíddar tíma myndin sem við lifum í.

Við megum ekki láta þekkingarskort og litla trú á að lausnin sé við nefið á okkur, stöðva okkur.

Egilsstaðir, 14.02.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 14.2.2017 kl. 16:20

5 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Við vitum ekkert.

En, ef við gætum orðið að liði, og þeir sem eru glöggir, vel menntaðir, læsir á hinar ýmsu tungur, leggja sig fram, þá skulum við minni spámennirnir ekki spara okkur.

Hér er það sem ég hef fundið og sett á netið, bloggið.

Ef til vill sér einhver eitthvað, sem getur orðið að liði.

Guð veri með okkur öllum.

Halldór, það er forvitnileg hologram þrívíddar tíma myndin sem við lifum í.

Við megum ekki láta þekkingarskort og litla trú á að lausnin sé við nefið á okkur, stöðva okkur.

Auðvitað gleymdi ég þessu.

Allir leiti á netinu að nýustu þekkingu á meðferð á krabbameini. Hér er það sem ég hef séð og sett á netið. Leitum fyrir samborgara okkar, það kemur að notum fyrir okkur alla.

14.2.2017 | 15:54

Egilsstaðir, 14.02.2017  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 14.2.2017 kl. 16:23

6 identicon

Bezta og öruggasta lyfið er bannað vegna þess að lyfjarisarnir ná ekki einkaleyfinu....https://www.youtube.com/watch?v=1miGzTwK28Uhttps://www.youtube.com/watch?v=1miGzTwK28U

GB (IP-tala skráð) 14.2.2017 kl. 16:26

7 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 14.2.2017 kl. 17:56

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Þorstnn minn, ég vona að þú þurfir ekki að horfast í augu við vágestinn og spá í hvað þú þorir að gera þegar meinið er greinilega á leiðinni að drepa þig, ógeislanlegt, óskurðtækt. Ætli þú étir bara ávexti og turmerik eins og ég var sosum byrjaður á. C-vítamín og hákall.  Sjálfsagt gott með.

En Erbitux og placidtaxol virkuðu strax og æxlið minnkaði og sést ekki núna. Ég er á lífi ennþá. En auðvitað ekki að eilífu.

Og segðu mér ekki að bólusetningar og læknasvísindi  séu bull. Ég hef látið bólusetja mig gegn inflúensu í 20 ár og fæ varla kvef, slíkt fjölóæmi veitir það.

Segðu mér ekki að allar bólusetningar séu bull þó þú þykist vera klárari en aðrir með þín alternativu medicín.

Halldór Jónsson, 14.2.2017 kl. 23:38

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er ens gott að þú fáir tíma Þorsteinn minn til að bíða eftir að þínar aðferðir virki. það getur nefnilega verið spítt á þessu sem takmarkar tímann til tilrauna. Ég ætla ekki að bíða þó að ég sé kannski líkur manninum sem datt ofan af Empire State. Þegar hann fór fram hjá sjötugustu  hæð heyrðist hann segja: Jæja, allt hefur nú gengið vel ennþá!

Halldór Jónsson, 14.2.2017 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband